Tólf nýjar virkjanahugmyndir kynntar til sögunnar

Orku­stofnun hefur sent gögn um hug­myndir að sex vind­orku­verum, fimm vatns­afls­virkj­unum og einni jarð­varma­virkjun til verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar. Gögn um fleiri virkj­ana­kosti eru vænt­an­leg á næstu vikum.

Hrauneyjafossstöð er í dag þriðja stærsta raforkuver landsins, 210 MW. Hún stendur við Sprengisandsleið í jaðri hálendisins, suðvestur af Sigöldustöð og nýtir sömu vatnsmiðlunarmöguleika. Hrauneyjafossstöð var tekin í notkun 1981.
Hraun­eyja­foss­stöð er í dag þriðja stærsta raf­orku­ver lands­ins, 210 MW. Hún stendur við Sprengisands­leið í jaðri hálend­is­ins, suð­vestur af Sig­öldu­stöð og nýtir sömu vatns­miðl­un­ar­mögu­leika. Hraun­eyja­foss­stöð var tekin í notkun 1981.

Orku­stofnun hefur sent verk­efn­is­stjórn fjórða áfanga ramma­á­ætl­unar um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða tólf virkj­ana­hug­myndir sem ekki hafa áður verið teknar til með­ferðar. Um er að ræða eina jarð­varma­virkjun, fimm vatns­afls­virkj­anir og sex vind­orku­ver. Stofn­unin hyggst senda verk­efn­is­stjórn­inni fleiri nýjar virkj­ana­hug­myndir í apríl.

Lands­virkjun hefur hug á að stækka þrjár virkj­anir sínar um sam­tals 210 MW: Sig­öldu­stöð um 65 MW, Hraun­eyja­foss­stöð um 90 MW og Vatns­fells­stöð um 55 MW.

Tillögur að tveimur öðrum nýjum vatns­afls­virkj­unum eru komnar til verk­efn­is­stjórn­ar­innar; 16 MW Skúfna­vatna­virkjun sem Vest­ur­verk áformar á Vest­fjörðum, og Ham­ar­s­virkjun sem Ham­ar­s­virkjun ehf., sem er í eigu Arctic Hydro, áformar í vatna­sviði Hamarsár í Djúpa­vogs­hreppi.

Ein hug­mynd að nýrri jarð­varma­virkjun hefur borist verk­efn­is­stjórn­inni, 100 MW Bolöldu­virkjun, sem Reykja­vík Geothermal fyr­ir­hugar.

Vind­orku­verin sex sem nú fara til með­ferðar í ramma­á­ætlun eru öll á vegum fyr­ir­tæk­is­ins Quadran.

Tilkynnt um 29 virkjanakosti í vindorku

Í bréfi frá Orku­stofnun til verk­efn­is­stjórn­ar­innar segir að hug­mynd­irnar tólf séu nýjar í þeim skiln­ingi að þær hafi ekki verið til með­ferðar í þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar eða feli í sér nýja og svo breytta útfærslu á eldri virkj­un­ar­kostum að þörf sé á end­ur­mati þeirra.

Orku­stofnun hafði í lok jan­úar verið til­kynnt um 42 nýja virkj­un­ar­kosti, þar af sex í vatns­afli, sjö í jarð­hita og 29 í vind­orku. Af þeim liggja fyrir gögn um tólf sem stofn­unin telur full­nægj­andi og hefur nú verið send verk­efn­is­stjórn­inni til umfjöll­unar. Í bréfi stofn­un­ar­innar er tekið fram að enn ríki réttaró­vissa um stjórn­sýslu vind­orkunnar og að mál­efni hennar séu til með­höndl­unar innan stjórn­ar­ráðs­ins. Upplýst hafi verið um áform um laga­setn­ingu vegna hennar.

„Í ljósi þess að enn er beðið nið­ur­stöðu hefur Orku­stofnun haldið sig við sömu með­höndlun á vind­orku og unnið var eftir við þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar, þ.e. að koma virkj­un­ar­kotsum og gögnum um þá á fram­færi við verk­efn­is­stjórn í sam­ræmi við óskir virkj­un­ar­að­ila, án þess að leggja end­an­legt mat á það hvort þau séu full­nægj­andi.“

Átján kostir í nýtingarflokki: 1421 MW

Þriðji áfangi ramma­á­ætl­unar var afgreiddur frá verk­efn­is­stjórn með loka­skýrslu í ágúst árið 2016, fyrir rúm­lega fjórum árum síðan. Þings­á­lykt­un­ar­til­laga byggð á þeirri nið­ur­stöðu hefur í tvígang verið lögð fram á Alþingi en vegna end­ur­tek­inna stjórn­ar­slita er hún enn óaf­greidd. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, hyggst leggja til­lög­una fram í þriðja sinn nú á vor­þingi og í óbreyttri mynd.

Í þriðja áfang­anum lagði verk­efn­is­stjórnin til að átta nýir virkj­un­ar­kostir bætt­ust í orku­nýt­ing­ar­flokk áætl­un­ar­innar; Skrokköldu­virkjun, Holta­virkjun, Urriða­foss­virkjun, Aust­ur­gils­virkjun, Aust­urengjar, Hvera­hlíð II, Þver­ár­dalur og Blöndu­lundur.

Um er að ræða fjórar vatns­afls­virkj­anir með upp­sett afl upp á alls 277 MW, þrjár jarð­hita­virkj­anir með upp­sett afl allt að 280 MW og eitt vind­orku­ver með upp­sett afl allt að 100 MW. Ekki voru lagðar til breyt­ingar á flokkun þeirra virkj­un­ar­kosta sem fyrir voru í orku­nýt­ing­ar­flokki en þeir eru alls tíu tals­ins. Samtals var því lagt til að átján virkj­un­ar­kostir yrðu flokk­aðir í orku­nýt­ing­ar­flokk og hafa þeir sam­tals 1421 MW upp­sett afl.

26 virkjanakostir í verndarflokki

Í vernd­ar­flokk bætt­ust við fjögur land­svæði með tíu virkj­un­ar­kostum, þ.e. Skata­staða­virkj­unum C og D, Vill­inga­nes­virkjun, Blöndu­veitu úr Vestari-Jökulsá, Fljóts­hnjúks­virkjun, Hrafna­bjarga­virkj­unum A, B og C, Búlands­virkjun og Kjalöldu­veitu. Allir nýir virkj­un­ar­kostir á land­svæðum í vernd­ar­flokki eru vatns­afls­virkj­anir. Ekki voru lagðar til breyt­ingar á flokkun þeirra virkj­un­ar­kosta sem fyrir voru í vernd­ar­flokki en þeir eru sextán tals­ins.

Samtals var því lagt til að 26 virkj­un­ar­kostir verði flokk­aðir í vernd­ar­flokk. Kort yfir þau svæði sem verk­efn­is­stjórn lagði til að færu í vernd­ar­flokk er að finna hér á vefnum.

Þrjátíu og átta virkj­un­ar­kostir eru í bið­flokki sam­kvæmt loka­skýrslu verk­efn­is­stjórn­ar­innar og hafa tíu bæst við þann flokk frá fyrri áfanga. Þar af eru fjórir virkj­un­ar­kostir í jarð­varma (Trölla­dyngja, Inn­sti­dalur, Hágöngu­virkjun og Fremri­námar), fimm í vatns­afli (Hólmsár­virkjun án miðl­unar, Hólmsár­virkjun neðri við Atley, Búð­ar­tungu­virkjun, Haga­vatns­virkjun og Stóra-Laxá) og einn í vind­orku (Búr­fellslundur).

Sjálfbær þróun að leiðarljósi

Verk­efn­is­stjórn fjórða áfanga ramma­á­ætl­unar var skipuð af Björt Ólafs­dóttur, þáver­andi umhverf­is­ráð­herra, í apríl árið 2017. Formaður er Guðrún Pét­urs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Stofn­unar Sæmundar fróða. Hlutverk verk­efn­is­stjórnar er að veita umhverf­is­ráð­herra ráð­gjöf um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða.

Samkvæmt lög­unum um ramma­á­ætlun ber verk­efn­is­stjórn­inni að sjá til þess að „… nýt­ing land­svæða þar sem er að finna virkj­un­ar­kosti bygg­ist á lang­tíma­sjón­ar­miðum og heild­stæðu hags­muna­mati … með sjálf­bæra þróun að leið­ar­ljósi.“

Verk­efn­is­stjórnin hefur tvö verk­færi til að sinna þess­ari skyldu sinni: Hún sækir ráð­gjöf til svo­kall­aðra fag­hópa sem skip­aðir eru sér­fræð­ingum á ýmsum sviðum og hún leitar sam­ráðs við hags­muna­að­ila, stofn­anir hins opin­bera, almenn­ing og frjáls félaga­sam­tök á ýmsum stigum vinn­unnar.

Verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun tekur til land­svæða og virkj­un­ar­kosta sem verk­efn­is­stjórn hefur fjallað um og hafa upp­sett rafafl 10 MW eða meira eða upp­sett varma­afl 50 MW eða meira.

Óskað eftir breyttum útfærslum

Í októ­ber á síð­asta ári kall­aði Orku­stofnun að beiðni verk­efn­is­stjórnar fjórða áfanga ramma­á­ætl­unar eftir nýjum hug­myndum að virkj­ana­kostum. Í til­kynn­ingu frá stofn­un­inni kom fram að þar sem afgreiðslu þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar væri ekki lokið á Alþingi hafi ekki verið kallað fyrr eftir nýjum hug­myndum.

„Gera má ráð fyrir að verk­efn­is­stjórn fjórða áfanga fjalli um alla virkj­ana­kosti, sem eru nú í bið­flokki,“ stóð i til­kynn­ing­unni. „Ef aðilar vilja að verk­efn­is­stjórn fjalli um nýjar útfærslur á þeim virkj­un­ar­kostum sem eru í bið­flokki í dag, geta þeir sent þær hug­myndir til Orku­stofn­unar.“

Kjarninn mun í dag og næstu daga fjalla ítar­lega um þær nýju virkj­ana­hug­myndir sem sendar hafa verið verk­efn­is­stjórn 4. áfanga ramma­á­ætl­unar sem og þær hug­myndir sem lagðar eru til í þriðja áfang­anum, ýmist í verndar-, orku­nýt­ingar- eða bið­flokk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár