Katrín vildi Skrokkölduvirkjun „út fyrir sviga“

Þingmenn Vinstri grænna gerðu ýmsar athuga­semdir við þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að ramma­á­ætlun er hún var lögð fram árin 2016 og 2017. Nú ætlar umhverf­is­rá­herra að leggja til­lög­una fram í óbreyttri mynd.

Katrín Jakobsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Guðmundur Ingi Guðbrandsson og Svandís Svavarsdóttir höfðu ýmsar athugasemdir við tillögu að rammaáætlun er hún var lögð fram á þingi 2016 og 2017.
Katrín Jak­obs­dóttir, Stein­grímur J. Sig­fús­son, Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son og Svandís Svav­ars­dóttir höfðu ýmsar athuga­semdir við til­lögu að ramma­á­ætlun er hún var lögð fram á þingi 2016 og 2017. Mynd: Samsett mynd

Þingmenn Vinstri grænna gerðu ýmsar athuga­semdir við þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að ramma­á­ætlun er hún var lögð fram árin 2016 og 2017. Bentu þeir á að „alger­lega frá­leitar“ tveggja til þriggja ára­tuga gamlar virkj­un­ar­hug­myndir væri m.a. þar að finna sem og hug­mynd að nýrri virkjun, Skrokköldu, sem yrði innan marka hálend­is­þjóð­garðs sem flokk­ur­inn hafði lagt til að komið yrði á lagg­irnar. „Það fer engan veg­inn saman,“ sagði Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Katrín Jak­obs­dóttir velti því fyrir sér hvort Skrokköldu ætti ekki að taka út fyrir sviga, setja í bið­flokk, á meðan „þau áform væru til skoð­unar að stofna mið­há­lend­is­þjóð­garð“.

Vildi allar virkjanahugmyndir á hálendi í verndarflokk

Í umsögn Land­verndar um til­lög­una árið 2017 lagði Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, þá fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna, sér­staka áherslu á að allar virkj­un­ar­hug­myndir inni á mið­há­lendi Íslands færu í vernd­ar­flokk og að þar yrði stofn­aður þjóð­garður. Þá taldi hann ekki nægar for­sendur fyrir því að flokka svo margar virkj­un­ar­hug­myndir í orku­nýt­ing­ar­flokk líkt og til­lagan gerir ráð fyrir.

Guð­mundur Ingi er nú orð­inn umhverf­is­ráð­herra og ætlar að leggja þessa sömu til­lögu fram á þingi í febr­úar. Þar sem hún verður lögð fram í óbreyttri mynd fer hún ekki í umsagn­ar­ferli á nýjan leik. Í þeim mán­uði gerir hann einnig ráð fyrir því að leggja fram frum­varp um stofnun hálend­is­þjóð­garðs.

Tillagan lögð fram í þriðja sinn

Tillaga til þings­á­lykt­unar um áætlun um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða, þriðji áfangi svo­nefndrar ramma­á­ætl­unar, var fyrst lögð fram á þingi árið 2016 er Sigrún Magn­ús­dóttir, Fram­sókn­ar­flokki, var umhverf­is­ráð­herra. Tillagan var sam­hljóma þeirri nið­ur­stöðu sem verk­efna­stjórn áætl­un­ar­innar hafði sett fram. Sigrún mælti fyrir til­lög­unni 13. sept­em­ber 2016 og var henni dag­inn eftir vísað til umfjöll­unar í atvinnu­vega­nefnd.

[links]Sigrún sat í rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem var mynduð eftir þing­kosn­ingar árið 2013. Í kjöl­far Panama-skjal­anna sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra af sér, og þing­kosn­ingum sem fara áttu fram vorið 2017 var flýtt til hausts­ins 2016. Rúmum mán­uði eftir að Sigrún mælti fyrir til­lög­unni var því kosið og í kjöl­farið mynd­uðu Sjálf­stæð­is­flokkur, Viðreisn og Björt fram­tíð rík­is­stjórn.

Í lok febr­úar árið 2017 var til­lagan svo end­ur­flutt af Björt Ólafs­dóttur, Bjartri fram­tíð, sem þá var umhverf­is­ráð­herra. Hún var rædd og svo vísað til ann­arrar umræðu og til umfjöll­unar í umhverfis- og sam­göngu­nefnd.

Úr stjórnarandstöðu í stjórn

Rík­is­stjórnin sem Björt sat í var hins vegar ekki lang­líf. Hún sprakk í sept­em­ber þetta sama ár í kjöl­far mála vegna upp­reistar æru kyn­ferð­is­brota­manna. Kosn­ingar voru haldnar 28. októ­ber. Eftir þær var núver­andi rík­is­stjórn VG, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks mynduð og Guð­mundur Ingi tók við sem umhverf­is­ráð­herra.

Þingmenn VG og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Land­verndar, sem höfðu haft marg­vís­legt út á til­lögu að ramma­á­ætlun að setja, voru þar með komin í nýja stöðu: Orðnir ráð­herrar og þing­menn í rík­is­stjórn.

Hálendisvirkjun og þrenna í Þjórsá í nýtingarflokk

Í ramma­á­ætlun eru virkj­un­ar­kostir, sam­kvæmt lista Orku­stofn­unar, flokk­aðir í nýt­ing­ar­flokk, bið­flokk eða vernd­ar­flokk, allt eftir því hvort lagt er til að við­kom­andi land­svæði, þar sem virkj­un­ar­kost­inn er að finna, verði mögu­lega tekið undir virkj­un­ar­fram­kvæmd, verði verndað gegn orku­vinnslu eða hvort skoða þurfi við­kom­andi kost og land­svæði betur.

Núgild­andi áætlun, 2. áfangi, var sam­þykkt á Alþingi í jan­úar árið 2013. Verk­efna­stjórn, sem umhverf­is­ráð­herra skipar, hefur umsjón með vinnu að áætl­un­inni, sækir ráð­gjöf til fag­hópa og leitar álits hags­muna­að­ila. Verk­efna­stjórn 3. áfanga var skipuð í mars 2013 og end­an­legar til­lögur hennar, um flokkun 82 virkj­ana­kosta, voru afhentar umhverf­is­ráð­herra í ágúst 2016. Síðan eru liðin rúm­lega þrjú ár og sjö ár eru síðan núgild­andi áfangi var sam­þykktur.

Samkvæmt til­lög­unni, sem nú stendur til að leggja fram í þriðja sinn, er lagt til að Skrokkalda, virkjun sem Lands­virkjun fyr­ir­hugar að reisa á mið­há­lend­inu, fari í nýt­ing­ar­flokk. Einnig er lagt til að tvær nýjar virkj­anir í Þjórsá, Urriða­foss­virkjun og Holta­virkjun, fari í þann flokk, svo dæmi sé tekið. Þá eru í bið­flokki hug­myndir á borð við virkjun Hafra­lónsár í Þistil­firði og Hofsár í Vopna­firði. Um allar þessar hug­myndir höfðu þing­menn VG ýmsar efa­semdir er þeir voru í stjórn­ar­and­stöðu.

Katrín: Eðlilegt að setja Skrokköldu í biðflokk

Katrín Jak­obs­dóttir, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hafði m.a. áhyggjur af Skrokköldu­virkjun. Spurði hún bæði Sigrúnu og Björt út í hvernig þeim fynd­ist sú virkjun passa við hug­myndir um hálend­is­þjóð­garð. Sagðist hún helst vilja sjá að Skrokkalda yrði „tekin út fyrir sviga“ á meðan áform um þjóð­garð væru til skoð­unar.

„Því hefur verið haldið fram í umræð­unni að umhverf­is­á­hrifin af Skrokköldu­virkjun séu óveru­leg þegar kemur að því hvernig hún fellur að lands­lagi og öðru slíku,“ sagði Katrín úr ræðu­stól Alþingis í mars 2017. „En það breytir því ekki að hún er innan þeirra marka þar sem við höfum viljað sjá mið­há­lend­is­þjóð­garð. [...] Skrokkalda er innan þeirrar línu. Ég hefði helst viljað sjá, sér­stak­lega í ljósi stjórn­ar­sátt­mál­ans þar sem talað er fyrir vernd mið­há­lend­is­ins, sem er mik­il­væg yfir­lýs­ing, að Skrokkalda væri nú tekin út fyrir sviga út frá þeim sjón­ar­miðum að eðli­legt væri að setja hana í bið á meðan þau áform væru til skoð­unar að stofna mið­há­lend­is­þjóð­garð.“

Í annarri ræðu ítrek­aði hún þessi sjón­ar­mið sín og sagði: „Skrokkalda og mála­miðl­anir. Vissu­lega þekkjum við þær öll. En þá má spyrja, í ljósi yfir­lýs­inga um friðun og vernd mið­há­lendis, sem er auð­vitað gríð­ar­lega stór póli­tísk stefnu­mörkun, hvort ekki sé eðli­legt, því að það er eng­inn að leggja til, eða ég var að minnsta kosti ekki að gera það endi­lega, að setja Skrokköldu í vernd­ar­flokk, en ég velti fyrir mér hvort þau póli­tísku stefnumið sem hafa verið viðruð séu ekki nægj­an­leg ástæða til þess að Skrokkalda sé sett í bið­flokk og hún metin út frá því hver nið­ur­staðan verður af þeirri stefnu­mótun sem boðuð hefur verið. Að sjálf­sögðu þurfum við líka að horfa til þess [...] að nýt­ing­ar­flokk­inn getum við kallað að ein­hverju leyti óaft­ur­kræfan, sem ekki á við um aðra flokka í þessu.“

Árið 2016 í umræðu um til­lög­una sem Sigrún mælti fyrir benti Katrín á að vinna við að skoða stofnun hálend­is­þjóð­garðs væri hafin í umhverf­is­ráðu­neyt­inu. „En segjum sem svo að hæst­virtur ráð­herra kom­ist á þá skoðun, þegar nefnd­ar­vinnu í hennar ráðu­neyti er lokið, um að hér eigi að setja á lagg­irnar þjóð­garð. [...] Eigum við þá á sama tíma að ákveða að setja þessa virkjun í nýt­ing­ar­flokk og hvernig fer það saman við þá vinnu?“

Svandís: Skrokkalda í nýtingarflokki truflar áform um hálendisþjóðgarð

Svandís Svav­ars­dóttir velti því sama fyrir sér árið 2017. „ Ég held að það hljóti að vera partur af því sem þingið tekur til skoð­unar, að minnsta kosti að það sé ekki þannig að við missum, ef svo má að orði kom­ast, Skrokköldu í nýt­ing­ar­flokk sem verður þá til þess að trufla áform um mið­há­lend­is­þjóð­garð.“

Sagði Svandís að það væri hennar skoðun að það væri „algjör­lega nóg komið af nýt­ingu nátt­úru­svæða í þágu orku­vinnslu, það er það.“

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir sagði svo m.a.: „Og það er líka mjög áhuga­vert sem hátt­virtur þing­maður Svandís Svav­ars­dóttir benti á rétt áðan varð­andi Skrokköldu og fyrri fyr­ir­ætl­anir rík­is­stjórn­ar­innar um að hefja vinnu við und­ir­bún­ing­inn á vernd mið­há­lend­is­ins. Það fer engan veg­inn saman.“

Svandís vildi virkjanir Þjórsár í biðflokk

Árið 2012, er Svandís var umhverf­is­ráð­herra, var lögð fram til­laga að 2. áfanga ramma­á­ætl­unar. Í henni var ekki að fullu farið eftir til­lögum verk­efn­is­stjórnar og nokkrar virkj­ana­hug­myndir færðar úr nýt­ing­ar­flokki í bið­flokk, þeirra á meðal Skrokkalda og þrjár virkj­anir í neðri hluta Þjórsár. Tillagan var sam­þykkt en tveimur árum síðar lagði Sigurður Ingi Jóhanns­son, sem þá var orð­inn umhverf­is­ráð­herra, til að Hvamms­virkjun í Þjórsá færi í nýt­ing­ar­flokk og var það sam­þykkt.

Í umræðum um ramma­á­ætlun á þing­inu 2017 velti Svandís líka upp stórum sið­ferði­legum spurn­ingum og vitn­aði til orða sam­flokks manns síns, Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, hvort núlif­andi kyn­slóð hefði yfir höfuð umboð eða leyfi til þess að taka ákvarð­anir um nýt­ingu langt fram í tím­ann. „Erum við kyn­slóðin sem tökum okkur bæði það bessa­leyfi að ryðja íslensku sam­fé­lagi fram af bjarg­brún­inni í sögu­legu efna­hags­hruni og takast á við öll þau boða­föll sem því fylgdi og taka svo líka bara landið eins og það leggur sig og leggja rúðu­strikað blað yfir það og ákveða hvað má vernda og hvað á ekki að vernda? Við tökum býsna mikið til okkar, okkar kyn­slóð. Ég held að það sé mik­il­vægt fyrir okkur að íhuga hvað í því felst.“

Steingrímur: Gamlar og fráleitar hugmyndir

Stein­grímur J. Sig­fús­son hafði margt út á til­lög­una að setja í ræðu sem hann flutti. Helst var það bið­flokk­ur­inn sem hann gerði athuga­semdir við. „[É]g er afar ósáttur við fram­göngu Orku­stofn­unar hvað varðar við­leitni til að troða eig­in­lega öllum mögu­legum, hugs­an­legum virkj­un­ar­kostum inn í vinnu verk­efn­is­stjórnar, sem að mínu mati eiga þangað ekk­ert erindi. [...] Það er á grund­velli til­lagna frá Orku­stofnun sem þar eru t.d. inni í bið­flokknum að mínu mati alger­lega frá­leitar tveggja til þriggja ára­tuga gamlar virkj­un­ar­hug­myndir, eins og [...] virkjun Hafra­lónsár [...] sem eyði­leggur fjórar lax­veiðiár í einu til að skafa upp ein 20–30 mega­vött með skurðum og lónum þvert yfir heiðar. Hofs­ár­virkjun, hvað eru menn að pæla? [...] Hvernig dettur mönnum þetta í hug, að vera þarna undir með Hofsá, eina mestu perlu lands­ins í hópi bergvatnsáa og lax­veiðiáa, Vatns­dalsá og Hafra­lónsá.“ Sagði hann verk­efn­is­stjórn­ina sem „betur fer“ hafa sett þessar hug­myndir í bið­flokk „en það á ekki einu sinni heima þar því að þetta eru perlur sem á að láta í friði.“

Taldi virkjarnir í Þjórsá hafa veruleg áhrif og röskun í för með sér

En svo eru aðrir hlutir sem „eru manni þung­bærir,“ sagði Stein­grímur og nefndi þá virkj­anir í Þjórsá og Skrokköldu. „Það við­kvæma við [Skrokköldu] er hvað hún er langt inni í land­inu, inni á sjálfu mið­há­lend­inu og kemur þar með beint inn í hug­myndir um stóran og mynd­ar­legan íslenskan mið­há­lend­is­þjóð­garð.“

Þá taldi hann „alger­lega ótíma­bært“ að færa Urriða­foss­virkjun og Holta­virkjun úr bið í nýt­ing­ar­flokk. Hafði hann sér­stakar áhyggjur af laxa­stofn­inum sem þar væri að finna og sagði frek­ari rann­sókna þörf. Hann nefndi einnig að virkj­an­irnar myndu líka hafa veru­leg áhrif og röskun í för með sér í byggð, í nærum­hverf­inu sem og mikil félags­leg og menn­ing­ar­leg áhrif. „Ég tel mjög sterk rök fyrir því að þessar virkj­anir í neðri hluta Þjórsár, ef við gefum okkur að Hvamms­virkjun sé afgreidd með síð­ustu afgreiðslu á ramma­á­ætlun, að hinar tvær þá að minnsta kosti færu í bið en helst auð­vitað allar þrjár.“

Guðmundur Ingi: Ómetanleiki hálendis

Guð­mundur Ingi, núver­andi umhverf­is­ráð­herra, skrif­aði eins og fyrr segir undir umsögn Land­verndar um til­lögur að ramma­á­ætlun árið 2017. Þar sagði m.a. um Skrokköldu og stækkun Blöndu­virkj­unar: „Virkj­un­ar­hug­mynd­irnar eru inn á mið­há­lend­inu og virkjun þeirra myndi eyði­leggja hið sér­staka mik­il­vægi og ómet­an­leika hálend­is­ins sem einnar heildar og skaða almanna­hags­muni, þrátt fyrir að rask sé þegar til staðar á báðum svæð­unum.“

Í sam­tali við Kjarnann fyrr í vik­unni sagði hann að til­lagan sem hann mun leggja fram óbreytta í febr­úar væri „klár­lega mála­miðlun“. Í drögum að frum­varpi um hálend­is­garð, sem hann stefnir á að leggja fram á þingi fljót­lega, er lagt til að innan hans verði leyfðar þær virkj­anir sem verði í nýt­inga­flokki 3. áfanga ramma­á­ætl­unar. Áfram yrði svo opið fyrir þann mögu­leika að virkj­anir í bið­flokki fær­ist yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk og komi þar með til fram­kvæmda síðar meir.

Í báðum til­vikum yrðu skil­yrði fyrir nýjum virkj­unum innan garðs­ins þó strang­ari en þau eru almennt í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár