Stefnt á sölubann á nýjum bensín- og dísilbílum

Ef stjórn­völd í Kali­forn­íu­ríki í Banda­ríkj­unum sam­þykkja að banna sölu á nýjum bílum sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti þykir lík­legt að fleiri ríki muni fylgja í kjöl­farið.

Bílaeign er hvergi meiri í Bandaríkjunum miðað við íbúafjölda en í Kaliforníu
Bílaeign er hvergi meiri í Banda­ríkj­unum miðað við íbúa­fjölda en í Kali­forníu Mynd: EPA

Í dag, fimmtu­dag, gætu stjórn­völd í Kali­forn­íu­ríki tekið sögu­lega ákvörðun: Að banna sölu á nýjum bílum sem ganga fyrir bens­íni eða dísilolíu. Fari kosn­ing um málið á þann veg mun algjört bann á sölu slíkra bíla taka gildi árið 2035. Gavin Newsom rík­is­stjóri hefur kallað aðgerð­ina „upp­hafið að enda­lokum“ bruna­hreyf­ils­ins. „Þetta er eitt stærsta skrefið sem tekið verður á þeirri veg­ferð að útrýma púströr­inu eins og við þekkjum það.“

[adspot]

Kali­fornía er sann­kallað himna­ríki einka­bíls­ins. Hvergi er að finna fleiri bíla miðað við höfða­tölu í gjörvöllum Banda­ríkj­unum. En líkt og fram kemur í ítar­legri frétta­skýr­ingu New York Times, sýnir sagan að önnur ríki fylgja oft for­dæmi Kali­forníu og lík­legt þykir að það ger­ist einnig í þessu máli.

„Þetta er risa­stórt skref,“ hefur New York Times eftir Margo Oge, sér­fræð­ingi í raf­bílum sem leiddi lofts­lags­verk­efni Umhverf­is­stofn­unar Banda­ríkj­anna í for­seta­tíð Baracks Obama, Bills Clinton og George W. Bush.

Tekið í skrefum

Loft­gæða­ráð Kali­forníu (California Air Resources Board) leggur til­lög­una fram og verði hún sam­þykkt verða engir bílar sem brenna jarð­efna­elds­neyti seldir í rík­inu frá og með árinu 2035. Í til­lög­unni eru einnig sett mark­mið um að draga úr fjölda slíkra far­ar­tækja þar til algjört bann tæki við. Stefnt er að því að árið 2026, eftir aðeins fjögur ár, muni aðrir elds­neyt­is­gjafar en þeir sem losa koldí­oxíð knýja 35 pró­sent allra nýrra far­ar­tækja ætluð fyrir far­þega­flutn­inga. Tak­markið er að hlut­fallið verði komið upp í 68 pró­sent árið 2030.

Sam­göngur eru helsti los­un­ar­valdur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í Banda­ríkj­unum. En er of bratt að banna bruna­bíla fyrir árið 2035?

John Bozzella, for­seti banda­ríska bíl­greina­sam­bands­ins, segir að vissu­lega vilji bíla­fram­leið­endur taka þátt í því að koma fleiri raf­magns­bílum á göt­urnar en að ná mark­miði Kali­forn­íu­ríkis yrði „gríð­ar­lega krefj­andi“. Margir þættir spili þar inn í, s.s. aðgengi að hleðslu­stöðvum og ekki síður fram­leiðsla bíl­anna sjálfra. Hann bendir einnig á að afla þurfi nauð­syn­legra og fágætra jarð­efna og tryggja þurfi nægt fram­boð á þeim. Fram­leiðslu­keðjur hafi allar laskast í COVID-far­aldr­inum og séu enn ekki komnar á rétt ról.

Kali­forn­íu­ríki hefur lengi viljað setja sínar eigin reglur um meng­andi bíla en ljónið Donald Trump stóð í veg­inum áður. Enn leggj­ast repúblikanar gegn því að ríki geti sett slíkar reglur óháð alrík­inu.

Margir þeirra sem gagn­rýna reglu­gerðir um fyrir hvers konar elds­neyti bílar verða að ganga hafa bent á að verð á raf­bílum er enn mun hærra en verð á sam­bæri­legum bruna­bílum í Banda­ríkj­unum. Þá hafa sér­fræð­ingar í orku­geir­anum bent á að stór­aukin raf­bíla­eign á skömmum tíma muni valda miklu álagi á raf­orku­kerfið, kerfi sem er veik­byggt á mörgum stöðum í land­inu. „Hvaðan á aukið raf­magn að koma?“ spyr Ann Bluntzer, sem fer fyrir orku­stofnun innan háskóla í Texas. „Úr jarð­efna­elds­neyti? Vindi? Sól­ar­orku? Vatns­orku?“

Biden boðar breytingar

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti stað­festi í síð­ustu viku ný lofts­lags­lög. Samkvæmt þeim á að veita 370 millj­örðum dala í íviln­anir fyrir verk­efni sem miða að auk­inni notkun „grænnar orku“.

Það eitt og sér mun ekki bjarga heim­inum. Og ekki verða til þess að mark­mið um kolefn­is­hlut­leysi náist. Þess vegna hafa emb­ætt­is­menn Hvíta húss­ins heitið því að til frek­ari aðgerða verði gripið og segja má að mögu­legt bann við nýjum bruna­bílum í Kali­forníu sé meðal slíkra aðgerða. Biden hefur ólíkt for­vera sínum Trump hvatt ríki lands­ins til að taka sjálf­stæðar og metn­að­ar­fullar ákvarð­anir í lofts­lags­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár