Óvissu um starfsemi álversins í Straumsvík eytt með breyttum samningi við Landsvirkjun

Lands­virkjun og Rio Tinto ná saman um að breyta raf­orku­samn­ingi álvers­ins í Straums­vík. For­stjóri Rio Tinto á Íslandi segir að þetta eyði óvissu um starf­sem­ina.

Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, skrifa undir samkomulagið.
Rannveig Rist, for­stjóri Rio Tinto á Íslandi, og Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, skrifa undir sam­komu­lagið.

Lands­virkjun og Rio Tinto, eig­andi álvers­ins í Straums­vík, hafa náð sam­komu­lagi um að breyta raf­orku­samn­ingi milli fyr­ir­tækj­anna sem gerður var árið 2010. Samhliða þessu hefur Rio Tinto sam­þykkt að draga kvörtun sína til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins varð­andi orku­sölu til álvers­ins, sem lögð var fram í fyrra­sumar, til­baka.

Í til­kynn­ingu frá báðum fyr­ir­tækj­unum kemur fram að grunnur þess verðs sem Rio Tinto greiðir fyrir raf­orku frá Lands­virkjun muni breyt­ast. Hann verður áfram bund­inn Banda­ríkja­dal og tengdur banda­rískri vísi­tölu neyslu­verðs (CPI), en verður nú að litlum hluta einnig tengdur álverði. Sú teng­ing var afnumin í samn­ingnum 2010.

Samn­ing­ur­inn mun áfram kveða á um sölu á 390 MW eða 3.415 GWst á ári og gildir til árs­ins 2036. Sam­komu­lagið er við­auki við gild­andi samn­ing frá 2010. Trún­að­ar­á­kvæði þess samn­ings eru enn í gildi og samn­ing­ur­inn verður því ekki opin­ber­aður að svo stöddu.

[adspot]Í febr­úar í fyrra sendi Rio Tinto frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem sagt var frá því að fyr­ir­tækið leit­aði allra leiða til þess að gera álverið arð­bært og sam­keppn­is­hæft á alþjóða­mörk­uð­um, meðal ann­ars með sam­tali við stjórn­völd og Lands­virkj­un. Þá væri gert ráð fyrir því að rekstur álvers­ins yrði áfram óarð­bær til skemmri og með­al­langs tíma sökum ósam­keppn­is­hæfs orku­verðs og lágs verðs á áli í sögu­legu sam­hengi.

[links]Í júlí 2020 sendi Rio Tinto form­lega kvörtun til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna þess að fyr­ir­tækið taldi Lands­virkjun hafa yfir­burða­stöðu gagn­vart álver­inu. Þar kom fram að ef Lands­virkjun myndi ekki láta af „skað­legri hátt­semi sinn­i“ myndi Rio Tinto segja upp orku­samn­ingi sínum við Lands­virkjun og loka álver­inu.

Nú virð­ast öll slík lok­unar­á­form hafa verið sett á hill­una. Í frétta­til­kynn­ing­unni sem send var út í dag er haft eftir Rann­veigu Rist, for­stjóra Rio Tinto á Íslandi, að samn­ing­ur­inn við Lands­virkjun væri ánægju­leg tíð­indi „sem eyða óvissu um starf­sem­ina í Straums­vík, um leið og sam­keppn­is­hæfni okkar batnar.“

Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, segir að nið­ur­staðan sé báðum aðilum í hag. „Markmið Lands­virkj­unar er, líkt og áður, að tryggja fyr­ir­sjá­an­legar tekjur um leið og við tökum til­lit til breyt­inga á alþjóð­legum mörk­uðum og á þörfum við­skipta­vina okkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár