Ný virkjun í neðri hluta Þjórsár í forgangi hjá Landsvirkjun

Lands­virkjun hefur sett fimm virkj­ana­hug­myndir í for­gang. Ein þeirra er Hvamms­virkjun í neðri hluta Þjórsár. Tvær virkj­anir til við­bótar eru svo fyr­ir­hug­aðar í ánni. Fyr­ir­tækið áformar auk þess stækkun þriggja virkj­ana á hálend­inu.

Hvammsvirkjun er fyrirhuguð í neðri hluta Þjórsár. Myndað yrði lón í farvegi árinnar.
Hvamms­virkjun er fyr­ir­huguð í neðri hluta Þjórsár. Myndað yrði lón í far­vegi árinnar. Mynd: Landsvirkjun

Lands­virkjun er með að minnsta kosti sextán virkj­ana­kosti til skoð­unar, ýmist stækk­anir á eldri virkj­unum eða nýjar. Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar eru átta hug­myndir Lands­virkj­unar í nýt­ing­ar­flokki og fimm í bið­flokki. Að auki áformar fyr­ir­tækið stækkun þriggja virkj­ana á hálend­inu og hafa gögn þar um verið send verk­efn­is­stjórn fjórða áfanga áætl­un­ar­innar til með­ferðar.

Af mögu­legum fram­tíð­ar­kostum hefur Lands­virkjun skil­greint fimm for­gangs­verk­efni og eru þeir lík­legir sem næstu virkj­un­ar­fram­kvæmdir fyr­ir­tæk­is­ins. Í nýrri árs­skýrslu fyr­ir­tæk­is­ins kemur fram að í for­gang hafi verið settar hug­myndir að Hvamms­virkjun í Þjórsá, virkj­anir í Blöndu­veitu, end­ur­hönnun Búr­fellslundar, aflaukn­ing Kröflu- og Þeista­reykja­virkj­ana og stækkun Þeista­reykja­virkj­unar.

Vilja stækka þrjár virkjanir á hálendinu

Orku­stofnun hefur sent verk­efn­is­stjórn fjórða áfanga ramma­á­ætl­unar um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða tólf virkj­ana­hug­myndir sem ekki hafa áður verið teknar til með­ferðar. Um er að ræða eina jarð­varma­virkjun, fimm vatns­afls­virkj­anir og sex vind­orku­ver. Stækkun þriggja virkj­ana Lands­virkj­unar eru meðal þess­ara hug­mynda. Stofn­unin hyggst senda verk­efn­is­stjórn­inni fleiri nýjar virkj­ana­hug­myndir í apríl.

Sam­an­lagt upp­sett afl sjö virkj­ana Lands­virkj­unar á Þjórsár- og Tungna­svæð­inu er 1.037 MW. Fyr­ir­tækið áformar nú að stækka þrjár þeirra; Hraun­eyja­foss­stöð, Vatns­fells­stöð og Sig­öldu­stöð. Með því að bæta við einni vél í þeim öllum yrði afl þeirra sam­an­lagt aukið um 210 MW án þess að til stækk­unar lóna, breyt­inga á stíflum og leng­ingu aðrennslis- og frá­rennsl­is­skurða þyrfti að koma. Þá yrðu teng­ingar við flutn­ings­kerfið einnig óbreyttar sem og vegir um svæðin. Stöðvar- og inn­taks­hús yrðu hins vegar stækkuð og þrýsti­pípum bætt við.

Lands­virkjun rekur nítján virkj­anir um allt land og er upp­sett afl þeirra 2.155 MW. Sú stærsta, Fljóts­dals­stöð (Kára­hnjúka­virkjun) er 690 MW, en sú minnsta er vinda­fls­stöðin Hafið, 1,9 MW. Um 80% orku­fram­leiðslu fyr­ir­tæk­is­ins er seldur til orku­freks iðn­aðar og eru stærstu við­skipta­vin­irnir m.a. Alcoa, Elkem, Norðurál, Rio Tinto og PCC BakkiSilicon.

[links]Sala Lands­virkj­unar til gagna­vera jókst um 50% á milli áranna 2018 og 2019. Við­skipta­vinir fyr­ir­tæk­is­ins í þeim geira eru nú fjórir: Reykja­vík DC, Etix Everywhere Iceland, Advania Data Centers og Verne Global. Í lok síð­asta árs var svo skrifað undir nýjan raf­magns­samn­ing upp á 12 MW við Reykja­vík DC, nýtt gagna­ver í Reykja­vík í eigu Opinna kerfa, Sýnar, Reikni­stofu bank­anna og Korpu­torgs.

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar, sem byggir á nið­ur­stöðum loka­skýrslu verk­efn­is­stjórnar, og til stendur að leggja fram á Alþingi til afgreiðslu í þriðja sinn nú á vor­þingi, eru þrettán virkj­ana­hug­myndir Lands­virkj­unar í orku­nýt­ingar- eða bið­flokki. Flestar myndu nýta vatns­afl en sumar jarð­hita eða vind­orku. Í nýt­ing­ar­flokki eru átta hug­myndir og sam­an­lagt afl þeirra áætlað 706 MW. Í bið­flokki eru fimm fyr­ir­hug­aðar virkj­anir og sam­an­lagt afl þeirra 522 MW.

Ásýnd tæki miklum breytingum

Lagt er til að þrjár hug­myndir að nýjum virkj­unum í Þjórsá fari í orku­nýt­ing­ar­flokk: Hvamms­virkjun, Urriða­foss­virkjun og Holta­virkjun. Allar eru þær í byggð og allar voru þær í bið­flokki ann­ars áfanga áætl­un­ar­innar. Hvamms­virkjun var hins vegar færð í nýt­ing­ar­flokk með sér­stakri þings­á­lyktun um mitt ár 2015.

Í áliti Skipu­lags­stofn­unar frá árinu 2018 vegna frum­mats­skýrslu um Hvamms­virkjun sagði að um væri að ræða fram­kvæmd sem sam­an­stæði af mörgum fram­kvæmda­þáttum, s.s. stíflu­mann­virkjum, varn­ar­görðum, vegum og lóni í far­vegi Þjórsár. Fram kom að ljóst væri að ásýnd og yfir­bragð á stóru svæði komi til með að taka miklum breyt­ingum með til­komu Hvamms­virkj­unar. Áhrifa­svæðið ein­kenn­ist af land­bún­aði og að mestu ósnort­inni nátt­úru. Þá væri virkj­unin fyr­ir­huguð í mik­illi nálægð við byggð.

Sam­an­lögð afl­geta virkj­ana­þrenn­unnar yrði 290 MW. Yrðu þær allar að veru­leika myndu virkj­anir Lands­virkj­unar á Þjórsár- og Tungna­svæð­inu verða tíu.

Meðal ann­arra virkj­ana­hug­mynda Lands­virkj­unar sem lagt er til að fari í nýt­ing­ar­flokk er Skrokkalda, virkjun á hálend­inu milli Hofs­jök­uls og Vatna­jök­uls. Fleiri virkj­ana­kostir fyr­ir­tæk­is­ins eru einnig á hálend­inu, s.s. 150 MW jarð­varma­virkjun við Hágöngur. Sú hug­mynd er í bið­flokki.

Þá er lagt til að 26 virkj­ana­hug­myndir fari í vernd­ar­flokk ramma­á­ætl­unar, þar með talið hug­myndir að fjórum virkj­unum í Skjálf­anda­fljóti. Einnig er lagt til að Kjalöldu­veita, hug­mynd Lands­virkj­unar að virkjun í efri hluta Þjórsár, fari í þann flokk.

Heimilt að hafa nýjar virkjanir innan þjóðgarðs

Samhliða þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að ramma­á­ætlun hyggst umhverf­is­ráð­herra leggja fram á vor­þingi frum­varp um hálend­is­þjóð­garð. Í drögum frum­varps­ins er lögð til ákveðin stefna fyrir virkj­ana­kosti innan þess svæðis sem til stendur að frið­lýsa. Samkvæmt þeim verður heim­ilt að ráð­ast í þær virkj­ana­hug­myndir sem falla munu í nýt­ing­ar­flokk í 3. áfanga nú að und­an­gengnu mati á umhverf­is­á­hrifum og lög­bundnum leyf­is­veit­ingum, þó með þeim for­merkjum að þær virkj­anir hafi lág­marks rask í för með sér og lág­marks sýni­leika á yfir­borði.

Að sama skapi verður sam­kvæmt drög­unum leyfi­legt að þær hug­myndir sem enda í bið­flokki nú geti verk­efna­stjórn tekið til skoð­unar í næstu áætl­unum sínum.

„Við erum með þessar leik­reglur sem ramma­á­ætl­unin er og Alþingi hefur sett,“ sagði Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, sagði í sam­tali við Kjarnann í jan­úar. „Við erum sam­kvæmt henni að flokka í nýt­ingu og vernd og svo í bið þær hug­myndir sem við þurfum frek­ari upp­lýs­ingar um. Við þurfum hins vegar þegar um þjóð­garð er að ræða að draga ein­hverja línu í sand­inn. Við getum ekki til fram­tíðar litið alltaf verið að skoða nýja virkj­ana­kosti innan þessa svæðis. Þess vegna er í frum­varps­drög­unum gert ráð fyrir því að lína verði dregin í sand­inn við þennan 3. áfanga ramma­á­ætl­unar[.]“

Ekki allir virkjanakostir verða að veruleika

Gangi allar þær hug­myndir Lands­virkj­unar eftir, sem lagt er til að verði í nýt­ingar- eða bið­flokki 3. áfanga ramma­á­ætl­unar sem og stækk­anir virkj­ana sem verk­efn­is­stjórn fjórða áfanga hefur nú fengið til umfjöll­unar, myndi virkj­unum fyr­ir­tæk­is­ins fjölga um þrettán og þrjár eldri stækka og upp­sett afl þar með aukast sam­tals um rúm­lega 1.400 MW.

Í nýrri árs­skýrslu Lands­virkj­unar kemur fram að til að mæta „orku­þörf fram­tíð­ar­innar á hverjum tíma sé fjöl­breytt úrval virkj­un­ar­kosta til skoð­unar“. Tekið er fram að ein­ungis hluti þeirra kosta sem séu skoð­aðir verði að veru­leika.

Einnig er bent á að und­ir­bún­ingur virkj­ana sé langt ferli sem spanni oft mörg ár og jafn­vel ára­tugi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár