Óvissa um nýorkubíla eykur „gríðarlega áhættuna“ í rekstri bílaleiga

Ferða­þjón­ustan vill vinna með stjórn­völdum en ekki gegn þeim í umhverf­is­málum en þá þurfa sjón­ar­mið þeirra þó að fara saman, segir í umsögn SAF um aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum.

Áhrif innkaupa bílaleiga á samsetningu bílaflotans eru veruleg þar sem bílaleigubílar eru tæpur helmingur allra nýskráðra bifreiða á Íslandi.
Áhrif inn­kaupa bíla­leiga á sam­setn­ingu bíla­flot­ans eru veru­leg þar sem bíla­leigu­bílar eru tæpur helm­ingur allra nýskráðra bif­reiða á Íslandi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Nýorku­gjafar þurfa að vera raun­vegu­l­egt val svo ferða­þjón­ustan, m.a. bíla­leigur, geti tekið þátt í orku­skiptum í sam­göngum. Einnig þurfa fleiri jákvæðir hvatar að vera fyrir hendi svo nýorku­gjafar verði fyrir val­inu.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn Samtaka ferða­þjón­ust­unnar (SAF) um aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum. „Ferða­þjón­ustan er reiðu­búin að fylgja stjórn­völdum í umhverf­is­málum en til þess þurfa sjón­ar­mið þeirra þó að fara saman,“ segja sam­tökin. SAF vilji vinna með stjórn­völdum en ekki gegn þeim en „stjórn­völd verða þá vera reiðu­búin að láta nýorku­gjafa vera raun­veru­legt val“.

Með aðgerðum í annarri útgáfu aðgerð­ar­á­ætl­un­ar­innar, sem birt var og óskað eftir umsögnum um í haust, er áætlað að árið 2030 muni losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á beinni ábyrgð Íslands hafa dreg­ist saman um ríf­lega milljón tonn af CO2-ígildum miðað við los­un­ina árið 2005. Mikil áhersla er lögð á breytta ferða­máta og að fjölga vist­vænum bílum, m.a. bíla­leigu­bílum. Mark­miðið er að árið 2030 verði 30-50 pró­sent bíla­leigu­bíla orðnir vist­vænir. „Áhrif inn­kaupa bíla­leiga á sam­setn­ingu bíla­flot­ans eru veru­leg þar sem bíla­leigu­bílar eru tæpur helm­ingur allra nýskráðra bif­reiða á Íslandi,“ segir í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni. „Áhrifin á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda eru tví­þætt: Annars vegar vegna akst­urs ferða­manna, sem er að minnsta kosti fjórð­ungur af öllum einka­akstri á land­inu, og hins vegar þegar fyrr­ver­andi bíla­leigu­bílar verða að heim­il­is­bílum lands­manna á eft­ir­mark­aði.“

Samtök ferða­þjón­ust­unnar segja í sinni umsögn að kaup­verð nýorku­bíla sé í flestum til­fellum hærra en ann­arra sam­bæri­legra bif­reiða. „Hærra verð lækkar hvata ferða­manna og bíla­leig­unnar að velja vist­væna bíla. Úrval nýorku­bif­reiða hefur verið tak­markað og það hefur áhrif á afhend­ing­ar­tíma og afhend­ingar­ör­yggi.“

Bíla­leigur kaupa inn mikið magn af bílum og segja sam­tökin óvissu um hvernig tæknin komi til með að þró­ast sem og kaup­verð, drægi, hleðslu­tími og sjálf­virkni­væð­ing, sem auki „gríð­ar­lega áhætt­una í rekstri“.

[links]Land­vernd segir í sinni umsögn að aðgerðir sem varði orku­skipti í sam­göngum séu ekki sann­fær­andi. Þeirri aðferð að setja á hátt kolefn­is­gjald sé ekki verið að beita sem þó hafi sýnt sig að sé árang­urs­rík­ust til að draga úr losun. OECD og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hafi sagt hana skjót­virk­ustu leið­ina til þess að Par­ís­ar­sam­komu­lagið náist. Kost­ur­inn við hátt kolefn­is­gjald sé m.a. sá að það nær til lang­flestra geira og hægt sé að tryggja að tekju­lágir hópar beri ekki óeðli­lega háar byrðar.

Bann við inn­flutn­ingi bensín- og dísil­bíla er enn bundið við 2030 í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni. Er þar átt við fólks­bíla. Þetta gagn­rýnir Land­vernd og segir verk­efn­is­stjórn aðgerða­á­ætl­un­ar­innar ítrekað hafa verið bent á gagn­leysið í því að tíma­setja þá aðgerð svo seint. „Á næstu níu árum eiga aðgerðir sem ein­göngu sam­an­standa af hvötum og vel­vilja almenn­ings að snúa við þróun þar sem losun hefur auk­ist fram til þessa. Til þess að ná árangri er nauð­syn­legt að banna nýskrán­ingu bensín og dísil­bíla mun fyrr og hækka kolefn­is­gjald. Þeir bílar sem eru keyptir í dag verða enn á göt­unum eftir 10 ár. Í þessu sam­hengi er áríð­andi að meta nú þegar áhrifin af vist­vænum bíla­leigu­bílum og fara strax í aðgerðir sem tryggja að bíla­leig­urnar kaupi ekki inn bensín og dísil­bíla á næstu árum.“

Framleiðendur náð góðum árangri í að minnka útblástur

Bíl­greina­sam­bandið vekur í sinni umsögn athygli á því að íslenski bíla­flot­inn er orð­inn einn sá elsti í Evrópu. Á þessu ári sé með­al­aldur farg­aðra öku­tækja 17,45 ár og hefur sú tala farið hækk­andi með hverju árinu.

Sam­bandið bendir einnig á að árangur bíla­fram­leið­enda hafi verið góður í að ná niður útblást­urs­gildum öku­tækja. Þetta leiði af sér að fram­leið­endur eru stöðugt að þróa öku­tæki knúin með jarð­efna­elds­neyti til að ná niður los­un­ar­gildum þeirra. Sam­bandið leggur því til að „ríkt sam­ráð“ verði haft við sam­tökin við frek­ari mótun þeirrar aðgerðar að banna nýskrán­ingu bensín- og dísil­bíla árið 2030. Í því sam­bandi þurfi að huga að fjöl­mörgum þáttum, s.s. fram­boð öku­tækja, innviðum, flutn­ings­vega­lengdum, umsvifum í efna­hags­líf­inu og ferða­þjón­ust­unnar.

Samkvæmt aðgerða­á­ætl­un­inni er nú stefnt að því að flýta orku­skiptum í þunga­flutn­ingum. Losun frá hverri þunga­bif­reið er marg­falt meiri en frá hverjum fólks­bíl auk þess sem þær aka hlut­falls­lega meira. Aðgerðin er enn í mótun.

Samtök versl­unar og þjón­ustu segja í umsögn sinni að hafa verði í huga að öku­tæki í eigu margra atvinnu­rek­enda séu nýtt í þjón­ustu við lands­byggð­ina og þurfi af þeim sökum jafn­vel að vera vel búin. „Í mörgum til­vikum eru slík öku­tæki nýtt fjarri orku­innviðum og því hafa öku­tæki sem brenna jarð­efna­elds­neyti aðeins komið til greina.“

Að mati sam­tak­anna þarf að vera svig­rúm til að taka ríkt til­lit til slíkra aðstæðna þegar að mótun und­an­þága kemur.

Við­skipta­ráð veltir því upp hvort skyn­sam­legra væri að gera rekstur bensín- og dísil­bíla kostn­að­ar­sam­ari með álagn­ingu gjalda frekar en að banna nýskrán­ingu þeirra frá árinu 2030. Þessu til við­bótar kemur til álita hvort slík inn­grip séu yfir höfuð nauð­syn­leg vegna þró­un­ar­innar síð­ustu miss­eri. Þróunin í átt að vist­vænni bílum er nú þegar gríð­ar­lega hröð og hrað­ari en margir bjugg­ust við. Til marks um það voru 25 pró­sent nýskráðra bif­reiða árið 2019 knúnar með ann­ars­konar orku­gjafa en jarð­efna­elds­neyti að hluta eða öllu leyti, en fyrstu níu mán­uði árs­ins 2020 var hlut­fallið 43 pró­sent. „Verði þró­unin með sama hraða næstu ár, sem auð­veld­lega má færa rök fyrir, er stutt í að nær allar inn­fluttar bif­reiðar verði knúnar með öðrum orku­gjöfum en jarð­efna­elds­neyti, óháð boðum og bönnum.“

Orku­veita Reykja­víkur vonar að bíla­fram­leið­endur taki við sér og svari kalli stjórn­valda um nýorku­bíla mun fyrr en árið 2030. Samhliða er að mati fyr­ir­tæk­is­ins mik­il­vægt að bjóða áfram íviln­anir og koma til móts við t.d. barn­margar fjöl­skyldur verði ódýr­ari val­mögu­leikar í hrein­orku­bílum ekki komnir á markað.

Í umsögn Lands­virkj­unar segir að aukin hlut­deild end­ur­nýj­an­legrar orku sé lyk­il­at­riði í að minnka kolefn­islosun á heims­vísu. Ísland nýti nær 100 pró­sent end­ur­nýj­an­lega orku til raf­orku­vinnslu og varma­öfl­unar. Sú orka hafi hverf­andi kolefn­is­spor „og leggur Ísland því þegar mik­il­vægt lóð á vog­ar­skál­arnar í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum“. Á Íslandi er stóra áskor­unin nú að mati Lands­virkj­unar orku­skipti í sam­göngum á landi, láði og lofti. „Þar höfum við tæki­færi til að vera áfram leið­andi sem land end­ur­nýj­an­legrar orku en það þarf að marka sam­eig­in­lega fram­tíð­ar­sýn, útfæra áætlun og fylgja henni eftir af krafti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár