Vilja fá skatttekjur af virkjanamannvirkjum og kvarta til ESA vegna ívilnana

Samtök orku­sveit­ar­fé­laga ætla, með stuðn­ingi Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, að kvarta til eft­ir­lits­stofn­unar EFTA vegna und­an­þágu í lögum sem gerir það að verkum að ekki er hægt að leggja fast­eigna­skatta á virkj­ana­mann­virki.

Sveitarfélög þar sem raforkuframleiðsla fer fram vilja geta lagt skatta á virkjanamannvirkin og segjast verða af milljörðum á ári vegna undanþágu, sem flokka megi sem ólögmæta ríkisaðstoð. Mynd frá Þeistareykjum..
Sveit­ar­fé­lög þar sem raf­orku­fram­leiðsla fer fram vilja geta lagt skatta á virkj­ana­mann­virkin og segj­ast verða af millj­örðum á ári vegna und­an­þágu, sem flokka megi sem ólög­mæta rík­is­að­stoð. Mynd frá Þeista­reykjum.. Mynd: Landsvirkjun

Samtök orku­sveit­ar­fé­laga áforma að beina kvörtun til eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) vegna und­an­þágu í lögum sem kemur í veg fyrir að sveit­ar­fé­lög geti lagt fast­eigna­skatta á virkj­ana­mann­virki. Samtökin líta þannig á að um sé að ræða skattaí­viln­anir til raf­orku­fram­leið­enda, sem færa megi rök fyrir að feli í sér ólög­mæta rík­is­að­stoð.

Stefán Bogi Sveins­son, fyrr­ver­andi for­maður Samtaka orku­sveit­ar­fé­laga og sveit­ar­stjórn­ar­maður í Múla­þingi, segir við Kjarnann að grunn­krafa orku­sveit­ar­fé­lag­anna í land­inu, sem eru 20 tals­ins, sé að það verði greiddir skattar af virkj­ana­mann­virkjum. Sú krafa hefur verið uppi á borðum frá 2011, þegar sam­tökin voru stofnuð, en lítið hefur þok­ast í þá átt.

„Þetta eru hags­munir sem telja í millj­örðum fyrir sveit­ar­fé­lögin í land­inu,“ segir Stefán Bogi og útskýrir að í dag komi und­an­þágu­á­kvæði í lögum að miklu leyti í veg fyrir að virkj­ana­mann­virki séu metin fast­eigna­mati. Á meðan svo er geta sveit­ar­fé­lögin ekki lagt fast­eigna­skatta á mann­virkin.

Samkvæmt drögum að kvörtun orku­sveit­ar­fé­lag­anna til ESA, sem kynnt voru á síð­asta stjórn­ar­fundi Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, eru fjár­hags­legir hags­munir sveit­ar­fé­lag­anna metnir á tæpa 8 millj­arða króna á ári. Þar er upp­hæðin sett í sam­hengi við það að alls hafi sveit­ar­fé­lög lands­ins inn­heimt tæpa 48 millj­arða í fast­eigna­skatta árið 2019. Þetta sé því veru­legur biti.

Ríkið hafi séð um sig en ekki sveitarfélögin

Stefán Bogi segir að und­an­þágan sé gömul í lög­unum og hafi hald­ist inni þegar orku­mark­að­ur­inn hér landi var aðlag­aður að umhverfi einka­mark­aðar. Hann segir að þá hafi verið gerðar ýmsar breyt­ingar á skattaum­hverf­inu, en þetta skilið eftir.

Stundum sé sagt að „ríkið hafi séð um sig“ og farið yfir tekju­skattsum­hverfið, en skilið þessa gömlu und­an­þágu eftir varð­andi fast­eigna­skatt­ana, sem komi niður á sveit­ar­fé­lög­unum.

Tveir starfs­hópar hafa verið mynd­aðir á und­an­förnum árum til þess að fara yfir þessi mál. Sá seinni er nú að ljúka störfum og telja orku­sveit­ar­fé­lög afrakst­ur­inn lít­inn, en engar sam­eig­in­legar til­lögur verða lagðar fram að laga­breyt­ingum af hálfu starfs­hóps­ins.

[adspot]

Því er nú verið að leggja málið fyrir ESA. Stefán Bogi býst við að það verði form­lega sam­þykkt á næsta stjórn­ar­fundi Samtaka orku­sveit­ar­fé­laga sem fram fer á morgun.

Einangraður markaður en samt í samkeppni innan EES

Stefán Bogi segir að þrátt fyrir að íslenski raf­orku­mark­að­ur­inn sé vissu­lega ein­angr­aður, þar sem engar raf­línur liggja úr landi, sé hægt að færa rök fyrir því að und­an­þágan sem raf­orku­fram­leið­endum er veitt frá fast­eigna­mati og þar af leið­andi fast­eigna­sköttum sé til þess fallin að hafa bein áhrif á sam­keppn­is­stöðu Íslands gagn­vart öðrum aðilum að EES-samn­ingum.

Í drög­unum að kvörtun orku­sveit­ar­fé­lag­anna má lesa að þessi und­an­þága í lögum, sem ekki hafi verið til­kynnt sér­stak­lega sem rík­is­að­stoð þegar Ísland gerð­ist aðili að EES-samn­ingum né síðar, geti haft áhrif á það hvar fyr­ir­tæki kjósi að setja niður starf­semi í orku­frekum iðn­aði. Einnig eru færð rök fyrir því að þar sem íslensk orku­fyr­ir­tæki selji upp­runa­vott­orð raf­orku til orku­fyr­ir­tækja innan EES-svæð­is­ins hafi íviln­unin bein sam­keppn­is­á­hrif.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár