Starfsmenn í Straumsvík halda kröfum til streitu - Var stillt upp við vegg

Sú nið­ur­staða starfs­manna í álveri Rio Tinto í Straums­vík, að fresta verk­falls­að­gerðum sem áttu að hefj­ast 2. des­em­ber, hefur þjappað starfs­mönnum saman, og segir Gylfi Ingv­ars­son, sem er í for­svari fyrir starfs­menn, að kröfum sé haldið til streitu af jafn­vel meiri þunga nú en áður. Þetta var meðal þess sem kom fram í við­tali RÚV við Gylfa.

Gylfi sagði í við­tali við Morg­un­út­varpið á Rás 2 dag­inn eftir að verk­fall­inu var aflýst að starfs­menn álvers­ins í Straums­vík hafi ekki getað annað en aflýst verk­falli, eftir að stjórn­endur hér á landi sögðu að ella réð­ust afdrif kjara­bar­átt­unnar hjá stjórn­endum Rio Tinto í útlöndum. Þannig hafi þeim í reynd verið stillt upp við vegg.

Margir túlk­uðu þessi skila­boð sem dul­búna hótun um að álverið gæti lokað ef til fram­leiðslu­stopps kæmi, en stjórn­endur höfðu meðal ann­ars viðrar slíkar hug­myndir við bæj­ar­yf­ir­völd í Hafn­ar­firði.

Fundað er hjá samn­inga­nefnd starfs­manna á morgun klukkan fjögur, að því er fram kom í við­tal­inu við Gylfa. Þar verði farið yfir stöð­una í fram­haldi af fundum verka­lýðs­fé­lag­anna með sínum félags­mönnum í álver­inu. „Deilan snýst um að færa til störf sem verka­lýðs­hreyf­ingin hefur samn­ings­rétt fyrir. Ef þessi störf fara úr samn­ings­um­hverf­inu þar sem við sjáum um að semja yfir í samn­ings­um­hverfi á almennum mark­aði þá myndu launin lækka um 20 pró­sent. Það sér hver heil­vita maður að það er eng­inn að fara að semja um slíkt,“ sagði Gylfi meðal ann­ars í við­tal­inu við Morg­un­út­varpið.

Stjórn­endur Rio Tinto Alcan hafa sagt, að það sé krafa af hálfu fyr­ir­tæk­is­ins að vilja fá rétt til þess að leita til­boða í til­tekin verk­efni í álver­inu, með það fyrir augum að leita bestu kjara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár