„Ég mun ekki ná að leysa loftslagsvandann fyrir þessi jól“

Formaður Við­reisnar spurði umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra á þingi í dag hvað hann ætl­aði sjálfur að gera til að tryggja raf­orku­flutn­ing fyrir jólin.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Formaður Við­reisnar, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, spurði Guðlaug Þór Þórð­ar­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag hver bæri ábyrgð á ófull­burða flutn­ings­kerfi raf­orku og þeirri stöðu sem blasti við mönnum víða um land í orku­málum. Ráð­herr­ann sagði að hann myndi ekki sitja með hendur í skauti þegar kemur að þessum mála­flokki og að Íslend­ingar þyrftu að sjá til þess að það væri ekki ein­ungis raf­orku­ör­yggi hér á landi heldur þyrfti einnig að vera fram­boð af end­ur­nýj­an­legri orku.

Þor­gerður Katrín sagð­ist í upp­hafi fyr­ir­spurnar sinnar vilja ræða við Guðlaug Þór um raf­orku­ör­yggi. „Það er mál sem hefur verið mikið á milli tann­anna á fólki í sam­fé­lag­inu um ára­bil, ekki síst á vakt þess­arar rík­is­stjórnar og þeirrar fyrri. Orku­málin hafa einnig, vel að merkja, verið sér­stak­lega á könnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins síð­ustu níu ár og lítið sem ekk­ert hefur gerst og meira að segja er það þannig að það er eins og óveður og nátt­úru­ham­farir dugi vart til að rík­is­stjórn­inni verði gert rúm­rusk í þessum efnum.“

Fram kom í máli hennar að henni fynd­ist mikið talað en að lítið væri gert. „Það er ekki boð­legt árið 2021 að heim­ili og fyr­ir­tæki í land­inu hafi ekki greiðan aðgang að raf­orku, að verið sé að mis­muna fólki og fyr­ir­tækjum eftir búsetu eða stað­setn­ingu á land­inu hvað varðar þessa grund­vall­ar­inn­viði. Sterkt flutn­ings­kerfi er for­senda þess, eins og við vitum, að atvinnu­líf og nýsköpun blóm­stri og blóm­leg byggð fái að þríf­ast um allt land.

Það var áhuga­vert, fannst mér, að sjá stjórn­ar­liðið vakna til lífs­ins, þessa sömu flokka og hafa borið ábyrgð á flutn­ings­kerf­inu síð­ustu níu ár, vegna skerð­inga á raf­orku til stór­út­gerð­ar­innar. Það er vissu­lega grafal­var­legt mál að stór­fyr­ir­tækin, hvar sem þau eru á land­inu, hafi ekki greiðan aðgang að raf­orku. En skerð­ing á raf­orku hefur verið í gangi á Vest­fjörðum, á Suð­ur­nesjum, í Eyja­firð­inum og víðar. Ég hef veru­legar áhyggjur af því að við séum að fá fjögur ár í við­bót af þessu sama gamla, af miklu tali og miklu hjali, en síðan verði lítið gert,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Spurði hún ráð­herr­ann hver skoðun hans væri á þeirri stöðu sem nú væri uppi og því aðgerða­leysi sem ríkt hefði. „Hver er það sem ber ábyrgð á ófull­burða flutn­ings­kerfi og þeirri stöðu sem blasir við mönnum víða um land í orku­málum?“ spurði hún.

Íslendingar „með algjöra sérstöðu í heiminum“

Guð­laugur Þór svar­aði og sagð­ist geta tekið undir margt sem kæmi fram í máli Þor­gerðar Katrínar. „Það er bara mjög gott ef þessi mála­flokkur fær athygli vegna þess að hann er afskap­lega mik­il­vægur. Hátt­virtur þing­maður vísar til ein­hvers sem okkur finnst vera sjálf­sagt sem er raf­orku­ör­yggi. En hátt­virtur þing­maður rakti það líka að við höfum séð að þar má margt betur fara. Mér finnst hins vegar helst til ósann­gjarnt hjá hátt­virtum þing­manni að tala eins og ekk­ert hafi verið gert í því. Hins vegar liggur alveg fyrir að þetta hefur ekki fengið þá athygli sem það ætti að fá. Ég get alveg lofað hátt­virtum þing­manni því að sá sem hér stendur mun ekki sitja með hendur í skauti þegar kemur að þessum mála­flokki,“ sagði hann.

Fram kom í máli hans að málið sner­ist ekki ein­ungis að því sem okkur fynd­ist vera sjálf­sagt í dag. „Við erum að fara í orku­skipti aftur. Þegar við gerðum það hér áður var það afskap­lega far­sælt skref. Lengi vel vorum við — ég veit ekki alveg hvort rétt sé að segja að við höfum verið ein í því, en í það minnsta vorum við með algjöra sér­stöðu í heim­inum þegar kom að því að nota end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa. Ég held að við séum örugg­lega enn þá í fremstu röð. Það liggur alveg fyrir að við höfum sett okkur metn­að­ar­full mark­mið í lofts­lags­málum. Við ætlum að vera fremst meðal jafn­ingja og það þýðir bara eitt: Við þurfum að sjá til þess að það sé ekki bara raf­orku­ör­yggi hér heldur þarf auð­vitað að vera fram­boð af end­ur­nýj­an­legri orku. Það segir sig algjör­lega sjálft.“

Hvatti ráðherrann til dáða

Þor­gerður Katrín sagði að hún væri nokkuð ánægð með margt í máli ráð­herr­ans. „Hann við­ur­kennir, og mér finnst það heið­ar­legt, að það hafi verið ákveð­inn skortur á athygli á þessum málum.“

Hvatti hún ráð­herr­ann til dáða í þessu efni. „Ég hef ekki, frekar en hann, farið um land allt í kjör­dæma­vik­unni á síð­ustu árum og ára­tugum án þess að raf­orku­málin séu til umræðu. Ég hef nefnt Suð­ur­nesin, Vest­firði og Eyja­fjörð­inn. Auðvitað er þetta þegar upp er staðið á ábyrgð rík­is­stjórn­ar­flokk­anna sem nú eru. Þannig er það bara. Þess vegna fagna ég því ef loks­ins á að fara að taka svo­lítið til hend­inni og ég vil hvetja ráð­herr­ann áfram til dáða. Hér verða að vera undir sjálf­bær sjón­ar­mið, græn orka, grænar fjár­fest­ingar, flutn­ings­ör­yggi, öryggi fyrir fólkið okkar. Þetta er spurn­ing um jöfn tæki­færi og jöfn búsetu­skil­yrði,“ sagði hún.

Spurði hún í fram­hald­inu hvað Guð­laugur Þór ætl­aði sjálfur að gera. „Hver verða hans fyrstu skref í emb­ætti til að tryggja að flutn­ings­ör­yggi verði betra þannig að það verði ekk­ert vafa­mál hjá fólk­inu í land­inu hvort jólasteikin fái að vera í ofn­inum án þess að raf­magn slái út á mörgum heim­ilum lands­ins?“

Fagnaði aðhaldinu

Ráð­herr­ann svar­aði í annað sinn og þakka Þorgerði Katrínu fyrir brýn­ing­una. „Ég verð hins vegar að upp­lýsa það hér fyrir framan þing og þjóð að ég mun ekki ná að leysa lofts­lags­vand­ann fyrir þessi jól. Það bara liggur fyrir. Við erum að stíga gríð­ar­lega stór skref og það er afskap­lega mik­il­vægt að allir séu með­vit­aðir um það. Þetta er græn bylt­ing. Mikið af þessu er þannig, sér­stak­lega þegar kemur að raf­orku­málum, að því miður tekur það tíma að und­ir­búa og líka að fram­kvæma, við þekkjum það ég og hátt­virtur þing­maður. Nú er það ekki þannig að maður komi að auðu borði, það er ekki svo.“

Hann sagð­ist hins vegar vona að spurn­ing Þor­gerðar Katrínar vís­aði á það að í þing­sal myndu þau taka umræðu um þessi mál og fagn­aði hann því að hún veitti honum, rík­is­stjórn­inni og stjórn­ar­meiri­hlut­anum aðhald í þessu máli. „Það er nokkuð sem ég fagna mjög og ég von­ast til að góð sam­staða verði um það sem við förum í.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár