Ekki hafi verið sýnt fram á brýna nauðsyn röskunar eldhrauns við Skjálfandafljót

Ljóst er að með til­komu fyr­ir­hug­aðrar Ein­búa­virkj­unar verður um að ræða inn­grip í vatnafar Skjálf­anda­fljóts sem hefur í för með sér nei­kvæð áhrif á fljótið á til­teknum kafla. Þetta kemur fram í áliti Skipu­lags­stofn­unar á mats­skýrslu um virkj­un­ina.

Skýringarmynd af brú á Bárðardalsvegi eystri yfir frárennslisskurð við Kálfborgará miðað við virkjunartilhögun B.
Skýr­ing­ar­mynd af brú á Bárð­ar­dals­vegi eystri yfir frá­rennsl­is­skurð við Kálf­borg­ará miðað við virkj­un­ar­til­högun B. Mynd: Úr matsskýrslu

Ein­búa­virkjun í Skjálf­anda­fljóti, sem er áformuð í Bárð­ar­dal í Þing­eyj­ar­sveit, myndi raska eld­hrauni sem nýtur sér­stakrar verndar sam­kvæmt lögum um nátt­úru­vernd og forð­ast ber að raska nema vegna brýnna hags­muna sem í grein­ar­gerð með núgild­andi nátt­úru­vernd­ar­lögum hafa verið túlk­aðir sem brýnir almanna­hags­munir. „Skipu­lags­stofnun telur að ekki hafi verið sýnt fram á brýna nauð­syn fyrir röskun hrauns­ins og telur stofn­unin að setja verði það sem skil­yrði við leyf­is­veit­ingar að mun ítar­legri rök­stuðn­ingur liggi fyrir.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í áliti stofn­un­ar­innar á mats­skýrslu Ein­búa­virkj­unar ehf. sem fyr­ir­hugar 9,8 MW rennsl­is­virkjun í landi jarð­anna Kálf­borg­arár og Einbúa í Bárð­ar­dal. Eina­búa­virkjun yrði fyrsta virkj­unin í Skjálf­anda­fljóti en tvær virkj­ana­hug­myndir, Fljóts­hnúks­virkjun og Hrafna­bjarga­virkjun, eru í vernd­ar­flokki 3. áfanga ramma­á­ætl­unar en þings­á­lykt­un­ar­til­laga þar um hefur nú beðið afgreiðslu á Alþingi í fjögur ár. Ein­búa­virkjun fellur hins vegar ekki undir ákvæði laga um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun (ramma­á­ætlun) þar sem hún er undir 10 MW að upp­settu afli.

[adspot]

Ein­búa­virkjun ehf. er í eigu Hilmars Ágústs­sonar og Krist­jáns Gunnars Rík­harðs­sonar í gegnum félögin Kepler ehf. og SIKMAS ehf. Markmið Ein­búa­virkj­unar ehf. er að „stuðla að arð­bærri fram­leiðslu raf­magns á Norð­ur­landi sem leitt geti til áfram­hald­andi vaxtar og upp­bygg­ingar atvinnu­lífs á svæð­inu,“ segir í mats­skýrslu.

Við virkj­un­ina stendur til að nýta 24 metra fall á um það bil 2,6 kíló­metra kafla Skjálf­anda­fljóts. Samkvæmt hug­myndum virkj­un­ar­að­ila verður reist það sem í mats­skýrslu er kallað yfir­fall, 185 metra og 1,6 metra hátt, þvert yfir fljótið. Þar sem ekki mynd­ist uppi­stöðu­lón við virkj­un­ina sé ekki um stíflu að ræða. „Yfirfall við inn­tak hennar myndar mót­stöðu við rennsli Skjálf­anda­fljóts sem beinir hluta rennsl­is­ins til virkj­un­ar­innar,“ segir í skýrsl­unni. Vatni verði veitt úr yfir­fall­inu um 1,3 kíló­metra langan aðrennsl­is­skurð að stöðv­ar­inntaki. Stöðv­ar­hús á að reisa skammt neðan við inn­takið og þaðan verður frá­rennsli veitt um 1,3 kíló­metra langan veg út í Skjálf­anda­fljót til móts við bæinn Einbúa.

Í mats­skýrslu Ein­búa­virkj­unar ehf., sem unnin er af Verkís, eru lagðir fram tveir kostir um til­högun virkj­un­ar­innar, ann­ars vegar kostur A sem gerir ráð fyrir að frá­veita frá stöðv­ar­húsi verði að hluta í jarð­göngum en veita aðrennslis og frá­rennslis að öðru leyti í skurði og hins vegar kostur B sem geri ráð fyrir að veitu­leiðir verði ein­göngu í skurði. Yfir­fallið mun beina vatni inn í aðrennsl­is­skurð virkj­un­ar­innar og við mynni skurð­ar­ins verður reist inn­taks­virki með lokum og þar fyrir framan stað­sett um 25 m langt ísfleyt­ing­ar­yf­ir­fall (krapafleyta) sem hindrar að rekís og krapi ber­ist inn í aðrennsl­is­skurð­inn. Fram kemur að byggður verði fiski­stigi við vest­ur­bakka fljóts­ins til að tryggja að yfir­fallið hindri ekki göngu hrygn­ing­ar­laxa.

Frá inn­taks­virki við fljóts­bakk­ann er gert ráð fyrir að grafa og sprengja rúm­lega eins kíló­metra langan aðrennsl­is­skurð í landi Kálf­borg­arár og mun hann að miklu leyti liggja um tún bæj­ar­ins.

Upptök Skjálf­anda­fljóts, sem er jök­ul­skotin dragá, eru í Tungna­fellsjökli og Vatna­jökli, 178 kíló­metra frá ósi og vatna­svið þess er áætlað tæp­lega 4.000 fer­kíló­metrar. Jök­ul­vatnið kemur úr Bárð­ar­bungu Vatna­jök­uls og úr Tungna­fellsjökli, lind­ar­vatn víðs vegar úr Ódáða­hrauni í austri og mest drag­vatn kemur úr vestri, af Sprengisandi og úr vest­ur­hlíðum Bárð­ar­dals.

Með­al­rennsli Skjálf­anda­fljóts á fyr­ir­hug­uðum virkj­un­ar­stað er áætlað um 88 m3/s. Virkjað rennsli yrði 47 m3/s. Rennsli er öllu meira á sumrin en á vet­urna en vatns­rennslið yfir vet­ur­inn er að með­al­tali um 55-60 m3/s. Virkj­un­ar­að­ili hyggst tryggja að rennsli um áhrifa­svæði verði aldrei minna en 6 m3/s.

Mun rýra verndargildi Skjálfandafljóts

Nátt­úru­vernd­ar­nefnd Þing­ey­inga, sem var einn umsagn­ar­að­ila í skipu­lags­ferli fyr­ir­hug­aðrar virkj­unar, benti í umsögn sinni á að það sem lá til grund­vallar til­lögu um friðun Skjálf­anda­fljóts hafi verið að rennsl­is­stýr­ing hafi í för með sér nær algera röskun á jarð­fræði­legu ferli. „Stífla Ein­búa­virkj­unar í Skjálf­anda­fljóti muni hamla því að vatn, aur og ís renni óhindrað eftir far­vegi Skjálf­anda­fljóts með þeim hætti sem nú er,“ segir í umsögn­inni. Stíflan leiði til þess að stór hluti rennslis fljóts­ins verði tekið úr far­vegi árinnar á tæp­lega þriggja kíló­metra löngum kafla. Á þeim kafla muni far­veg­ur­inn standa nær vatns­laus við lág­marks­rennsli að vetri og ekk­ert vatn muni þá flæða yfir stífl­una. „Ein­búa­virkjun muni rýra vernd­ar­gildi fljóts­ins veru­lega. Líta verði til þess að tjón af fyrstu virkjun er hlut­falls­lega meira en þeirra sem á eftir koma. Því ætti Ein­búa­virkjun að hald­ast í hendur með öðrum virkj­un­ar­kostum í Skjálf­anda­fljóti sem voru metnir í ramma­á­ætlun 3.“

[adspot]

Í áliti Skipu­lags­stofn­unar á mats­skýrsl­unni kemur fram að skýrslan upp­fylli að mestu skil­yrði laga og reglu­gerðar um mat á umhverf­is­á­hrifum og að umhverf­is­á­hrifum hafi verið lýst á full­nægj­andi hátt. Óvissa sé þó um hvernig eigi að við­halda því aur­magni sem berst á nátt­úru­legan hátt þrátt fyrir stíflun Skjálf­anda­fljóts og veru­legri skerð­ingu á rennsli árinnar á kafla, auk þess sem óvissa er um áhrif á lax og straumönd.

Í álit­inu er bent á að fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir, hvort sem til­högun A eða B verður fyrir val­inu, hafa nokkuð nei­kvæð áhrif á gróður, m.a. á vist­gerðir sem hafi mjög hátt vernd­ar­gildi. Þar sem þessi gróð­ur­svæði eru talin vera um 4 hekt­arar af öllu áhrifa­svæði virkj­un­ar­innar lítur Skipu­lags­stofnun hins vegar ekki svo á að vot­lendið sem fyrir raski yrði falli undir sér­staka vernd sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum.

Aðra sögu er að segja um jarð­mynd­anir en Bárð­ar­dals­hraun, hulið gróðri og jarð­vegi, er innan fyr­ir­hug­aðs fram­kvæmda­svæðis. Hraunið nýtur sér­stakrar verndar og telur stofn­unin að um verði að ræða áhrif sem séu umfangs­mikil, óaft­ur­kræf og líta megi á sem tals­vert nei­kvæð. Þá myndi virkj­unin hafa nei­kvæð áhrif á fugla, bæði vegna rasks og ónæðis á fram­kvæmda­tíma sem og þar sem fuglar glata búsvæðum sínum að fram­kvæmdum loknum.

Skipu­lags­stofnun telur ljóst að Ein­búa­virkjun myndi verða inn­grip í vatnafar Skjálf­anda­fljóts og hafa nei­kvæð áhrif á það vegna skerts rennslis, einkum að vetri til. Líta beri þó til þess að um hlut­falls­lega stuttan kafla fljóts­ins sé að ræða. Hins vegar telur stofn­unin óvissu uppi um áhrif virkj­unar á nátt­úru­legan aur­burð fljóts­ins og leggur áherslu á mik­il­vægi vökt­unar á þessum þætti ef af virkjun verður.

Skipu­lags­stofnun telur að helstu nei­kvæðu áhrif fram­kvæmd­ar­innar felist í breyttu yfir­bragði nær­svæðis virkj­un­ar­innar með til­komu ýmissa mann­virkja sem koma til með að breyta ásýnd hefð­bund­ins land­bún­að­ar­hér­aðs í svæði sem ber ein­kenni iðn­að­ar­svæðis „með umfangs­miklum skurðum fyrir aðveitu og frá­veitu, stöðv­ar­hús, vegum og brúm sem og stíflum og inn­taks­virkjum, auk aur­skol­un­ar­mann­virkja sem stinga að öllu leyti í stúfa við það umhverfi sem er á svæð­inu við núver­andi aðstæður“. Segir í áliti stofn­un­ar­innar að skurð­irnir muni hafa nei­kvæð­ustu áhrif á ásýnd og yfir­bragð auk þess sem rennsli fljóts­ins á kafla yrði aðeins brot af nátt­úru­legu rennsli sem myndi hafa var­an­leg áhrif á ásýnd og lands­lag.

Ein­búa­virkjun ehf. hefur vísað til þess að að kostn­aður við gerð aðrennslis í pípu sé of hár til að arð­semi næð­ist af fram­kvæmd­inni. Að mati Skipu­lags­stofn­unar er það þó æski­legur fram­kvæmda­kostur með til­liti til umhverf­is­á­hrifa að gera ráð fyrir að- og frá­rennsl­is­göngum/-pípum eins og frekast er kostur. Er það því nið­ur­staða Skipu­lags­stofn­unar að umhverf­is­á­hrif af val­kosti A, þar sem gert er ráð fyrir jarð­göngum að hluta, séu minni en af val­kosti B. Ætti því að gera til­högun A að aðal­val­kosti, sýni rann­sóknir á jarð­lögum fram á að slíkt sé ger­legt. Ætti fram­kvæmda­að­ili að leggja fram gögn sem sýna fram á að slíkt sé ekki hægt, verði það raunin. Minnir stofn­unin á að það sé hlut­verk sveit­ar­fé­lags, í sam­vinnu við fram­kvæmda­að­ila, að fylgja þessu atriði eftir við deiliskipu­lags­gerð og und­ir­bún­ing fram­kvæmda­leyfis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár