Ísland í sjöunda sæti í Evrópu yfir útgjöld til rannsókna og þróunar

Alls fóru 55 millj­arðar króna í rann­sóknar- og þró­un­ar­starf á Íslandi árið 2017. Upphæðin sem ratar í slíkt starf hefur auk­ist um 65 pró­sent frá 2013. Lög um end­ur­greiðslur úr rík­is­sjóði vegna rann­sókna og þró­unar virð­ast því vera að skila árangri.


Ísland er með sjö­undu hæstu útgjöld til rann­sókna og þró­un­ar­starfs í Evrópu þegar horft er á þau útgjöld út frá vergri lands­fram­leiðslu. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands sem birtar voru í morgun og byggja meðal ann­ars á bráða­birgða­tölum frá Eurostat, Hagstofu Evr­ópu­sam­bands­ins.

Ísland eyddi að með­al­tali 2,1 pró­sent af lands­fram­leiðslu í rann­sóknir og þróun á árinu 2017 sem er rétt yfir með­al­tali 28 landa Evr­ópu­sam­bands­ins, Íslands og Noregs, sem er 2,07 pró­sent. Svíþjóð eyðir mestu, eða 3,4 pró­sent af lands­fram­leiðslu, og þar á eftir koma Aust­ur­ríki (3,16 pró­sent),, Danmörk (3,05 pró­sent), Þýska­land (3,02 pró­sent), Finnland (2,76 pró­sent) og Belgía (2,58 pró­sent).

[adspot]Ísland situr svo, líkt og áður sagði, í sjö­unda sæti rétt á undan Noregi þar sem 2,9 pró­sent af lands­fram­leiðslu runnu til rann­sókna og þró­un­ar­starfs á árinu 2017.

Vert er að taka fram að Ísland er fámenn­asta ríkið á list­anum og því um mun hærri heild­ar­fjár­hæðir að ræða hjá flestum ríkj­unum sem rað­ast í kringum Ísland á honum. Þau þrjú ríki Evr­ópu­sam­bands­ins sem eru með færri en eina milljón lands­menn: Eistland (1,29 pró­sent) Lúx­em­borg (1,26 pró­sent) og Malta (0,54 pró­sent), eru þó öll að eyða umtals­vert lægra hlut­falli af lands­fram­leiðslu í lands­fram­leiðslu í rann­sóknir og þróun en Ísland.

Útgjöld vaxið um tæpa 22 milljarða

Útgjöld vegna rann­sókna og þró­unar hafa vaxið hrátt hér­lendis á fáum árum. 2013 voru þau 33,3 millj­arðar króna en hafa síðan vaxið upp í að vera 55,1 millj­arður króna á árinu 2017. Það þýðir að þau hafa auk­ist um 65 pró­sent í krónum talið.

Sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu náðu útgjöldin hámarki árið 2015, þegar þau voru 2,2 pró­sent. Þótt að útgjöldin hafi í krónum talið auk­ist um 4,6 millj­arða króna síðan þá voru þau lægra hlut­fall af lands­fram­leiðslu árið 2017. Ástæðan er auð­vitað sú að lands­fram­leiðsla jókst umfram það sem útgjöld vegna rann­sókna og þró­unar hækk­uðu.

Lang­mesta aukn­ingin í útgjöldum til rann­sókna og þró­unar á síð­ustu árum hefur átt sér stað hjá fyr­ir­tækjum lands­ins. Árið 2013 eyddu þau 18,6 millj­örðum króna í slíkt en 35,4 millj­örðum króna í fyrra. Það er aukn­ing um 90 pró­sent í krónum talið á tíma­bil­inu. Eyðsla fyr­ir­tækja í rann­sóknir og þróun hefur líka hækkað umtals­vert sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu, úr 0,99 pró­sent árið 2013 í 1,35 pró­sent árið 2017. Hæst stóð það hlut­fall árið 2015 þegar það var 1,45 pró­sent.

Háskóla­stofn­anir eyða 0,65 til 0,66 pró­sent af lands­fram­leiðslu á ári í rann­sóknir og þróun. Ef lands­fram­leiðsla hækkar þá fjölgar krón­unum sem fara í slíkt. Því hefur krónu­tölu­fjöld­inn sem háskóla­stofn­anir veita til rann­sókna og þró­unar farið úr 12,5 millj­örðum króna árið 2013 í 17,3 millj­arða króna árið 2017.

Aðrar opin­berar stofn­anir utan háskól­anna hafa staðið í stað í sinni eyðslu til mála­flokks­ins og raunar var sam­dráttur á krónum sem runnu til hans milli áranna 2016 (2,5 millj­arðar króna) og 2017 (2,3 millj­arðar króna).

Ætluðu að afnema þakið en hækkuðu það í staðinn

Mikil áhersla hefur verið lögð á það að auka fram­lög til rann­sókna og þró­unar hér­lendis á und­an­förnum árum, meðal ann­ars með því að láta ríkið end­ur­greiða hluta þess kostn­aðar sem fer í slíkt.

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dótt­ur, sem mynduð var í lok árs 2017, var fjallað sér­stak­lega um nýsköpun og rann­sóknir og mála­flokk­ur­inn til­greindur þar sem ein af meg­in­á­herslum henn­ar. Orðið nýsköpun kemur raunar fyrir 18 sinnum í stjórn­ar­sátt­mál­an­um. Þá var kveðið á um að rík­­is­­stjórnin ætli, til að bæta alþjóð­­lega sam­keppn­is­hæfni lands­ins, að end­­ur­­meta fyr­ir­komu­lag á end­­ur­greiðslu kostn­aðar vegna rann­­sókna og þró­unar í því skyni að afnema þak sem verið hefur á slíkum end­­ur­greiðsl­­um.

Í des­em­ber 2018 var sam­þykkt frum­varp fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra sem fól í sér að hámark á þeim kostn­aði sem fellur til vegna rann­sókn­ar- og þró­un­ar­kostn­að­ar, og leyfi­legt verður að draga frá skatti, hækk­aði úr 300 millj­ónum króna í 600 millj­ónir króna. Ef um sam­starfs­verk­efni er að ræða eða verk­efni sem útheimta aðkeypta rann­sókn­ar- og þró­un­ar­vinnu hækk­aði hámarkið úr 450 millj­ónum króna í 900 millj­ónir króna. Þakið var því ekki afnumið, en hækkað umtals­vert.

[adspot]Hámarkið er þó til mynda 25 pró­sent hærra hér­lendis en í Noregi sem er með svipað kerfi og Ísland.

End­­ur­greiðsla á rann­­sókn­­ar- og þró­un­­ar­­kostn­aði er ætlað að efla nýsköpun í land­inu. Sam­­kvæmt lögum er ein­­göngu heim­ilt að telja fram beinan kostnað við verk­efni og ann­­arra aðfanga sem notuð hafa verið við vinnslu þess þegar sótt er um end­­ur­greiðslu. Með öðrum orðum þá verða fyr­ir­tæki að aðskilja allan annan rekstur sinn frá því verk­efni sem um ræðir þegar lagðar eru fram kostn­að­­ar­­tölur við vinnslu þess.

Til þess að fá end­­ur­greiðslu á kostn­aði vegna rann­­sóknar og þró­un­­ar­verk­efna þarf að gera sér­­stak­­lega grein fyrir verk­efn­inu í raf­­rænni skrán­ingu umsóknar á heima­­síðu Rannís. Með þarf að fylgja stutt við­­skipta­á­ætlun og ef um sam­­starfs­verk­efni er að ræða þá þarf sam­­starfs­­samn­ingur líka að ber­­ast til Rannís. Þá á að fylgja með lýs­ing á verk­efn­inu ásamt verk- og kostn­að­­ar­á­ætl­­un.

Um 2,9 millj­arðar á árinu 2017

Heild­­ar­af­­sláttur vegna rann­­sókna- og þró­un­­ar­­kostn­aðar var sam­tals um 2,94 millj­­arðar króna á árinu 2017, sem er aðeins meira en árið 2016, þegar hann nam 2,8 millj­örðum króna. Afslátt­­ur­inn virkar þannig að hann gengur upp í álagðan tekju­skatt ef fyr­ir­tækið sem á rétt á honum er rekið í hagn­aði og greiðir slík­­­ar. Alls jókst skulda­­jöfnun á móti tekju­skatti úr 438 millj­­ónum króna í 624 millj­­ónir króna. Þorri afslátt­­ar­ins er þó enn í formi beinnar end­­ur­greiðslu. Rúm­­lega 2,3 millj­­arður króna fór til fyr­ir­tækja sem þáðu slíka vegna rann­­sókna og þró­un­­ar.

Athygli vekur að þeim fyr­ir­tækjum sem fengu afslátt­inn í fyrra fjölg­aði ein­ungis um eitt milli ára. Þau voru 143 árið 2016 en 144 ári síð­ar.

End­­ur­greiðsl­­urnar hafa vaxið mikið á und­an­­förnum árum. Milli áranna 2016 og 2017 juk­ust þær til að mynda um 800 millj­­ónir króna. Ástæðan fyrir þeirri miklu aukn­ingu var sú að hámarks­­­upp­­hæð sem nýta mátti í rann­­sóknir og þróun og draga má frá skatti var hækkuð úr 100 millj­­ónum króna í 300 millj­­ónir króna með laga­breyt­ingu sem sam­­þykkt var í byrjun júní 2016. Ef um er að ræða sam­­starfs­verk­efni eða sem útheimta aðkeypta rann­­sókn­­ar- eða þró­un­­ar­vinnu hækkar hámarkið í 450 millj­­ónir króna. End­­ur­greiðslan gat þó að hámarki numið 20 pró­­sent af sam­­þykktum kostn­aði.

Upphæðin sem hægt er að fá í end­ur­greiðslu var síðan tvö­földuð í des­em­ber í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hugvit

Fréttirhugvit

Búið að ganga frá sölu QuizUp til Banda­ríkj­anna

Plain Vanilla hefur náð sam­komu­lagi við banda­ríska fyr­ir­tækið Glu Mobile um að selja QuizUp leik­inn til þess. Heild­ar­virði samn­ings­ins er um 7,5 millj­ónir dala, um 850 millj­ónir króna, en kaup­verðið er að hluta greitt með upp­gjöri skulda milli fyr­ir­tækj­anna tveggja. Í til­kynn­ingu vegna þessa segir að starfs­menn beggja fyr­ir­tækja hafi að und­an­förnu unnið hörðum höndum að yfir­færslu leiks­ins og hefur...
Aðsenthugvit

Ragnheiður H. Magnúsdóttir

Kæra næsta rík­is­stjórn, mætti ég biðja um tækni- og hug­vits­ráð­herra?

Mig langar að Íslend­ingar eign­ist tækni- og hug­vits­ráð­herra. Sem sagt ráð­herra sem hefur það hlut­verk, í stórum dráttum, að halda utan um þann stóra hóp sem vinnur við að nýta hug­vitið alla daga. Ég er að tala um fólkið sem starfar hjá ýmsum tækni­fyr­ir­tækjum, fjar­skipta­fyr­ir­tækjum, í kvik­mynda­iðn­aði, við tón­list, við leik­list, hjá sprota­fyr­ir­tækjum, við mynd­list, vöru­þróun, vöru­hönnun, graf­íska hönnun og...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár