Orkustofnun gefur Hvammsvirkjun grænt ljós

Hvamms­virkjun verður sjö­unda virkjun Lands­virkj­unar á Þjórsár- og Tungna­ár­svæð­inu en sú fyrsta sem reist verður í byggð. Orku­stofnun setur skil­yrði um vatns­magn neðan stíflu og seiða­fleytur fyrir lax­fiska í nýút­gefnu virkj­un­ar­leyfi.

Tölvuteikning Landsvirkjunar af Hvammsvirkjun. Stíflan er efst á myndinni, þá Viðey, frárennslisskurður til hægri og Ölmóðsey. Landsvirkjun á að tryggja 10 m3/s rennsli neðan stíflu.
Tölvu­teikn­ing Lands­virkj­unar af Hvamms­virkjun. Stíflan er efst á mynd­inni, þá Viðey, frá­rennsl­is­skurður til hægri og Ölmóðsey. Lands­virkjun á að tryggja 10 m3/s rennsli neðan stíflu. Mynd: Landsvirkjun

Hvamms­virkjun, virkjun sem deilt hefur verið um í ára­fjöld, er einu stóru skrefi nær því að verða að veru­leika með nýút­gefnu virkj­un­ar­leyfi Orku­stofn­unar. Næsta skref er að sækja um fram­kvæmda­leyfi til sveit­ar­fé­lag­anna tveggja sem virkj­unin yrði innan; Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps og Rangár­þings ytra. Samhliða verða útboð fram­kvæmda­þátta und­ir­búin. Þá þarf einnig sam­þykki stjórnar Lands­virkj­unar fyrir fram­kvæmd­inni áður en hægt er að hefj­ast handa.

Ef öll þessi mál fá jákvæða umfjöllun gæti bygg­ing virkj­un­ar­innar, sem yrði sú sjö­unda á Þjórsár- og Tungna­ár­svæð­inu, haf­ist um mitt næsta ár.

[adspot]

Hvamms­virkjun verður 95 MW að afli. Áin verður stífluð með 350 metra langri og allt að 18 metra hárri jarð­vegs­stíflu og við hana mun mynd­ast fjög­urra fer­kíló­metra lón.

Frá stíflu, er sam­kvæmt virkj­un­ar­leyfi Orku­stofn­unar, heim­ilt að veita allt að 352 rúmmetrum vatns á sek­úndu (m3/s) til stöðv­ar­húss sem verður að mestu nið­ur­grafið. Frá stöðv­ar­húsi mun vatnið renna um 2 kíló­metra löng göng og síðan 1,2 kíló­metra langan skurð aftur í Þjórsá fyrir neðan Ölmóðsey. Við Ölmóðsey verður önnur stífla, 150 metra löng, sem mun beina vatni frá yfir­falli vestur yfir eyna.

Með til­komu lóns­ins mun fjöl­breytt lands­lag við ána og bakka hennar breyt­ast. Eyjur, hólmar og flúðir fara á kaf ofan stífl­unnar og á um þriggja kíló­metra kafla neðan hennar, þar sem hina sér­stæðu og frið­uðu Viðey er að finna, mun vatns­rennsli minnka veru­lega. Samkvæmt sér­tæku skil­yrði í virkj­un­ar­leyfi Orku­stofn­unar ber Lands­virkjun að tryggja rennsli 10 rúmmetra vatns á sek­úndu hið minnsta, í far­vegi árinnar frá stíflu og að enda frá­rennsl­is­skurðar. Á göngu­tíma seiða lax­fiska ber fyr­ir­tæk­inu auk þess að hafa seiða­fleytu opna í sam­ræmi við áætlun þar að lút­andi.

Annað sér­tækt skil­yrði sem er að finna í virkj­un­ar­leyf­inu felur í sér að Lands­virkjun skuli tryggja sam­rekstur Hvamms­virkj­unar og ann­arra vatns­afls­virkj­ana og vatns­miðl­ana á vatna­sviðum Tungnaár og Þjórsár með það fyrir augum að tryggja hag­kvæma nýt­ingu vatns­auð­lind­ar­innar.

Með Hvamms­virkjun verða þær orðnar sjö tals­ins, virkj­an­irnar á einu stærsta orku­vinnslu­svæði lands­ins. Upptök vatns­ins sem er nýtt í flókið kerfi virkj­ana og uppi­stöðu­lóna Lands­virkj­unar eru í Hofsjökli og Vatna­jökli.

Og það eru fleiri á teikni­borð­inu. Lands­virkjun hefur um ára­bil áformað fleiri virkj­anir í neðri hluta Þjórsár, fyrir utan þá sem fyr­ir­tækið vill reisa ofan allra hinna: Kjalöldu­veitu.

Þá er einnig stefnt að stækkun þriggja virkj­ana á svæð­inu.

Athug­anir á hag­kvæmni virkj­ana í neð­an­verðri Þjórsá hófust árið 1999. Ýmist tvær eða þrjár virkj­anir voru þá nefndar; Núps­virkjun og Urriða­foss­virkjun eða Hvamms-, Holta- og Urriða­foss­virkjun. Árið 2003 kom út skýrsla um mat á umhverf­is­á­hrifum allra þess­ara kosta. Metin voru áhrif virkj­unar við Núp í einu skrefi (Núps­virkjun) og í tveimur skrefum (Holta- og Hvamms­virkjun).

[links]Mikil and­staða var við þessi áform og að auki breytt­ust ýmsar for­sendur í þjóð­fé­lag­inu sem urðu til þess að Lands­virkjun setti þau á ís. Kára­hnjúka­virkjun, sú langstærsta sem finna má á Íslandi, var reist á fyrstu árum ald­ar­innar og um það leyti hófst vinna við áætlun um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða, svo­nefnda ramma­á­ætlun, þar sem virkj­ana­kostir eru flokk­aðir í orku­nýt­ingar-, bið- og vernd­ar­flokk.

Árið 2013 var tekin ákvörðun á Alþingi um að Hvamms-, Holta- og Urriða­foss­virkjun færu í bið­flokk, m.a. vegna óvissu um áhrif á lax­fiska í Þjórsá.

En tveimur árum síðar, í byrjun sum­ars 2015, sam­þykkti Alþingi þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að færa Hvamms­virkjun eina og sér í orku­nýt­ing­ar­flokk. Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar, sem fyrst var lögð fram á þingi árið 2016, var svo lagt til að hinar tvær virkj­ana­hug­mynd­irnar, Holta- og Urriða­foss­virkjun, yrðu einnig færðar úr bið­flokki í orku­nýt­ing­ar­flokk.

Tillagan var loks afgreidd á Alþingi í en horfið var frá því að færa neðri hug­mynd­irnar tvær í nýt­ing­ar­flokk. „Óhætt er að segja að til­lögur um flokkun Holta­virkj­unar og Urriða­foss­virkj­unar í nýt­ing­ar­flokk hafa vakið reiði í nær­sam­fé­lag­inu“ enda um að ræða „stórar virkj­un­ar­hug­myndir í byggð,“ sagði í meiri­hluta­á­liti umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis sem fjall­aði um þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una í vor. Í álit­inu sagði einnig að mik­il­vægt væri að horfa til neðri hluta Þjórsár „sem eina heild“ og því beint til ráð­herra og verk­efn­is­stjórnar 5. áfanga ramma­á­ætl­unar að horfa til „allra þriggja virkj­ana­kosta“ í neðri hluta Þjórsár við það mat.

Hvaða þýð­ingu þau orð hafa er algjör­lega óljóst á þessum tíma­punkti.

[adspot]

Hug­myndin um Hvamms­virkjun hefur ekki hugn­ast mörgu fólki í nágrenni Þjórsá. Heima­fólk hefur m.a. nefnt að með virkj­un­inni muni árnið­ur­inn við bæi þeirra þagna, niður sem umleikið hefur ver­öld þeirra og for­feðr­anna í aldir. Þá hafa þeir sagt að nóg sé komið af virkj­unum á þessu svæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvammsvirkjun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár