Hljótum að reyna að „vinna flauminn“ sem bráðnun jökla veldur

For­stjóri Lands­virkj­unar segir að fyr­ir­séð bráðnun jökla muni auka rennsli í ám á borð við Þjórsá og að „við hljótum að reyna að vinna hreina, græna orku úr þeim mikla flaumi“. Fyr­ir­tækið hefur nú sótt um virkj­un­ar­leyfi vegna Hvamms­virkj­unar.

Hvammsvirkjun í neðri hluta Þjórsár yrði um 93 MW að afli.
Hvamms­virkjun í neðri hluta Þjórsár yrði um 93 MW að afli. Mynd: Landsvirkjun

Lands­virkjun hefur lagt inn umsókn hjá Orku­stofnun um virkj­un­ar­leyfi vegna Hvamms­virkj­unar sem fyr­ir­huguð er í Þjórsá. Virkj­unin yrði átt­unda virkj­unin á vatna­sviði árinnar og þveráa hennar. Slíkt leyfi er for­senda þess að síðar verði hægt að óska eftir fram­kvæmda­leyfi til sveit­ar­fé­lag­anna Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps og Rangár­þings ytra. „Umsókn um virkj­un­ar­leyfi er því ein varðan á þeirri leið að nýta betur – og enn og aftur – gríð­ar­mikla ork­una í fall­vötnum þessa gjöf­ula svæðis,“ skrifar Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, í grein sem birt­ist á Vísi í morgun. Enn hafi hins vegar ekki verið tekin ákvörðun um hvort eða hvenær sótt verði um leyfi til að hefja fram­kvæmdir. „Þjórsá hefur gefið okkur orku sína allt frá því að Búr­fells­virkjun var reist þar fyrir hálfum sjötta ára­tug,“ rifjar Hörður upp.

„Fyrirséð er, að bráðnun jökla eykur rennsli í ám eins og Þjórsá, sem þegar er næst vatns­mesta á lands­ins,“ skrifar Hörður. „Við hljótum að reyna að vinna hreina, græna orku úr þeim mikla flaumi. Suð­ur­landið er sem fyrr vænsti kost­ur­inn til orku­vinnslu, enda er eft­ir­spurnin eftir orkunni mest á suð­vest­ur­hluta lands­ins og flutn­ings­kerfið til að koma orkunni á markað er þar tryggt og gott.“

[adspot]

Virkj­anir Lands­virkj­unar í Þjórsá sem Hörður nefnir eru á hálend­inu eða í jaðri þess. Hvamms­virkjun yrði hins vegar reist í blóm­legri byggð og stæði um fimmtán kíló­metrum neðan Búr­fells­stöðvar.

Fram­kvæmda­svæðið myndi afmarkast af land­svæði norðan og vestan við Skarðs­fjall að far­vegi Þjórsár. Það yrði innan sveit­ar­fé­lag­anna Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps og Rangár­þings ytra en flest mann­virki eru stað­sett í því síð­ar­nefnda.

Virkj­unin myndi nýta 32 metra fall Þjórsár ofan við bæinn Haga. Stífla yrði gerð í ánni um 400 metrum fyrir ofan hina frið­uðu og sér­stæðu Viðey og ofan hennar yrði til fjög­urra fer­kíló­metra inn­takslón. Uppsett afl yrði 93 MW.

Athug­anir á hag­kvæmni virkj­ana í neð­an­verðri Þjórsá hófust árið 1999. Ýmist tvær eða þrjár virkj­anir voru þá nefndar; Núps­virkjun og Urriða­foss­virkjun eða Hvamms-, Holta- og Urriða­foss­virkjun. Árið 2003 kom út skýrsla um mat á umhverf­is­á­hrifum allra þess­ara kosta. Metin voru áhrif virkj­unar við Núp í einu skrefi (Núps­virkjun) og í tveimur skrefum (Holta- og Hvamms­virkjun).

Hugmyndir á ís um hríð

Mikil and­staða var við þessi áform og að auki breytt­ust ýmsar for­sendur í þjóð­fé­lag­inu sem urðu til þess að Lands­virkjun setti þau á ís. Nokkru síðar hófst vinna við áætlun um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða, svo­nefnda ramma­á­ætlun, þar sem virkj­ana­kostir voru flokk­aðir í orku­nýt­ingar-, bið- og vernd­ar­flokk. Árið 2013 var tekin ákvörðun á Alþingi um að Hvamms-, Holta- og Urriða­foss­virkjun færu í bið­flokk, m.a. vegna óvissu um áhrif á lax­fiska í Þjórsá.

En tveimur árum síðar, í byrjun sum­ars 2015, sam­þykkti Alþingi þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að færa Hvamms­virkjun eina og sér í orku­nýt­ing­ar­flokk. Og í nýj­ustu til­lög­unni, sem orðin er tæp­lega fimm ára, er lagt til að hinar tvær virkj­ana­hug­mynd­irnar, Holta- og Urriða­foss­virkjun, verði einnig færðar úr bið­flokki í orku­nýt­ing­ar­flokk. Sú til­laga, sem fyrst var lögð fram á Alþingi haustið 2016, bíður enn afgreiðslu Alþingis.

[adspot]

Þar með yrðu allar virkj­an­irnar, sem svo umdeildar voru í upp­hafi ald­ar­innar, aftur komnar á dag­skrá. Sam­an­lagt afl þeirra yrði um 290 MW en til sam­an­burðar er Búr­fells­stöð 270 MW.

Skipu­lags­stofnun komst að því í úrskurði sínum árið 2015 að end­ur­skoða skyldi umhverf­is­á­hrif Hvamms­virkj­unar að hluta en mats­skýrsla Lands­virkj­unar vegna áfor­manna var þá orðin meira en ára­tugar gömul.

Álit hennar á þeirri end­ur­skoðun, sem sneri ein­göngu að áhrifum á lands­lag, ásýnd lands, ferða­þjón­ustu og úti­vist, lá fyrir árið 2018 og í því kom fram að fram­kvæmda­þættir virkj­un­ar­innar, sem saman stæðu af stíflu, stöðv­ar­húsi, varn­ar­görðum, vegum, efn­is­töku, lóni í far­vegi Þjórsár og fleiru, myndu einir sér og til sam­ans verða „mjög umfangs­miklir og ljóst að ásýnd og yfir­bragð á stóru svæði kæmi til með að taka miklum breyt­ingum með til­komu virkj­un­ar­innar“. Áhrifa­svæði fyr­ir­hug­aðra fram­kvæmda ein­kenn­ist af land­bún­aði „og að mestu ósnort­inni nátt­úru og virkj­unin er fyr­ir­huguð í mik­illi nálægð við byggð á svæði“. Taldi stofn­unin að áhrif Hvamms­virkj­unar á lands­lag yrðu veru­lega nei­kvæð og að mjög margir yrðu fyrir „nei­kvæðum áhrifum vegna ásýndar- og yfir­bragðs­breyt­inga“. Þá taldi stofn­unin enn­fremur að virkj­un­ar­fram­kvæmd­irnar væru lík­legar til að hafa tals­verð nei­kvæð áhrif á úti­vist og ferða­þjón­ustu.

Virkjanaþrennan

Íbúar við Þjórsá hafa í gegnum árin lýst yfir áhyggjum sínum vegna áfor­manna enda yrði virkj­unin í tún­fæti bæja. Þá myndi hún kaf­færa flúðum og niður árinnar, sem fólk á svæð­inu hefur alist upp við, þagna.

Hörður sagði í við­tali við mbl.is haustið 2017 að Hvamms­virkjun væri algjör­lega óháð hinum tveimur virkj­ana­hug­mynd­unum. Yrði hún að veru­leika þýddi það ekki að Holta- og Urriða­foss­virkjun myndu fylgja sjálf­krafa í kjöl­farið. „Hver þess­ara þriggja virkj­ana einar og sér eru arð­bærir kostir, Urriða­foss hvað arð­bærastur,“ sagði Hörður. „En sú virkjun yrði alltaf síð­ust, m.a. vegna umhverf­is­á­hrifa. En það er ekki þannig að Hvamms­virkjun myndi á ein­hvern hátt kalla á að ráð­ist yrði í hinar tvær.“

Lands­virkjun er með að minnsta kosti sextán virkj­ana­kosti til skoð­unar, ýmist stækk­anir á eldri virkj­unum eða nýjar. Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar eru átta hug­myndir Lands­virkj­unar í nýt­ing­ar­flokki og fimm í bið­flokki. Að auki áformar fyr­ir­tækið stækkun þriggja virkj­ana á hálend­inu; Hraun­eyja­foss­stöð, Vatns­fells­stöð og Sig­öldu­stöð. Með því að bæta við einni vél í þeim öllum yrði afl þeirra sam­an­lagt aukið um 210 MW án þess að til stækk­unar lóna, breyt­inga á stíflum og leng­ingu aðrennslis- og frá­rennsl­is­skurða þyrfti að koma.

Í til­lögu­drögum verk­efn­is­stjórnar fjórða áfanga ramma­á­ætl­unar, sem birt voru í vor, eru allar stækk­an­irnar flokk­aðar í orku­nýt­ing­ar­flokk.

Fjölga þarf körfunum

Í grein sinni á Vísi fjallar Hörður einnig um vind­orku og segir nýt­ingu hennar mik­il­væga til að hafa ekki „öll egg í sömu körfu. Ef við værum byrjuð að fanga vind­inn til orku­vinnslu í umtals­verðu magni myndi hann skjóta styrkri stoð undir afhend­ingar­ör­yggi raf­orku. Vind­ur­inn spyr ekk­ert um hita­stig á fjöllum og rennsli í ám. Við getum gengið að honum nokkuð vísum stóran hluta árs­ins, mörgum vissu­lega til mæðu en grænni orku­vinnslu til fram­dráttar“.

Áætlanir Lands­virkj­unar um vind­orku­verið Búr­fellslund á Þjórs­ár­svæð­inu, innan sveit­ar­fé­lags­ins Rangár­þings ytra, eru að sögn Harðar til­búnar. Til að koma til móts við athuga­semdir og ábend­ingar við Búr­fellslund sem komu fram í umhverf­is­mati og 3. áfanga ramma­á­ætl­unar end­ur­hann­aði Lands­virkjun hið áform­aða vind­orku­ver, stærð þess og stað­setn­ingu. Uppsett afl þess, er nú áætlað 120 MW og vind­myll­urnar um 30 í stað allt að 80.

Sá virkj­un­ar­kostur var einn þeirra sem verk­efn­is­stjórn 4. áfanga ramma­á­ætl­unar fjall­aði um og setti í bið­flokk í til­lögu­drögum sínum í vor. Rökin eru helst þau að virkj­unin myndi hafa mikil áhrif á mörg ferða­svæði. Í umfjöllun fag­hóps sem hafði það hlut­verk að meta áhrif virkj­ana­kosta á ferða­mennsku og úti­vist kemur fram að Búr­fellslundur yrði á ferða­svæð­unum Þjórs­ár­dal og Þór­is­vatni en um það liggi ferða­leiðir inn á tvö mik­il­væg hálend­is­svæði, þ.e. Fjalla­bak og Sprengisands­leið. „Áhrifa­svæði Búr­fellslundar teygir sig því austur að Skaftá með þeim vin­sælu ferða­leiðum sem liggja um svæðið en einnig norður Sprengisand þar sem ferða­menn á leið um hann kæmu til með að sjá vind­myll­urnar í upp­hafi eða enda ferðar.“ Fag­hóp­ur­inn sagði að þótt vind­orku­verið yrði vissu­lega á svæði sem nú þegar er mikið nýtt til orku­fram­leiðslu séu slíkar virkj­anir „óum­flýj­an­lega áber­andi í lands­lag­inu“ og vind­myll­urnar myndu sjást langt að. Því megi ætla að vind­orku­ver „af þeirri stærð­argráðu sem hér um ræðir hafi mun meiri áhrif á ásýnd svæð­is­ins en núver­andi mann­virki og geri umhverfið enn minna nátt­úru­legt í hugum ferða­manna en það er nú“.

Þar með dragi enn frekar úr nátt­úru­upp­lifun ferða­mann­anna og upp­lifun þeirra á lands­lag­inu og svæð­inu í heild verður síðri.

Ekki í farleið fugla

Í grein Harðar á Vísi í morgun kemur fram að ítar­legar rann­sóknir hafi verið gerðar á hinu fyr­ir­hug­aða fram­kvæmda­svæði Búr­fellslundar árum saman. „Við vitum til dæmis, að vind­myllur í Búr­fellslundi myndu ekki standa í far­leið fugla og við vitum að ef þær væru fjar­lægðar síðar væru lítil ef nokkur ummerki um að þarna hefði nokkurn tím­ann staðið afl­stöð. Því miður verður hins vegar enn bið á að við getum nýtt vind­inn, þar sem lög­gjaf­ar­valdið hefur ekki náð að koma þeim málum í við­un­andi far­veg.“

Sumir íbúar við Þjórsá sem og sam­tök á borð við Land­vernd sem gagn­rýnt hafa hug­myndir um frek­ari upp­bygg­ingu nýrra virkj­ana á Þjórs­ár­svæð­inu, hafa m.a. lagt áherslu á að ekki verði farið í slíkar fram­kvæmdir nema að brýn þörf sé á, að orkan verði ekki notuð til stór­iðju, líkt og um 80 pró­sent allrar orku sem fram­leidd er í land­inu nú þegar, heldur til upp­bygg­ingar í nær­sveitum virkj­an­anna.

Nauðsynleg orkuskipti

Hörður skrifar í grein sinni að fáar þjóðir séu jafn vel í stakk búnar til að „takast á við nauð­syn­leg orku­skipti“ og Íslend­ingar. „Við getum tekið risa­skref í lofts­lags­málum með því að knýja allan bíla­flota okkar með grænu raf­magni og við munum áreið­an­lega knýja öll stærri far­ar­tæki, flutn­inga­bíla og flug­vélar, með raf­elds­neyti innan nokk­urra ára.“

Einnig skrifar hann að ekki eigi að taka ákvarð­anir um orku­vinnslu nema að mjög vel rann­sök­uðu máli en „um leið verðum við að horfast í augu við að aukn­ing í vinnslu grænu raf­orkunnar okkar er nauð­syn­leg til þess að ná þeim árangri sem við höfum skuld­bundið okkur til þess að ná í loft­lags­málum og á sama tíma yrðu til áhuga­verð, vel launuð störf og aukin efna­hags­leg hag­sæld. Vinnum græna orku, fyrir fram­tíð­ina“.

Umdeilt er hins vegar hvort virkja þurfi sér­stak­lega til orku­skipt­anna, að minnsta kosti í bráð. Þannig hefur Bjarni Bjarna­son, for­stjóri Orku­veit­unnar, sagt að ekki þurfi að virkja næstu tíu árin til að raf­væða sam­göngur. Orku­veitan spái því að raf­bílar verði orðnir 100 þús­und árið 2030. Bjarni sagði í haust að um 7,5-8 pró­sent af öllu raf­magni sem hægt væri að vinna árlega í land­inu væri óselt. Það myndi duga til að knýja allan einka­bíla­flota lands­ins og vel það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvammsvirkjun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár