Vindorkuver um land allt yrðu mesta umhverfisslys Íslandssögunnar

For­stjóri Orku­veit­unnar segir að ef þús­und vind­myllur yrðu reistar um landið líkt og vind­orku­fyr­ir­tæki áforma „ættum við engu umhverf­isslysi til að jafna úr Íslands­sög­unni. Hér væri reyndar ekki um slys að ræða því myll­urnar yrðu reistar af ásetn­ingi.“

Bjarni Bjarnason er forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.
Bjarni Bjarna­son er for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur.

„Hjarð­hegðun er vara­söm og mér bregður þegar ég verð hennar var,“ skrifar Bjarni Bjarna­son, for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur, í þriðju og síð­ustu grein sinni í greina­röð um orku­mál sem hann hefur birt á Vísi. Umfjöll­un­ar­efni þess­arar þriðju greinar for­stjór­ans eru öll þau áform sem uppi eru um beislun vind­orku vítt og breytt um landið. Hann rifjar fyrst upp fisk­eld­isæv­in­týrið við lok síð­ustu aldar, og að slíkar stöðvar hafi verið vel á annað hund­rað í lok níunda ára­tug­ar­ins. „Senni­lega áttu þær flestar sam­eig­in­legt að verða gjald­þrota.“

Svipað megi segja um loð­dýra­rækt­ina. Búin voru eitt sinn tæp­lega 200 en eru nú tíu. „Eitt sinn fengum við þá grillu í höf­uðið að Ísland gæti orðið alþjóð­leg fjár­mála­mið­stöð,“ skrifar Bjarni í þess­ari upp­rifjun sinni. „Það ævin­týri end­aði næstum með gjald­þroti þjóð­ar­innar.“ Og, bætir hann við, „nú eru það vind­myllur.“

[adspot]

Á vef Orku­stofn­unar eru talin fram um 30 svæði hvar fyr­ir­tæki hafa sýnt áhuga á reisa vind­myllur. Fyr­ir­tækin eru norsk, dönsk og frönsk en líka íslensk.

Bjarni segir að gera megi ráð fyrir ákveðnum lág­marks­fjölda á hverju svæði til að ná hag­kvæmni, segjum 30. Það geri hátt í þús­und vind­myllur sam­an­lagt. „Verði þessi sýn að veru­leika ættum við engu umhverf­isslysi til að jafna úr Íslands­sög­unni. Hér væri reyndar ekki um slys að ræða, því myll­urnar yrðu reistar af ásetn­ingi, með fullri vit­neskju um hin víð­tæku umhverf­is­á­hrif.“

Vind­myllu­tækn­inni fleygir fram. Þriggja mega­vatta vind­mylla er um 100 metrar á hæð og með spaða í hæstu stöðu myndi hún sam­svara tveimur Hall­gríms­kirkju­turnum á hæð. Líklegt er að hver milla verði 4-5 mega­vött að afli þegar að því kemur að reisa þær. Stærri myllur rísa hærra, bendir Bjarni á, og 5 MW mylla er ekki undir 200 metrum. „Það yrðu þá hæstu mann­virki á Íslandi, að mastr­inu á Gufu­skálum einu und­an­skildu.“

Hann minnir á að ferða­þjón­ustan hafi skákað öðrum útflutn­ings­greinum okkar í öflun gjald­eyris. „Hver vill skoða lítið land með 1.000 vind­myllum á „ósnortnum víð­ernum“? Getur verið að orku­fyr­ir­tæki vilji valta yfir ferða­þjón­ust­una með þessum hætti? Ég trúi því ekki.“

Bjarni segir að byggja verði upp atvinnu­lífið á gagn­kvæmri virð­ingu og skiln­ingi milli atvinnu­vega, „ann­ars fer allt í hund og kött“.

[adspot]

Þá minnir hann á tak­mark­anir vind­orku­vera. „Hvernig á að nota raf­orku sem er bara til­tæk hálft árið og eng­inn veit fyr­ir­fram hvort logn verður á morgun?“ spyr hann. Hugs­an­lega til þess að fram­leiða vetni, svarar hann þess­ari spurn­ingu sinni. Fram­leiðsla vetnis krefj­ist mik­illar fjár­fest­ingar, bæði í tækja­bún­aði og í geymslu þess vetnis sem fram­leitt er meðan vind­ur­inn blæs.

Er hægt að fá raf­magn ann­ars staðar frá fyrir við­skipta­vini vindraf­magns í logni? Hæpið sé að hægt verði að fá raf­magn ann­ars staðar frá fyrir við­skipta­vini vindraf­magns þegar vindar blása ekki. Vatnsafl sé lang­besti kost­ur­inn til að spila á móti vind­orku. Um þrír fjórðu hlutar þess raf­magns sem fram­leitt er í land­inu komi úr vatns­afl­inu, um 15 tera­vatt­stundir (TWst) á ári af 20 í heild­ina. „1.000 vind­myllur myndu fram­leiða nálægt 15 TWst á ári. Allt vatns­afl í land­inu myndi því vart duga til að sjá við­skipta­vinum vind­orkunnar fyrir raf­magni í logni.“

[links]Bjarni spyr svo: En hvenær eigum við að virkja vind­inn og hvar?

„Í fyrsta lagi eigum við að anda með nef­inu. Okkur liggur ekki svona mikið á. Vinnum verkið stig af stigi og látum reynsl­una af fyrstu vind­myllu­görð­unum leiða okkur áfram.“ Best sé að virkja á rösk­uðum svæðum, til dæmis við þær virkj­anir sem fyrir eru, þar sem flutn­ings­kerfi Lands­nets sé enn­fremur nálægt.

„Það fyr­ir­tæki sem mér sýnis hafa und­ir­búið sig af mestri kost­gæfni fyrir vind­ork­una er Lands­virkjun,“ skrifar Bjarni. Fyr­ir­tækið hefur rekið til­rauna­vind­myllur um ára­bil á svoköll­uðu Hafi upp af Búrfelli. „Mér finnst lík­legt að Orku­veita Reykja­víkur muni reisa vind­myllur við virkj­anir sínar á Hell­is­heiði og á Nesja­völlum. Und­ir­bún­ings­rann­sóknir eru hins vegar of skammt á veg komnar til að taka ákvörðun.“

Alvöru samráð

Lyk­il­þáttur við und­ir­bún­ing vind­myllu­garða er sam­ráð, að mati Bjarna. „Og þá er ég að tala um alvöru sam­ráð, ekki ein­hliða upp­lýs­ingar.“ Samráð við heima­fólk, land­eig­endur, sveit­ar­fé­lögin, nátt­úru­vernd­ar­sam­tök og aðra hag­að­ila. „Hver vill eiga og reka vind­myllu­garð við ramma andúð heima­fólks?“

Bjarni vill að farið verði var­lega í alla ákvörð­un­ar­töku og að ekki verði rasað um ráð fram. „Við eigum ekki Ísland en við fáum að njóta þess meðan við lifum, hvert fyrir sig. Stór­felld spjöll á nátt­úru lands­ins, sem verða fyrir flumbru­gang í virkjun raf­magns, verða ekki aftur tekin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár