Taka ekki afstöðu til vindorkuversins fyrr en stefna stjórnvalda liggur fyrir

Full­trúar vind­orku­fyr­ir­tæk­is­ins Zephyr Iceland hafa ekki verið í beinum sam­skiptum við sveit­ar­stjórn Hval­fjarð­ar­sveitar. Engu að síður hefur fyr­ir­tækið aug­lýst mats­á­ætlun fyrir vind­orku­ver á hæsta fjalli Hval­fjarð­ar­strandar.

Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar, segir sveitarstjórna ekki hafa tekið afstöðu til byggingar vindorkuvers á Brekkukambi.
Linda Björk Páls­dóttir, sveit­ar­stjóri Hval­fjarð­ar­sveitar, segir sveit­ar­stjórna ekki hafa tekið afstöðu til bygg­ingar vind­orku­vers á Brekku­kambi. Mynd: Samsett mynd

Sveit­ar­stjórn Hval­fjarð­ar­sveitar hefur ekki fjallað um eða tekið afstöðu til bygg­ingar vind­orku­vers á Brekku­kambi í Hval­firði enda hefur málið ekki komið inn á borð hennar nema að því leyti að gefa umsögn um mats­á­ætlun fram­kvæmd­ar­innar.

Þetta segir Linda Björk Páls­dóttir, sveit­ar­stjóri Hval­fjarð­ar­sveitar, við Kjarnann. Tugir athuga­semda bár­ust við mats­á­ætl­un­ina, allar á einn veg: Fólkið í nágrenni hins fyr­ir­hug­aða vind­orku­vers vill að horfið verði frá áformunum.

[adspot]

„Ég fagna því að sem flestar umsagnir ber­ist og að íbúar, land­eig­endur, frí­stunda­húsa­eig­endur og aðrir hags­muna­að­ilar komi sjón­ar­miðum sínum á fram­færi,“ segir Linda. „Ég ber virð­ingu fyrir þeim skoð­unum sem fram eru komnar og ítreka það að fram­kvæmdin, eins og henni er lýst í drögum að mats­á­ætlun fram­kvæmd­ar­að­ila, er ekki í sam­ræmi við aðal­skipu­lag Hval­fjarð­ar­sveitar og ekki verður tekin afstaða til breyt­inga aðal­skipu­lags vegna vindlunda og/eða vindraf­stöðva yfir 35 metra nema fyrir liggi skýr stefnu­mörkun á lands­vísu um vind­orku­nýt­ingu og/eða í ramma­á­ætlun.“

[links]Fyr­ir­tækið Zephyr Iceland, sem er í meiri­hluta eigu norska fyr­ir­tæk­is­ins Zephyr AS, vill reisa 50 MW vind­orku­ver á hæsta fjall­inu við Hval­fjarð­ar­strönd. Vind­myll­urnar, sem yrðu 8-12 tals­ins og 250 metrar á hæð, myndu því sjást víða að. Kjarninn hefur áður fjallað um athuga­semdir íbúa sem og stofn­ana við áformin.

Mats­á­ætlun verk­efn­is­ins, sem verk­fræði­stofan EFLA vann fyrir Zephyr, var aug­lýst á vef Skipu­lags­stofn­unar í vor. Í áætl­un­inni er útskýrt hvernig staðið verði að umhverf­is­mati fram­kvæmd­ar­innar og hvaða þættir verði teknir til skoð­unar. Skipu­lags­stofnun gefur svo álit sitt á mats­á­ætl­un­inni, að teknu til­liti til athuga­semda og umsagna.

Umhverfismatið rétt að hefjast

Fram­kvæmda­að­ili, í þessu til­viki Zephyr Iceland, þarf að taka til­lit til þess sem Skipu­lags­stofnun kveður á um varð­andi umhverf­is­matið. Þá hefst ferli hjá fram­kvæmda­að­ila sem er gagna­öflun, rann­sóknir o.s.frv. Þegar öll gögn liggja fyrir gerir fram­kvæmda­að­ili umhverf­is­mats­skýrslu, þar sem umhverf­is­á­hrif eru metin.

Umhverf­is­matið er síðan aug­lýst af Skipu­lags­stofnun og enn á ný leitar hún umsagnar meðal hags­muna­að­ila og almenn­ings, þ.m.t. sveit­ar­fé­lags­ins. „Þegar þessu ferli lýkur getur, að und­an­geng­inni umfjöllun í sveit­ar­stjórn, haf­ist ferli deiliskipu­lags og mögu­lega breyt­inga á aðal­skipu­lagi, en þessi tvö skipu­lags­ferli má einnig aug­lýsa sam­hliða umhverf­is­mats­skýrslu,“ útskýrir Linda. „Sveit­ar­fé­lagið hafi skipu­lags­valdið varð­andi þessi tvö ferli, þ.e.a.s. varð­andi aðal- og deiliskipu­lag.“ Að loknu skipu­lags­ferli vegna aðal- og deiliskipu­lags, gefur sveit­ar­fé­lagið út fram­kvæmda­leyfi vegna fyr­ir­hug­aðra fram­kvæmda.

Linda ítrekar að vind­orku­ver á Brekku­kambi, eins og fram­kvæmd­inni er lýst í drögum að mats­á­ætlun, sé ekki í sam­ræmi við gild­andi aðal­skipu­lag Hval­fjarð­ar­sveitar né end­ur­skoðað aðal­skipu­lag Hval­fjarð­ar­sveitar til árs­ins 2032 sem vænt­an­lega muni hljóta stað­fest­ingu ráð­herra og öðl­ast gildi í árs­lok 2022. Hún ítrekar einnig að sam­kvæmt ákvæðum í end­ur­skoð­uðu aðal­skipu­lagi verði ekki tekin afstaða til breyt­inga aðal­skipu­lags vegna vind­orku­vera og/eða vindraf­stöðva yfir 35 metra nema fyrir liggi skýr stefnu­mörkun á lands­vísu um vind­orku­nýt­ingu og/eða í ramma­á­ætlun.

Engin bein samskipti við Zephyr

Hún segir sveit­ar­stjórn Hval­fjarð­ar­sveitar ekki hafa átt í beinum sam­skiptum við Zephyr ehf. fyrir utan for­sam­ráðs­fund vegna fyr­ir­hug­aðs vind­orku­vers við Brekku er hald­inn var á vegum Skipu­lags­stofn­unar líkt og stofn­unin fór fram á. „Á þeim fundi bentu full­trúar Hval­fjarð­ar­sveitar á að tak­mark­aðar upp­lýs­ingar lægju fyrir um afstöðu íbúa til vind­orku­vera og ítrek­uðu mik­il­vægi sam­ráðs við nær­sam­fé­lagið við und­ir­bún­ing verk­efn­is­ins,“ segir Linda.

Umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra skip­aði í sumar starfs­hóp sem á að gera til­lögur að lag­ara­mma fyrir nýt­ingu vind­orku hér á landi. Hópurinn á að skila af sér til­lögum í febr­úar á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vindorkuver

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár