Áttræður fyrir rétt út af smáaurum

Eftir tvo daga á átt­ræður Dani að mæta fyrir rétt. Stefn­and­inn er orku­fyr­ir­tæki sem vill að mað­ur­inn borgi fyrir að segja upp samn­ingi sem aldrei hefur verið gerður. Umboðs­maður neyt­enda segir orku­fyr­ir­tækin einskis svífast.

Mogens Nielsen býr í Holbæk í Danmörku.
Mogens Nielsen býr í Holbæk í Danmörku. Mynd: Pixabay

Þriðju­dag­inn 2. júní í fyrra vakn­aði Mogens Nielsen, kenn­ari á eft­ir­launum búsettur í Holbæk, eins og hann hafði gert á hverjum morgni í rúm 80 ár. Eitthvað var samt öðru­vísi, og þegar Mogens ætl­aði að kveikja á útvarp­inu gerð­ist ekk­ert. Það var straum­laust. Mogens leit út um glugg­ann og sá að í öðrum húsum log­uðu ljós. Straum­leysið var bundið við hans hús.

Mogens hugs­aði með sér að þetta gæti fjanda­kornið ekki verið kór­ónu­veirunni að kenna, þótt hún væri á þessum tíma sögð eiga sök á flestu því sem fór úrskeiðis í Danmörku. Mogens ákvað að bíða ekki þess sem verða vildi en hringdi í fyr­ir­tækið Norlys, en þar hafði hann um nokk­urra ára skeið keypt heim­il­is­raf­magnið. Þar á bæ gátu menn komið straumnum á. Tók að vísu nokkra klukku­tíma en mat­ur­inn í kæli­skápnum hélst óskemmdur.

Afdrifaríkt símtal

Ástæða þess að straum­ur­inn var tek­inn af húsi Mogens Nielsen átti sér for­sögu sem hófst með sím­tali 10. mars í fyrra. Þá hringdi sölu­maður frá orku­sölu­fyr­ir­tæk­inu Vel­kommen. Hann sagði Mogens Nielsen að með því að hætta við­skiptum við Norlys og kaupa raf­magnið af Vel­kommen gæti hann sparað 13 – 14 hund­ruð krónur á ári, það jafn­gildir 26 til 27 þús­undum íslenskra króna.

[adspot]Mogens Nielsen vildi gjarna vita eitt­hvað meira og sölu­mað­ur­inn ætl­aði að senda honum frek­ari upp­lýs­ingar. „En það er eitt í við­bót“ sagði sölu­mað­ur­inn og bað um reikn­ings­númer Mogens Nielsen í bank­anum. „Það var heimsku­legt að láta hann hafa núm­erið en ég ímynd­aði mér að hann þyrfti það til að láta meta við­skipta­hæfi mitt (kreditv­urder­ing) í bank­anum.“

Velkominn í viðskipti hjá Velkommen

Nokkrum dögum eftir áður­nefnt sím­tal fékk Mogens Nielsen skila­boð um að bank­inn hefði ekki nema gott eitt um hann að segja. Jafn­framt var hann boð­inn vel­kom­inn í við­skipta­manna­hóp Vel­kommen. ,„Við erum mjög ánægð að fá þig sem við­skipta­vin og hlökkum til að veita þér góða þjón­ustu“ stóð í póst­inum frá Vel­kommen.

Mogens Nielsen fékk engar frek­ari upp­lýs­ingar, átti bara að merkja við að hann vildi ger­ast við­skipta­vinur Vel­kommen „sem ég gerði ekki. Ég var búinn að ákveða að vera áfram við­skipta­vinur Norlys. Hugsaði með mér að þar með væri þetta mál úr sög­unni“.

Óvænt skilaboð frá bankanum

Nú leið að mán­aða­mótum. Þá fékk Mogens Nielsen, eins og venju­lega, yfir­lit þeirra reikn­inga sem þá yrðu á gjald­daga. Hann rak upp stór augu þegar hann sá að orku­kaupa­samn­ingi hans við Norlys hafði verið sagt upp og fram­vegis færi gegnum greiðslu­þjón­ust­una, um hver mán­aða­mót reikn­ingur frá Vel­kommen. Mogens Nielsen hafði sam­stundis sam­band við Vel­kommen og sagði að hann hefði ekki sam­þykkt að kaupa þaðan raf­magn og hann myndi segja upp þessum greiðslu­þjón­ustu­samn­ingi, sem hann hefði hvort eð er aldrei stofnað til. Svörin frá Vel­kommen voru þau að umþótt­un­ar­tím­inn væri lið­inn og hann gæti ekki sagt upp samn­ingnum. Mogens Nielsen hringdi í bank­ann og lok­aði greiðslu­þjón­ust­unni.

Hótanir og straumrof

Vel­kommen hafði þegar í stað sam­band við Mogens Nielsen og báðu hann að end­ur­vekja þegar í stað greiðslu­þjón­ustu­samn­ing­inn. Það gerði Mogens Nielsen ekki og þá sendi Vel­kommen ítrekun. Þar kom fram að ef hann ekki borg­aði reikn­ing sem Vel­kommen sagði gjald­fall­inn hefði það afleið­ingar. Mogens Nielsen vissi ekki almenni­lega hvað hann ætti til bragðs að taka en hafði síðan sam­band við Samtök aldr­aðra (Ældre Sagen). Þar á bæ þekktu menn vel til regln­anna og sögðu það ein­fald­lega ólög­legt að hringja í hugs­an­lega við­skipta­vini, ef slíkt hefði ekki verið sam­þykkt fyr­ir­fram. Hvað þá að gera mann sem ekki hefur und­ir­skrifað samn­ing að við­skipta­vini. Mogens Nielsen hafði aftur sam­band við Vel­kommen og bað um stað­fest­ingu á að „samn­ingnum“ um greiðslu­þjón­ust­una yrði rift. Því svar­aði Vel­kommen með að senda rukkun eftir rukkun og loks hótun um að loka fyrir raf­magnið. Sem var svo gert 2. júní í fyrra, eins og áður sagði.

Ekki einn í heiminum

Mogens Nielsen varð undr­andi þegar hann komst að því að mál hans var ekki eins­dæmi. Umboðs­manni neyt­enda höfðu borist tæp­lega 300 kvart­anir vegna fyr­ir­tæk­is­ins Vel­kommen og á árunum 2012 til 2020 hafði umboðs­maður fengið rúm­lega 2200 kvart­anir vegna orku­sölu­fyr­ir­tækja. Samtals eru 50 slík fyr­ir­tæki í Danmörku en 9 fyr­ir­tæki skera sig úr hvað kvart­an­irnar varðar, Vel­kommen er eitt þeirra. Flest þess­ara fyr­ir­tækja hafa náð ein­hvers­konar sam­komu­lagi við ósátta við­skipta­vini í kjöl­far ábend­inga Umboðs­manns neyt­enda og Kæru­nefndar orku­mála.

Sagður hafa tekið þátt í keppni á netinu

Mogens Nielsen lagði sitt mál fyrir Kæru­nefnd orku­mála, sem fékk þær upp­lýs­ingar frá Vel­kommen að Mogens Nielsen hefði tekið þátt í smá keppni á net­inu og þannig sam­þykkt að sölu­maður mætti hafa sam­band við hann og bjóða honum í við­skipti. Mogens Nielsen sagð­ist hreint ekki hafa tekið þátt í slíkri keppni. Í reglum keppn­innar stóð þar að auki að þátt­tak­endur yrðu að vera á aldr­inum 18 – 75 ára, en Mogens Nielsen er átt­ræður. Úrskurður Kæru­nefnd­ar­innar lá fyrir í des­em­ber í fyrra. Þar kom skýrt fram að aðferðir Vel­kommen væru ekki í sam­ræmi við lög og Mogens Nielsen skyldi hvorki borga eitt eða neitt. Hann taldi að mál­inu væri þar með lokið.

Velkommen höfðar mál

Vel­kommen vill ekki sætta sig við úrskurð Kæru­nefndar orku­mála. Fyr­ir­tækið hefur stefnt Mogens Nielsen og krefst þess að hann borgi upp­sagn­ar­gjald vegna samn­ings um orku­kaup og einnig inn­heimtu­kostnað, 1130 krónur danskar (22 þús­und íslenskar) ásamt máls­kostn­aði. Mogens Nielsen ætlar sjálfur að flytja mál sitt fyrir rétt­inum í Holbæk.

Fram­kvæmda­stjóri Vel­kommen vildi ekki ræða við blaða­menn Politi­ken en sagði í skrif­legu svari að fyr­ir­tækið SalesGroup, sem sá um að hringja í hugs­an­lega við­skipta­vini, hefði ekki fylgt reglum sem þeim var upp­álagt að gera. Þess vegna hefði Vel­kommen sagt upp þeim sam­starfs­samn­ingi. Fram­kvæmda­stjór­inn vildi ekki svara því beint hvers­vegna Vel­kommen héldi máli Mogens Nielsen til streitu en tal­aði um réttaró­vissu.

Rétt­ar­höldin hefj­ast næst­kom­andi þriðju­dag, 29. júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár