Hótanir um lokun álversins í Straumsvík ekki nýjar af nálinni

Í kjara­deilum hafa fyr­ir­huguð verk­föll starfs­manna álvers­ins verið sögð geta valdið því að álverið leggi upp laupana. Þar að auki var fyr­ir­huguð stækkun álvers­ins sem var hafnað í kosn­ingu sögð „for­senda þess að fyr­ir­tækið geti haldið velli.“

Núna er það orku­samn­ingur við Lands­virkjun sem gæti valdið því að Rio Tinto, sem rekur álverið í Straums­vík, ákveði að loka álver­inu. Áður voru verk­föll sögð ógna fram­tíð álvers­ins. Á einum tíma­punkti var það kosn­ing um fyr­ir­hug­aða stækkun álvers­ins sem ræði úrslitum um fram­tíð þess. Kjarninn tók saman nokkur til­vik þar sem fram­tíð álvers­ins í Straums­vík var, að mati stjórn­enda og eig­enda, í höndum ann­arra en þeirra sjálfra.

[adspot]

Mál dagsins í dag

Í febr­úar á þessu ári sendi Rio Tinto frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem sagt var frá því að félagið leit­aði allra leiða til þess að gera álverið arð­bært og sam­keppn­is­hæft á alþjóða­mörk­uðum, meðal ann­ars með sam­tali við stjórn­völd og Lands­virkjun. Þá var gert ráð fyrir því að rekstur álvers­ins yrði áfram óarð­bær til skemmri og með­al­langs tíma sökum ósam­keppn­is­hæfs orku­verðs og lágs verðs á áli í sögu­legu sam­hengi, að því er segir í til­kynn­ing­unni.

Nú, tæpu hálfu ári síðar, hefur Rio Tinto sent form­lega kvörtun til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna þess að félagið telur Lands­virkjun hafa yfir­burða­stöðu gagn­vart álver­inu. Láti Lands­virkjun ekki af „skað­legri hátt­semi sinni“ muni ISAL segja upp orku­samn­ingi sínum við Lands­virkjun og loka álver­inu.

Staðið í vegi fyrir verkföllum

Miklar deilur stóðu yfir árið 2015 um kjör starfs­manna álvers­ins og í nóv­em­ber það ár var deilan komin í algjöran hnút. Starfs­menn voru á leið í verk­fall sem hefj­ast átti 2. des­em­ber. Fari starfs­menn álvers­ins í verk­fall þurfa þeir að halda vinnu sinni áfram í tvær vikur frá því að verk­fall hefst. Það er gert til þess að hægt sé að slökkva á kerjum álvers­ins til að lág­marka það tjón sem verður þegar bein­línis er slökkt á álver­inu.

Skömmu áður en verk­fall átti að hefj­ast sagði Ólafur Teitur Guðnason, þáver­andi tals­maður Rio Tinto á Íslandi, í sam­tali við Morg­un­blaðið að ekki væri víst að kveikt yrði aftur á kerjum álvers­ins ef til þess kæmi að slökkt yrði á þeim.

Þetta varð til þess að verk­fall­inu var aflýst. Gylfi Ingv­ars­son, sem var í for­svari fyrir starfs­menn álvers­ins, sagði stjórn­endur álvers­ins hafa stillt starfs­mönnum þess upp við vegg. Það hafi þeir gert með því að segja afdrif kjara­bar­átt­unnar ráð­ast hjá stjórn­endum Rio Tinto í útlöndum ef til verk­falls hefði komið. Margir túlk­uðu þau skila­boð þannig að álver­inu gæti lokað til fram­búðar ef til fram­leiðslu­stopps kæmi.

Svipuðum hót­unum var beitt í kjara­deilu í Straums­vík í kjara­deilu sem hófst haustið 1991. „Við höfum síðan í haust staðið í samn­inga­þófi við Ísal. Það er alveg sama um hvað er rætt, þeir hóta alltaf að loka álver­inu og flytja starf­sem­ina úr landi, ef við göngum ekki að öllum kröfum þeirra. Þetta er óþol­andi. Við kunnum ekki við þessar sífelldu hót­anir og semjum ekki undir slíkum þrýst­ingi,“ sagði Sigurður T. Sig­urðs­son, þáver­andi for­maður Verka­manna­fé­lags­ins Hlífar í Hafn­ar­firði, í sam­tali við DV í maí 1992.

Stækkun „forsenda þess að álverið geti haldið velli“

Árið 1999 hófst und­ir­bún­ingur fyrir stækkun álvers­ins í Straums­vík. Álverið hafði keypt lóð af Hafn­ar­firði undir stækk­aða verk­smiðju, fram­kvæmdin hafði stað­ist umhverf­is­mat og starfs­leyfi hafði verið veitt. En stækk­unin útheimti breyt­ingu á deiliskipu­lagi og um nýja til­lögu að deilu­skipilagi kusu Hafn­firð­ingar um árið 2007.

Á þessum tíma átti Alcan álverið í Straums­vík, en Alcan rann síðar inn í Rio Tinto. Alcan réðst í mikið kynn­ing­ar­starf á stækk­un­inni. Byggja átti tvo nýja kerskála, til við­bótar við þá þrjá sem fyrir voru, og fram­leiðslu­getan átti að fara úr 180 þús­und tonnum af áli á ári upp í 460 þús­und tonn. „Stækkun álvers­ins í Straums­vík er for­senda þess að fyr­ir­tækið geti haldið velli í sam­keppni við önnur álver um allan heim á næstu ára­tugum,“ voru ein af rökum Alcan fyrir stækkun álvers.

Á Alþingi körp­uðu um málið þeir Halldór Ásgríms­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Ögmundur Jónasson, þáver­andi þing­maður Vinstri grænna, í mars 2006. „Auðvitað er í því fólgin hótun ef stjórn­völdum er gerð grein fyrir því að til álita komi að loka álver­inu í Straums­vík ef ekki verði farið að vilja álfyr­ir­tæk­is­ins.“ sagði Ögmundur.

[adspot]

Halldór svar­aði því til að hann hefði átt fund með einum af for­stjórum Alcan. Í sam­tali þeirra hefðu engar hót­anir verið settar fram né heldur dag­setn­ing lok­unar. „En það liggur í hlut­ar­ins eðli að ef fyr­ir­tæki geta ekki þró­ast miðað við fram­tíð­ar­kröfur og breyttar aðstæður þá hefur það áhrif á þau,“ sagði hann enn fremur um málið.

Í sam­tali við Frétta­blaðið í jan­úar 2007 sagði Hrannar Pét­urs­son, þáver­andi upp­lýs­inga full­trúi Alcan á Íslandi, að ef stækk­unin yrði ekki sam­þykkt í íbúa­kosn­ingu þá væri það upp­hafið að endi álvers­ins. „Það getur vel farið svo að álver­inu verði lokað ef það verður ekki stækkað. Við viljum stækka það til að tryggja sam­keppn­is­hæfni þess til lengri tíma á alþjóð­legum mark­aði, þannig að álverið geti verið hér í að minnsta kosti 40 ár í við­bót,“ sagði Hrannar í sam­tali við blaðið.

Hafn­firð­ingar sýndu, eðli máls­ins sam­kvæmt, mál­inu mikla athygli en búist var við því að kosn­ingin yrði nokkuð jöfn. Kosning fór fram þann 31. mars og var stækk­un­inni hafnað með mjög tæpum meiri­hluta. Á móti voru 6.382 en 6.294 voru með. Einungis 88 atkvæði skildu fylk­ing­arnar að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

riotinto

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár