Kolefnisförgun gæti orðið „ný og vistvæn útflutningsgrein“

Á Íslandi mætti binda marg­falt meira koldí­oxíð en sem nemur heild­ar­losun Íslands, t.d. með flutn­ingi CO2 erlendis frá. Orku­veita Reykja­víkur telur kolefn­is­föngun og -förgun hafa burði til að verða ný og vist­væn útflutn­ings­grein í íslensku efna­hags­lífi.

Orkuveitu Reykjavíkur, hefur beitt Carbfix-aðferðinni til að draga úr losun frá Hellisheiðarvirkjun síðastliðin ár með góðum árangri.
Orku­veitu Reykja­víkur, hefur beitt Carbfix-aðferð­inni til að draga úr losun frá Hell­is­heið­ar­virkjun síð­ast­liðin ár með góðum árangri. Mynd: Wikipedia

Carbfix kolefn­is­förg­un­ar­tæknin, sem Orku­veita Reykja­víkur (OR) í sam­starfi við Háskóla Íslands og erlenda aðila hefur þróað, er dæmi um lausn sem getur haft áhrifa­mátt langt umfram losun Íslands.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn OR um aðra útgáfu aðgerð­ar­á­ætl­unar stjórn­valda í lofts­lags­málum. Í henni er sér­stak­lega fjallað um föngun kolefnis frá stór­iðju og til­tekin aðgerð sem felur í sér að kanna hvort stór­iðju­fyr­ir­tæki á Íslandi geti mark­visst fangað koltví­oxíð (CO2) frá starf­semi sinni.

Aðferðin felst í því að CO2 er fangað úr jarð­hita­gufu, gasið leyst upp í vatni undir þrýst­ingi og vatn­inu dælt niður á 500-800 metra dýpi í basaltjarð­lög, þar sem CO2 binst var­an­lega í berggrunn­inum í formi steinda. Gasinu er þannig breytt í grjót. Orka nátt­úr­unnar, dótt­ur­fé­lag Orku­veitu Reykja­víkur, hefur beitt aðferð­inni til að draga úr losun frá Hell­is­heið­ar­virkjun síð­ast­liðin ár með góðum árangri.

[adspot]

Samkvæmt vilja­yf­ir­lýs­ingu sem und­ir­rituð var árið 2019 að for­göngu stjórn­valda, milli Orku­veitu Reykja­víkur, Elkem, Fjarða­áls, Rio Tinto á Íslandi, Norð­ur­áls, PCC á Bakka og stjórn­valda verður nú kannað hvort sömu aðferð megi beita hjá stór­iðju­fyr­ir­tækjum á Íslandi og hvort þau geti einnig fangað CO2 frá starf­semi sinni og dælt því niður í berg.

[links]Verk­efnið er viða­mikið og mun spanna fimm til tíu ár. Fram undan er að þróa aðferðir sem aðgreina styrk CO2 í útblæstri stór­iðju þannig að beita megi svip­uðum hreins­un­ar­að­ferðum og við Hell­is­heið­ar­virkjun. Stjórn­völd vinna nú að því að aðferðin verði gjald­geng innan evr­ópska við­skipta­kerf­is­ins með los­un­ar­heim­ildir (ETS).

Orku­veita Reykja­víkur fagnar því að Carbfix-tæknin fái mikið vægi í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni og bendir á að um sé að ræða tækni sem sé hag­kvæm, umhverf­is­væn og var­an­leg leið til að farga CO2. Hún henti ekki ein­ungis jarð­varma­virkj­unum heldur einnig stór­los­endum í orku- og iðn­aði auk þess að nýt­ast tækni sem hreinsar CO2 beint úr and­rúms­lofti. „Aðferðin hefur verið sann­reynd við aðstæður sem eru víða hér á landi og ljóst að hún mun hjálpa til að Ísland stand­ist lofts­lags­skuld­bind­ingar sínar,“ segir í umsögn Orku­veit­unnar.

„Í ljósi ein­stakra aðstæðna hér á landi er unnt að bjóða heim­inum hag­kvæma og var­an­lega bind­ingu koldí­oxíðs með því að hag­nýta ferla sem eiga sér stað í nátt­úr­unni. Hér mætti binda marg­falt meira koldí­oxíð en sem nemur heild­ar­losun Íslands og nýta til þess inn­lenda og umhverf­is­væna orku, t.d. með flutn­ingi CO2 erlendis frá með skipum en Evr­ópu­sam­bandið leggur mikla áherslu á upp­bygg­ingu slíkra lausna. Þá sýn­ist okkur að kolefn­is­föngun og -förgun hafi burði til þess að verða ný og vist­væn útflutn­ings­grein í íslensku efna­hags­lífi.“

Draumur Orkuveitunnar

Stórauka megi nið­ur­dæl­ingu koldí­oxíðs á heims­vísu með inn­leið­ingu á Carbfix-tækn­inni þar sem jarð­fræði­að­stæður leyfa. Á næsta ári mun nið­ur­dæl­ing hefj­ast með Carbfix aðferð­inni í til­rauna­skyni í Þýska­landi og Tyrk­landi svo dæmi sé tekið.

Frá árinu 2017 hafa Carbfix og Orka nátt­úr­unnar átt í sam­starfi við Sviss­neska fyr­ir­tækið Climeworks. Fyr­ir­tækin hafa í sam­ein­ingu rekið til­rauna­stöð á Hell­is­heiði þar sem koldí­oxíð er fangað beint úr and­rúms­lofti og dælt niður í jarð­lög þar sem það stein­rennur. Nýverið hafa OR og Climeworks til­kynnt að auka eigi umsvif þess­arar starf­semi á Hell­is­heiði sjö­tíu­falt árið 2021. „OR á sér þann draum að grænn hátækni­iðn­aður nái fót­festu á Íslandi með til­heyr­andi verð­mæta og atvinnu­sköpun,“ segir í umsögn fyr­ir­tæk­is­ins. Landið gæti hugs­an­lega orðið mið­stöð á heims­vísu fyrir kolefn­is­förgun með Carbfix aðferð­inni.“

Orka nátt­úr­unnar rekur tvær stærstu jarð­varma­virkj­anir lands­ins en sam­tals voru þær um 60 pró­sent af upp­settu afli jarð­varma­virkj­ana árið 2019. Þær losa sam­tals um 40 þús­und tonn af CO2 árlega vegna vinnslu háhita­vökva, en það eru ein­ungis um 24 pró­sent af þeim koltví­sýr­ingi sem losnar árlega frá íslenskum jarð­varma­virkj­unum. Lágt hlut­fall útblást­urs á CO2 miðað við vinnslu­getu stafar af tvennu; lágu inni­haldi CO2 í jarð­hita­vökv­anum sam­an­borið við önnur háhita­svæði lands­ins, og Carbfix nið­ur­dæl­ingu. Nið­ur­dæl­ing á CO2 hefur und­an­farin ár dregið úr beinni losun frá Hell­is­heið­ar­virkjun um 30 pró­sent, eða um 12 þús­und tonn á ári, og áætl­anir miða að stór­auk­inni nið­ur­dæl­ingu koldí­oxíðs með Carbfix-tækn­inni. Ef fyr­ir­ætl­an­irnar ganga eftir má ætla að ON dæli niður um 47 þús­und tonnum af CO2 frá jarð­hita­nýt­ingu árið 2030, sem eitt og sér er um 4% af áætl­uðum heild­ar­sam­drætti í losun Íslands frá 2005 til 2030. Auk þess eru áætl­anir um hugs­an­lega sam­þætt­ingu við hag­nýt­ingu hluta þess CO2 sem er fangað.

Tvö önnur fyr­ir­tæki reka jarð­varma­virkj­anir á háhita­svæðum á Íslandi; Lands­virkjun og HS Orka, og hefur Carbfix boðið þeim ráð­gjöf um upp­bygg­ingu og rekstur kolefn­is­föng­unar og -förg­unar í jarð­hita­virkj­unum þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár