Hægt að ná „heilmikilli orkuframleiðslu“ með virkjanakostum í nýtingarflokki

For­sæt­is­ráð­herra segir hægt að ná fram „heil­mik­illi orku­fram­leiðslu“ með þeim virkj­ana­kostum sem eru í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar sem og með stækkun núver­andi virkj­ana.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Afhend­ingar­ör­yggi raf­orkunnar, virkj­ana­kostir sem þegar eru í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar og stækkun núver­andi virkj­ana eru atriði sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs nefnir þegar hún er spurð út í þau orð Sigurðar Inga Jóhans­sonar inn­við­a­ráð­herra að virkja þurfi meira á Íslandi.

Katrín sagði í sam­tali við blaða­mann Vísi í beinni útsend­ingu eftir rík­is­stjórn­ar­fund í morgun að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son umhverf­is­ráð­herra hefði tekið afhend­ingar­ör­yggi raf­orku upp á fund­inum. „Að sjálf­sögðu er það okkar allra hagur að það sé hægt að keyra fiski­mjöls­verk­smiðj­urnar á grænni orku,“ sagði Katrín þegar hún var spurð hvort að virkja þyrfti meira m.a. í ljósi þeirra tíð­inda að Lands­virkjun hefði orðið að skerða afhend­ingu á raf­orku til verk­smiðj­anna. „Hins vegar má ekk­ert gleyma því að við erum auð­vitað með ákveðna kosti í nýt­ing­ar­flokki og það er hægt að ná fram heil­mik­illi orku­fram­leiðslu með þeim kostum sem þar eru og líka með stækkun á núver­andi virkj­unum.“

[adspot]

For­sæt­is­ráð­herra sagði það þjóna „mjög litlum til­gangi að reyna alltaf að færa þessa umræðu í skot­grafir. Við erum með tól og tæki til að geta tryggt þetta fram­boð en hins vegar hef ég haft áhyggjur af flutn­ings­kerf­inu og að þar megi ráð­ast í úrbætur.“ Benti hún á að á síð­asta þingi hefði verið lagt fram frum­varp til að ein­falda ákveðnar ákvarð­ana­tökur í kringum lagn­ingu á háspennu­línum. Það hafi ekki náð fram að ganga.

Hún sagð­ist taka því alvar­lega „að sjálf­sögðu“ að skerða hafi þurft orku til fiski­mjöls­verk­smiðja. „Það er yfir­lýst mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar að færa sig yfir í græna orku“.

Orku­skort­ur­inn sem veldur því að skerða þarf afhend­ingu raf­magns til fiski­mjöls­verk­smiðja og nokk­urra stórnot­enda m.a. álvera og gagna­vera, er að sögn Lands­virkj­unar til­kom­inn vegna nokk­urra þátta.

Í til­kynn­ingu sem fyr­ir­tækið sendi frá sér í gær var í fyrsta lagi nefnt að raf­orku­vinnsla hjá öðrum fram­leið­anda, sem átti að koma inn í vik­unni, kæmi ekki inn í kerfið fyrr en í lok næstu viku. Þá nægi full keyrsla í Vatns­fells­virkjun ekki til að halda uppi orku­fram­leiðslu á Þjórs­ár­svæði. „Krókslón hefur lækkað það mikið að byrjað var að hleypa vatni fram­hjá Vatns­felli í dag til að stöðva lækkun, en einnig verður að draga úr orku­sölu til að draga úr vinnslu,“ sagði í til­kynn­ing­unni. Þar var einnig tekið fram að bilun hefði komið upp í vél í Búrfelli og fyr­ir­séð væri að hún kæmi ekki í rekstur fyrr en með vor­inu.

Flutningskerfið flöskuháls

Lands­virkjun hefur full­nýtt getu flutn­ings­kerf­is­ins til að flytja orku frá Norð­aust­ur­landi til álags­punkta á Suð­vest­ur­landi, en flutn­ings­kerfið ræður ekki við að flytja alla þá orku sem hægt væri að færa milli lands­hluta, sagði enn­fremur í til­kynn­ing­unni. „Hinn 23. ágúst sl. fyllt­ist Hálslón á Kára­hnjúkum og þremur dögum síðar nam afl yfir­falls­ins um 2000 MW. Á 10 dögum rann því fram­hjá orka, sem sam­svarar heils­ár­notkun allra bræðslna á land­inu, þegar ver­tíð er góð. Með sterkara flutn­ings­kerfi hefði mátt nýta stóran hluta þeirrar orku sem rann fram hjá. Áætla má að tak­mark­anir í flutn­ings­kerf­inu dragi úr vinnslu­getu kerf­is­ins sem nemur allt að 500 GWh. Að loknu sumri með jafn ójafnri dreif­ingu góð­viðr­is­daga og raun bar vitni koma áhrifin fram með sér­stak­lega sterkum hætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár