Hluthafar Rio Tinto hafna starfskjarastefnu sem ofurlaun forstjórans fyrrverandi byggðu á

Fyrstu við­brögð Rio Tinto og for­stjóra þess, þegar upp komst að fyr­ir­tækið hefði eyði­lagt 46 þús­und ára gamla stein­hella, voru að segj­ast ekki hafa vitað að þeir væru heilagir í hugum frum­byggj­anna. Þessar afsak­anir voru hlut­höfum ekki að skapi.

Svæðið fyrir og eftir að Rio Tinto hafði farið yfir það með stórvirkum vinnuvélum.
Svæðið fyrir og eftir að Rio Tinto hafði farið yfir það með stór­virkum vinnu­vélum. Mynd: EPA

Hlut­hafar í Rio Tinto risu upp gegn stjórn fyr­ir­tæk­is­ins sem ákvað að greiða fyrr­ver­andi for­stjóra þess yfir millj­arð króna við starfs­lokin þrátt fyrir að hann hafi borið ábyrgð á eyði­legg­ingu helgra stein­hvelf­inga frum­byggja í Vestur-Ástralíu.

Yfir 60 pró­sent hlut­hafa í bresk-ástr­alska fyr­ir­tæk­inu Rio Tinto greiddu atkvæði gegn starfs­kjara­stefnu fyr­ir­tæk­is­ins sem var til grund­vallar þeirri ákvörðun stjórnar að greiða fyrr­ver­andi for­stjóra þess, Jean-Sébastien Jacques, 7,2 millj­ónir sterl­ingspunda, um 1,2 millj­arð króna, í laun fyrir síð­asta ár. Upphæðin er um 20 pró­sent hærri en á árinu 2019.

Jacques hætti sem for­stjóri í byrjun árs eftir stór­kost­legt hneyksl­is­mál og var þá sviptur bón­us­greiðslu upp á 2,7 millj­ónir punda, um 470 millj­ónir króna. Sú ákvörðun var tekin í sept­em­ber í fyrra og sagt að um „sam­eig­in­lega ákvörðun“ hans og stjórnar námu­fyr­ir­tæk­is­ins væri að ræða. Það sem þá hafði komið á dag­inn var að Rio Tinto hafði sprengt í loft upp Juukan Gorge, fornar og helgar stein­hvelf­ingar frum­byggja í Vestur-Ástralíu. Til­gang­ur­inn var að auð­velda aðgang að járn­grýti til námu­vinnslu.

Í frétt Guardian um málið segir að þó að for­stjór­inn fyrr­ver­andi hafi vissu­lega misst bón­us­greiðsl­una breyti nið­ur­staða hlut­haf­anna um starfs­kjara­stefn­una, sem þeir nú leggj­ast gegn, hafi hann í fyrra fengið hæstu launa­greiðslu sína frá upp­hafi. Hann svo einnig auka­greiðslur sem nema ann­ars vegar 90 millj­ónum króna og hins vegar um 37 millj­ónum vegna starfs­lokanna og orlofs sem hann átti inni.

Tveir aðrir yfir­menn Rio Tinto létu einnig af störfum vegna hneyksl­is­ins og fengu þeir starfs­loka­samn­inga sem námu um 125 millj­ónum króna á mann.

Simon Thompson, stjórn­ar­for­maður Rio Tinto, seg­ist skilja reiði fólks vegna bón­us­greiðsln­anna og starfs­loka­samn­ing­anna. Hann sagði hlut­höfum á fundi fyr­ir­tæk­is­ins í vik­unni að hann væri „þegar uppi væri staðið“ ábyrgur fyrir því sem gerð­ist við Juukan Gorge. Hann ætlar ekki að gefa kost á sér til stjórn­ar­for­mennsku áfram þegar kjör­tíma­bili hans lýkur síðar á þessu ári. Tímann þangað til ætli hann að nýta til þess að tryggja að eyði­legg­ing á borð við þá sem átti sér stað við Juukan Gorge end­ur­taki sig aldrei aftur.

Segjast ekki hafa vitað

Stein­hell­arnir í Juukan Gorge voru um 46 þús­und ára gamlir. Eyði­legg­ing Rio Tinto átti sér stað í maí á síð­asta ári en á þessum slóðum er stærstu járn­grýt­is­námu fyr­ir­tæk­is­ins, og þeirri sem gefur mest í vas­ann, að finna. For­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins héldu því í fyrstu fram að um „mis­skiln­ing“ hefði verið að ræða og að þeir hafi ekki fengið upp­lýs­ingar um að stað­ur­inn væri menn­ing­ar­lega mik­il­vægur og heil­agur í hugum fólks­ins sem þarna býr. Þessi við­brögð, sem for­stjór­inn hélt m.a. fram, hleyptu illu blóði í fjár­festa, m.a. ástr­alska líf­eyr­is­sjóð­inn Hesta. Fram­kvæmda­stjóri sjóðs­ins sagði ekki nóg að leysa þá sem beri ábyrgð á hneyksl­inu frá störfum heldur þyrfti að rann­saka málið ofan í kjöl­inn sem og aðra samn­inga sem fyr­ir­tækið er með við heima­fólk, oft frum­byggja­sam­fé­lög, á starfs­svæðum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

riotinto

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár