Um tíu prósent rafmagns framleitt með vind- og sólarorku

Miklar breyt­ingar eru að eiga sér stað í raf­orku­öflun heims­ins. En þó að dregið hafi úr notkun kola í Evrópu hefur auk­inni eft­ir­spurn á sama tíma verið mætt með meiri gas­notkun.

Vindorkuver í Belgíu.
Vind­orku­ver í Belgíu. Mynd: EPA

Tæplega tíundi hluti þess raf­magns sem fram­leitt er í heim­inum í dag kemur úr vind- og sól­ar­orku sam­kvæmt nýrri grein­ingu bresku hug­veit­unnar Ember. Í löndum Evr­ópu­sam­bands­ins er hlut­fallið um 20 pró­sent. Það þýðir að í fyrsta sinn í sögu sam­bands­ins er meira raf­magn fram­leitt með þessum orku­gjöfum en með jarð­efna­elds­neyti, þ.e. kolum og olíu.

Sum lönd innan sam­bands­ins eru stór­tæk­ari í þessum efnum en önnur og í Danmörku, svo dæmi sé tekið, koma 63 pró­sent alls raf­magns frá vind- og sól­ar­orku­verum. Í Þýska­landi er hlut­fallið 33 pró­sent.

Dave Jones, for­stöðu­maður Ember, segir að meiri­hluti ríkja heims­ins séu að byggja upp sólar- og vind­orku­ver. Stöðug og hröð þróun í þessa átt mun að hans sögn umbylta raf­orku­fram­leiðslu heims­ins. Innan ESB hefur notkun á kolum til raf­orku­fram­leiðslu dreg­ist saman um tæp­lega helm­ing á aðeins fimm árum. Sú aðgerð ein og sér hefur dregið úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda innan sam­bands­ins um 7 pró­sent.

Þegar staðan innan tutt­ugu stærstu iðn­ríkja heims er skoðuð (G20) þá er Kína eina landið sem jók notkun kola til raf­magns­fram­leiðslu í fyrra.

Þrátt fyrir þessi tíð­indi er staðan, að sögn Jones, enn sú að losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá orku­fram­leiðslu á alþjóða­vísu var meiri í fyrra en árið 2015 er skrifað var undir Par­ís­ar­sam­komu­lagið. Skýr­ingin felst í auk­inni eft­ir­spurn eftir raf­orku en hún hefur verið 11 pró­sent á síð­ustu fimm árum og hefur verið sér­stak­lega mikil í Evrópu. Þar sem raf­orku­fram­leiðsla frá vist­vænni orku­gjöfum hefur ekki haldið í við eft­ir­spurn­ina hefur henni verið mætt með jarð­gasi og öðru jarð­elds­neyti. Sá áfangi Evr­ópu­sam­bands­ins að draga veru­lega úr notkun á kolum byggir ekki síst á auk­inni notkun á gasi.

Evr­ópu­sam­bandið hefur verið gagn­rýnt fyrir að nota jarð­gas í því milli­bils­á­standi orku­skipta sem nú eru að eiga sér stað. Orku­mála­ráð­herra fram­kvæmda­stjórnar þess hefur sagt að fram­tíðin sé þó vissu­lega ekki í jarð­efna­elds­neyti og að árið 2050 verði raf­orku­kerfið allt ann­ars eðlis en það er í álf­unni í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár