ESB slakar á klónni gagnvart Rússum

Til að koma í veg fyrir stór­felldan orku­skort í Evrópu hefur fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins gefið út við­mið­un­ar­reglur um hvernig greiða megi fyrir rúss­neskt gas. Verið að láta undan kúg­unum Pútíns, segir for­sæt­is­ráð­herra Póllands.

Rússneska ríkisfyrirtækinu Gazprom hefur verið vísað úr alþjóðlegu bandalagi gasfyrirtækja.
Rúss­neska rík­is­fyr­ir­tæk­inu Gazprom hefur verið vísað úr alþjóð­legu banda­lagi gas­fyr­ir­tækja. Mynd: EPA

Evr­ópu­sam­bandið hefur gefið eftir í störu­keppni sinni við stjórn­völd í Rúss­landi með því að segja að orku­fyr­ir­tæki innan sam­bands­ins geti keypt rúss­neskt gas án þess að brjóta þau við­skipta­bönn sem sett hafa verið á vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu.

Rússar skrúf­uðu fyrir gas til Póllands í apríl og hafa hótað að hefta gas­flæði til fleiri Evr­ópu­landa á næst­unni. Ástæðan er sú að sam­kvæmt skil­málum við­skipta­þving­ana sem ESB beitir Rússa má ekki greiða þeim fyrir vörur eða við­skipti í rúblum. Um helm­ingur alls gass sem not­aður er innan ESB er unn­inn úr rúss­neskri jörð.

Fram­kvæmda­stjórn ESB sendi end­ur­skoðar við­mið­un­ar­reglur til aðild­ar­ríkj­anna í lok síð­ustu viku um að skil­málar við­skipta­þving­ana séu upp­fylltir svo lengi sem greitt er fyrir vörur með evrum eða doll­urum. Þving­an­irnar koma að sögn fram­kvæmda­stjórn­ar­innar ekki í veg fyrir að fyr­ir­tæki opni banka­reikn­inga til greiðslna í takti við ákvæði fyr­ir­liggj­andi samn­inga um kaup á gasi í upp­runa­landi þess. Fyr­ir­tæki ættu að gefa það skýrt til kynna að þau ætli sér að standa við samn­ings­bundnar skuld­bind­ingar sínar en að greiðslur verði í evrum eða doll­urum.

[adspot]

Í frétt Al Jazeera segir að þetta þýði að evr­ópskum orku­fyr­ir­tækjum sé heim­ilt að opna banka­reikn­inga í banka rúss­neska gas­fyr­ir­tæk­is­ins Gazprom og geti þar með haldið áfram að kaupa gas þrátt fyrir við­skipta­þving­anir þær sem Rússar eru beittir. Hins vegar hefur fram­kvæmda­stjórnin ekki svarað þeim skil­yrðum sem rúss­nesk stjórn­völd hafa sett fyrir áfram­hald­andi gasvið­skiptum um að fyr­ir­tækin opni annan reikn­ing og það í rúblum. Að öðrum kosti geti greiðslur í evrum og doll­urum aldrei fylli­lega gengið í gegn.

Staða Evr­ópu­sam­bands­ríkja í þessu til­liti er þröng. Þau eru algjör­lega háð Rússum með í augna­blik­inu og það mun ekki breyt­ast á næstu miss­erum. Orku­fyr­ir­tækin eru að reyna að halda gasleiðsl­unum opnum og ítalska gas­fyr­ir­tækið Eni SpA hafði ætlað sér að fara að skil­málum Rússa og opna reikn­inga bæði í rúblum og evrum í Gazprom-bank­anum. Bloomberg segir fyr­ir­tækið ekki sjá sér annað fært til að ekki verði gasskortur á Ítalíu. En það vildi bíða eftir við­mið­un­ar­reglum fram­kvæmda­stjórn­ar­innar sem nú eru fram komnar.

[links]Þýski orkuris­inn Uniper SE og sá aust­ur­ríski, OMV AG, hafa einnig sagt að þeir verði að halda gas­kaupum við Rússa áfram þrátt fyrir við­skipta­þving­an­irnar.

Efna­hags­ráð­herra Þýska­lands, Robert Habeck, seg­ist bjart­sýnn á að orku­fyr­ir­tækin geti greitt reikn­inga sína fyrir mán­aða­mótin og að rúss­neska gasið haldi áfram að flæða til not­enda í Evrópu þrátt fyrir kröfur rúss­neskra stjórn­valda um greiðslur í rúblum. „Fyr­ir­tækin munu borga næstu reikn­inga sína í evrum,“ sagði hann í gær. Samkvæmt skil­málum við­skipta­banns­ins mega rúss­neskir bankar milli­færa þessar greiðslur inn á svo­kall­aða K-reikn­inga, útskýrði Habeck, en sagði ekk­ert um hvort milli­færslan mætti vera í rúblum. „Þetta er að mínu mati sam­kvæmt við­skipta­þving­un­unum og fram­kvæmda­stjórn ESB er á sama máli.“

Mateusz Morawiecki, for­sæt­is­ráð­herra Póllands, gagn­rýnir ESB fyrir að gefa eftir gagn­vart Rússum þegar kemur að greiðslum sem í raun verða í rúblum.

„Ég varð fyrir von­brigðum að sjá að innan Evr­ópu­sam­bands­ins er sam­þykki fyrir því að borga fyrir gas í rúblum,“ sagði hann um helg­ina. „Pólland mun standa við sitt og ekki láta undan kúg­unum Pútíns.“

Pólland á landa­mæri að Úkraínu og þangað hefur fólk leitað skjóls undan stríð­inu í miklum mæli. Ógnin sem Pólland upp­lifir vegna stríðs­rekstrar Rússa í Úkraínu er þar raun­veru­legri og áþreif­an­legri en víð­ast hvar ann­ars staðar í Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár