OR græddi 7,8 milljarða á álverðstengingu

Miklar álverðs­hækk­anir á síð­ustu tveimur árum hafa komið sér vel fyrir Orku­veitu Reykja­víkur, þar sem hluti orkunnar sem hún selur er verð­lögð í sam­ræmi við heims­mark­aðs­verð á áli.

Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur
Höf­uð­stöðvar Orku­veitu Reykja­víkur Mynd: Kjarninn.

Alls hefur verð­mæti lang­tíma­samn­inga Orku­veitu Reykja­víkur (OR) um raf­orku­sölu til álvera auk­ist um tæpa átta millj­arða króna frá árs­byrjun vegna hækk­unar á heims­mark­aðs­verði áls. Þessi virð­is­breyt­ing er aðal­á­stæðan fyrir því að OR skil­aði miklum hagn­aði það sem af er ári. Þetta kemur fram í nýbirtum sam­stæðu­reik­in­ingi OR fyrir fyrstu níu mán­uði árs­ins.

Dótturfélögin skila hagnaði

Samkvæmt upp­gjör­inu var nam rekstr­ar­hagn­aður Orku­veit­unnar á tíma­bil­inu um 10,9 millj­örðum króna

Rúmlega þriðj­ung­ur­inn af rekstr­ar­hagn­að­inum, eða um 3,7 millj­arðar króna, kemur frá Veitum, dótt­ur­fé­lagi OR sem sér um veitu­rekstur hennar í heitu og köldu vatni, dreif­ingu raf­magns og frá­veitu. Orkusala og fram­leiðsla sam­stæð­unnar skil­aði svo 431 millj­ónum króna í hagn­aði.

Afkoma af annarri starf­semi sam­stæð­unnar, líkt og Ljós­leið­ar­ans, sem sér um rekstur gagna­flutn­ings­kerfis, og Carbfix, sem sér um föngun og förgun kolefnis, var einnig jákvæð, en sam­kvæmt árs­hluta­reikn­ingnum nam hún tæpum tveimur millj­örðum króna á tíma­bil­inu.

Tveir þriðju vegna verðmætari orkusamninga

Stærsti hagn­að­ar­liður OR á fyrstu níu mán­uðum árs­ins var hins vegar virð­is­aukn­ing lang­tíma­samn­inga hennar um raf­orku­sölu, vegna teng­ingar hluta þeirra við álverð sem er nú í hæstu hæðum.

Þessi virð­is­aukn­ing var bók­færð sem fjár­muna­tekjur að and­virði 7,8 millj­arða króna á tíma­bil­inu. Því má rekja um tvo þriðju­hluta af hagn­aði OR á tíma­bil­inu til þess­arar virð­is­aukn­ingar.

Norðurál borgar tvöfalt meira

OR hefur gert tvo lang­tíma­samn­inga um orku­sölu við Norðurál, sem rekur álver á Grund­ar­tanga. Í öðrum þeirra samdi Orku­veitan og HS orka um að selja 292 megawött til Norð­ur­áls á tíma­bil­inu 2006 til 2028, en í hinum þeirra var samið um sölu á 47,5 megawött á tíma­bil­inu 2011-2036

Ekki hefur náðst að aflétta trún­að­ar­á­kvæði í fyrri samn­ingnum, en í þeim seinni fylgir orku­verðið heims­mark­aðs­verði á áli. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem eru til á heima­síðu Norð­ur­áls hefur raf­orku­verðið sem tengt er þessum samn­ingi tvö­fald­ast frá byrjun far­ald­urs­ins, úr 18 Banda­ríkja­dölum á Megawattsstund í 36.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár