Skrítið ef „enginn staður á Íslandi kæmi til greina fyrir vindorku“

Umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra segir að tvö­falda þurfi orku­fram­leiðslu á Íslandi „hið minnsta“ til að ná fram orku­skiptum. Íslend­ingar séu langt á eftir öðrum þegar komi að vind­orkunni.

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Það liggur fyrir, sam­kvæmt Græn­bók­inni og bestu upp­lýs­ingum sem við höfum, að það þarf hið minnsta að tvö­falda orku­fram­leiðsl­una til að ná fram orku­skiptum,“ segir Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra í við­tali við Morg­un­blaðið í dag.

Til að standa undir skuld­bind­ingum Íslands í lofts­lags­málum þurfi 650 MW á næstu átta árum eða til árs­ins 2030. Til sam­an­burðar má benda á að Kára­hnjúka­virkjun, langstærsta virkjun lands­ins, er 690 MW að afli. Nú eru 300 MW þegar „í píp­unum“ segir ráð­herr­ann, „þannig að meira þarf að koma til.“

[adspot]

„Í píp­unum“ er m.a. Hvamms­virkjun í Þjórsá, sem yrði um 95 MW. Orku­stofnun hefur sent Lands­virkjun drög að ákvörðun sinni um virkj­ana­leyfi fram­kvæmd­ar­innar og sam­kvæmt því sem Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, hefur sagt í fréttum er leyfið svo gott sem komið í hús þótt vænt­an­lega fylgi því ein­hver skil­yrði.

[links]Hvamms­virkjun er ein af þremur virkj­unum sem fyr­ir­tækið áformar í neðri hluta Þjórsá. Hún yrði í byggð og neðsta virkj­unin í umfangs­miklu kerfi virkj­ana ofar á Þjórsár- og Tungna­ár­svæð­inu. Virkj­un­ar­kost­ur­inn hefur frá upp­hafi verið undeildur, íbúar í nágrenn­inu hafa mót­mælt harð­lega og sagt að nóg sé komið af virkj­unum í þeirra heim­byggð. Hinir tveir virkj­un­ar­kostir Lands­virkj­unar neðar í ánni, Holta­virkjun og Urriða­foss­virkjun, voru einnig í nýt­ing­ar­flokki þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar, en færð­ust í með­förum þings­ins í bið­flokk.

„Óhætt er að segja að til­lögur um flokkun Holta­virkj­unar og Urriða­foss­virkj­unar í nýt­ing­ar­flokk hafa vakið reiði í nær­sam­fé­lag­inu“ enda um að ræða „stórar virkj­un­ar­hug­myndir í byggð,“ sagði í meiri­hluta­á­liti umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis sem fjall­aði um þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una í vor. Í álit­inu sagði einnig að mik­il­vægt væri að horfa til neðri hluta Þjórsár „sem eina heild“ og því beint til ráð­herra og verk­efn­is­stjórnar 5. áfanga ramma­á­ætl­unar að horfa til „allra þriggja virkj­ana­kosta“ í neðri hluta Þjórsár við það mat. Hvaða þýð­ingu þau orð hafa er algjör­lega óljóst á þessum tíma­punkti.

Lands­virkjun seg­ist eiga von á, þrátt fyrir að virkj­ana­leyfi Hvamms­virkj­unar og fram­kvæmda­leyfi séu ekki stað­fest, að haf­ist verði handa við bygg­ingu virkj­un­ar­innar á næsta ári.

Í við­tali við Morg­un­blaðið í dag er Guð­laugur Þór spurður út í vind­orku­á­form þau sem uppi eru víðs vegar um landið, á að minnsta kosti þrjá­tíu stöðum. Um yrði að ræða í kringum 1.000 vind­myllur, ef þeir yrðu allir að veru­leika, líkt og Bjarni Bjarna­son, for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur, rakti nýlega. „Verði þessi sýn að veru­leika ættum við engu umhverf­isslysi til að jafna úr Íslands­sög­unni. Hér væri reyndar ekki um slys að ræða, því myll­urnar yrðu reistar af ásetn­ingi, með fullri vit­neskju um hin víð­tæku umhverf­is­á­hrif,“ sagði Bjarni.

Gagnrýni úr vissum ranni

Blaða­maður Morg­un­blaðs­ins orðar spurn­ingu sína til ráð­herr­ans með þeim hætti að „úr vissum ranni“ sé tölu­verð and­staða við vind­orku. Þar hlýtur hann að vera að vísa til heima­manna, sem hafa verið helstu and­stæð­ingar slíkra áforma m.a. í Norð­ur­ár­dal, í Hval­fjarð­ar­sveit og víðar.

„Allir þessir orku­kostir eru umdeildir,“ svarar Guð­laugur. „Svo verður alltaf og ég tek ekki afstöðu til þess hvaða leiðir menn fara. Menn þurfa aðeins að sjá til þess að græna orkan sé fyrir hendi. Þeir sem töl­uðu mest með vind­orku fyrir ári eru mest á móti henni núna. Og ég ætla ekki að spá um hvernig þessi mál þró­ast. Það er eðli­legt að málin séu umdeild. Við þurfum að velja þá kosti sem okkur finnst bestir og það ger­ist ekki án umræðu. Það er harla ólík­legt að við sjáum enga vind­orku hér á Íslandi og ég er sam­mála því að sumir staðir koma alls ekki til greina. Held við getum verið sam­mála um það. Það væri svo­lítið skrítið að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að eng­inn staður á Íslandi kæmi til greina fyrir vind­orku.

Tveir virkj­un­ar­kostir Lands­virkj­unar, Búr­fellslundur og Blöndu­lundur eru langt komnir í und­ir­bún­ingi og í svörum Lands­virkj­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans nýverið, um hvort að Búr­fellslundur verði m.a. settur fram fyrir Hvamms­virkjun, sagði að unnið væri að báðum þessum virkj­ana­kostum sam­hliða. Báðir vind­orku­kostir Lands­virkj­unar eru í nýt­ing­ar­flokki þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar sem sam­þykktur var á Alþingi í vor.

„Svo höfum við verið langt á eftir öðrum þegar kemur að vind­orkunni,“ segir Guð­laugur Þór við Morg­un­blaðið. „Þar hefur ekki verið nein sér­stök lög­gjöf fyrir utan ramma­á­ætlun. Nú eru starf­andi þrír vinnu­hópar; einn er að bera saman laga- og reglu­gerð­ar­um­hverfið í Noregi, Danmörku, Skotlandi og á Nýja-Sjálandi, annar að kanna hvar hægt er að reisa vind­orku­ver á hafi og sá þriðji mun leggja fram til­lögur um hvernig laga-og reglu­gerð­ar­um­hverfi við eigum að hafa utan um vind­ork­una. Þannig að svona var staðan þegar við tókum við fyrir ári. Það hefur náðst mik­ill árangur á skömmum tíma, en betur má ef duga skal.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvammsvirkjun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár