Halla Hrund næsti orkumálastjóri

Hæf­is­nefnd mat fimm umsækj­endur um starf orku­mála­stjóra hæfa. Eftir við­töl við þá taldi Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir að Halla Hrund Loga­dóttir væri hæfust þeirra til að gegna starf­inu næstu fimm árin.

Halla Hrund Logadóttir.
Halla Hrund Loga­dóttir.

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, hefur skipað Höllu Hrund Loga­dóttur í emb­ætti orku­mála­stjóra frá og með 19. júní 2021.

Fimmtán manns sóttu um starfið, sem aug­lýst var undir lok síð­asta árs. Á meðal ann­arra umsækj­enda voru Guð­mundur Þór­odds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Orku­veitu Reykja­vík­ur, Björn Óli Hauks­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Isa­via og Jón Þór Sturlu­son fyrr­ver­andi aðstoð­ar­for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Tvær umsóknir voru dregnar til baka.

Ráð­herra skip­aði nefnd til að meta hæfni umsækj­enda og skila grein­ar­gerð um þá. Í henni sátu Kristín Har­alds­dóttir lektor og for­maður nefnd­ar­inn­ar, Birgir Jóns­son rekstr­ar­hag­fræð­ingur og Ingvi Már Páls­son skrif­stofu­stjóri.

Hæfn­is­nefndin mat fimm umsækj­endur hæf­asta til þess að gegna emb­ætt­inu. Ráðherra boð­aði í fram­haldi við­kom­andi fimm umsækj­endur til við­tals og var það mat ráð­herra að Halla Hrund væri hæfust umsækj­enda til að stýra Orku­stofnun til næstu fimm ára.

[adspot]Halla Hrund er með BA gráðu í stjórn­mála­fræði, meistara­gráðu í alþjóða­sam­vinnu með áherslu á hag­fræði og orku­mál og meistara­gráðu í opin­berri stjórn­sýslu frá Harvard Háskóla með áherslu á umhverfis- og orku­mál. Húnhefur starfað frá árinu 2017 sem með­stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri við mið­stöð norð­ur­slóða, Arctic Ini­ti­ative, við Harvard háskóla sem beinir sjónum meðal ann­ars að áhrifum lofts­lags­mála, og kennir jafn­framt á meist­ara­stigi við sömu stofnun. Frá árinu 2019 hefur hún með­stýrt kort­lagn­ingu breyt­inga­þátta Norð­ur­slóða, meðal ann­ars orku­mála, á vett­vangi World Economic Forum. Halla Hrund hefur auk þess frá árinu 2015 starfað sem stofn­andi og for­maður Arctic Innovation Lab og starfað sem leið­bein­andi í ýmsum orku­tengdum nýsköp­un­ar­hröðlum.

Hún hefur setið í stjórn Orku­sjóðs frá árinu 2015 og sama ár hóf hún störf sem stunda­kenn­ari við Háskól­ann í Reykja­vík þar sem hún kennir nám­skeið um stefnu­mótun á sviði orku­mála með áherslu á lofts­lags­mál. Halla Hrund var fram­kvæmda­stjóri Iceland School of Energy við Háskól­ann í Reykja­vík frá árinu 2013 fram til árs­ins 2016. Árin 2011 til 2013 var Halla Hrund for­stöðu­maður Alþjóða­þró­unar við Háskól­ann í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár