Búið að ganga frá sölu QuizUp til Bandaríkjanna

Plain Vanilla hefur náð sam­komu­lagi við banda­ríska fyr­ir­tækið Glu Mobile um að selja QuizUp leik­inn til þess. Heild­ar­virði samn­ings­ins er um 7,5 millj­ónir dala, um 850 millj­ónir króna, en kaup­verðið er að hluta greitt með upp­gjöri skulda milli fyr­ir­tækj­anna tveggja.

Í til­kynn­ingu vegna þessa segir að starfs­menn beggja fyr­ir­tækja hafi að und­an­förnu unnið hörðum höndum að yfir­færslu leiks­ins og hefur teymi frá Glu starfað að því verk­efni í höf­uð­stöðvum Plain Vanilla að Lauga­vegi 77. „Í kjöl­far söl­unnar munu Plain Vanilla Corp. í Banda­ríkj­unum og Plain Vanilla á Íslandi hætta rekstri en félögin standa skil á öllum skuld­bind­ingum við starfs­menn sína og lán­ar­drottna.“

Þor­steinn B. Frið­riks­son, stofn­andi og frá­far­andi for­stjóri Plain Vanilla, segir að QuizUp hafi verið ótrú­legt ævin­týri. „Á annað hund­rað Íslend­ingar hafa fengið mik­il­væga reynslu í gegnum störf sín hjá fyr­ir­tæk­inu sem náði ótrú­lega langt í þessum harða iðn­aði. Einnig tókst okkur að búa til einn eft­ir­sóttasta og skemmti­leg­asta vinnu­stað á Íslandi sem lifa mun í minn­ingu allra þeirra sem þar störf­uðu. Ég er mjög þakk­látur öllu starfs­fólki, sam­starfs­að­ilum og fjár­festum sem komið hafa að þessu verk­efni síð­ast­liðin fimm ár. Þó að það sé erfitt að sjá á eftir barn­inu okkar til Banda­ríkj­anna þá erum við um leið spennt fyrir því sem er framundan. Þá vona ég að Glu Mobile haldi uppi merkjum QuizUp með sóma og ég hef verið full­viss­aður um að það hygg­ist fyr­ir­tækið gera.“

NBC hætti við að framleiða spurningaþætti

Þann 31. ágúst síð­ast­lið­inn var til­kynnt um að Plain Vanilla myndi loka. Öllu starfs­fólki, þá 36 manns, var sagt upp störfum sama dag.

NBC, sem ætl­aði að fram­leiða spurn­inga­þætti undir nafn­inu QuizUp, hafði hætt við fram­leiðsl­una og rekstr­ar­for­sendur brustu til frek­ari fjár­mögn­unar og þró­unar á fyr­ir­tæk­inu hér á landi. Vonir höfðu staðið til að rekst­ur­inn yrði sjálf­bær þegar not­endum fjölg­aði sam­hliða áætl­aðri frum­sýn­ingu þátt­ar­ins.

Fyr­ir­tæk­inu var svo til­kynnt um það síðla í ágúst að NBC hefði hætt við þætt­ina. Það kom flestum að óvörum, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, enda hafði fyr­ir­tækið þegar pantað þrettán þætti og búið var að vinna mikla vinnu í sam­bandi við þá. Búið var að ákveða frum­sýn­ing­ar­dag og finna þætt­inum stað í dag­skrá stjón­varps­stöðv­ar­inn­ar, klukkan 19 á sunnu­dags­kvöldum frá og með 5. mars næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hugvit

Aðsenthugvit

Ragnheiður H. Magnúsdóttir

Kæra næsta rík­is­stjórn, mætti ég biðja um tækni- og hug­vits­ráð­herra?

Mig langar að Íslend­ingar eign­ist tækni- og hug­vits­ráð­herra. Sem sagt ráð­herra sem hefur það hlut­verk, í stórum dráttum, að halda utan um þann stóra hóp sem vinnur við að nýta hug­vitið alla daga. Ég er að tala um fólkið sem starfar hjá ýmsum tækni­fyr­ir­tækjum, fjar­skipta­fyr­ir­tækjum, í kvik­mynda­iðn­aði, við tón­list, við leik­list, hjá sprota­fyr­ir­tækjum, við mynd­list, vöru­þróun, vöru­hönnun, graf­íska hönnun og...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár