Plain Vanilla lokað á Íslandi – öllum starfsmönnum sagt upp

Íslenska tölvu­leikja­fyr­ir­tækið Plain Vanilla, sem fram­leiðir spurn­inga­leik­inn QuizUp, mun loka skrif­stofu sinni á Íslandi. Öllu starfs­fólki, 36 manns, var sagt upp í morgun.

NBC, sem ætl­aði að fram­leiða spurn­inga­þætti undir nafn­inu QuizUp, hefur hætt við fram­leiðsl­una og rekstr­ar­for­sendur brustu til frek­ari fjár­mögn­unar og þró­unar á fyr­ir­tæk­inu hér á landi. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu. Vonir höfðu staðið til að rekst­ur­inn yrði sjálf­bær þegar not­endum fjölg­aði sam­hliða áætl­aðri frum­sýn­ingu þátt­ar­ins.

Fyr­ir­tæk­inu var svo til­kynnt um það í síð­ustu viku að NBC hefði hætt við þætt­ina. Það kom flestum að óvörum, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, enda hafði fyr­ir­tækið þegar pantað þrettán þætti og búið var að vinna mikla vinnu í sam­bandi við þá. Búið var að ákveða frum­sýn­ing­ar­dag og finna þætt­inum stað í dag­skrá stjón­varps­stöðv­ar­innar, klukkan 19 á sunnu­dags­kvöldum frá og með 5. mars næst­kom­andi.

Plain Vanilla mun halda leiknum gang­andi áfram næstu þrjá mán­uði og leiða verður leitað til að þróun leiks­ins geti haldið áfram þrátt fyrir að ekki verði af sjón­varps­þætt­inum og að skrif­stofan loki hér á landi, segir í frétta­til­kynn­ing­unni. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans stendur til að reyna að selja leik­inn annað.

Þor­steinn Baldur Frið­riks­son, stofn­andi og for­stjóri Plain Vanilla, segir í til­kynn­ing­unni að veðjað hafi verið á viða­mikið sam­starf við NBC. „Segja má að við höfum sett of mörg egg í þessa NBC körfu en við höfum eytt miklum tíma og orku í þróun sjón­varps­þátt­ar­ins. Þegar ég fékk skila­boðin frá NBC um að hætt yrði við fram­leiðslu þátt­ar­ins þá varð um leið ljóst að for­sendur fyrir frek­ari rekstri, án umfangs­mik­illa breyt­inga, væru brostnar. Eftir stendur að síð­ustu ár hafa verið ótrú­legt ævin­týri fyrir mig og alla þá sem komu að Plain Vanilla. Ég er þakk­látur fyrir að hafa fengið að vinna með ótrú­lega hæfi­leik­a­ríku fólki á þess­ari veg­ferð. Ég er spenntur að sjá hvað starfs­fólk Plain Vanilla tekur sér fyrir hendur í fram­tíð­inni og er hand­viss um að fjöldi nýrra fyr­ir­tækja verður stofn­aður af þessum hóp sem hefur fengið frá­bæra reynslu hjá okkur und­an­farin ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár