Óttast mengun „matarkörfunnar“ í nafni grænu byltingarinnar

Rafbílar, sól­ar­raf­hlöður og vind­myllur. Til alls þessa er nú horft sem lausnar á lofts­lags­vand­anum. En hrá­efnin falla ekki af himnum ofan. Til fram­leiðsl­unnar þarf meðal ann­ars hinn fágæta málm liþ­íum. Og eftir honum vill Rio Tinto grafa í Serbíu.

Nokkrar ár renna um Jadar-dalinn í Serbíu.
Nokkrar ár renna um Jadar-dal­inn í Serbíu. Mynd: Rio Tinto

Serbar kalla Jadar-dal­inn í vest­ur­hluta lands­ins „brauð­körf­una“. Það er skilj­an­legt því um fimmt­ungur allrar land­bún­að­ar­vara sem fram­leiddar eru í land­inu kemur þaðan. Dalurinn lúrir milli Cer og Gučevo-fjall­anna. En undir hinum grös­uga og frjósama jarð­vegi finnst að því er talið er eitt mesta magn hins fágæta, mjúka og silf­ur­hvíta málms liþ­íum. Hann er óstöð­ugur og eld­fimur og er því ekki að finna stakan í jarð­skorp­unni heldur er hann bund­inn í ýmsum stein­dum í bergi. Hann er sann­ar­lega fágætur, aðeins um 0,002 pró­sent af allri skorp­unni sem umvefur plánet­una Jörð.

[adspot]

Lengi vel var talið að liþ­íum væri að finna í hvað mestu magni í Chile og Bólivíu þrátt fyrir að gröftur eftir honum sé mestur í Ástralíu. Nýlegar jarð­fræði­rann­sóknir í Tékk­landi hafa svo sýnt að þar er hann að finna í vinn­an­legu magni, eins og sagt er þegar það þykir borga sig að grafa eftir honum, vinna svo úr berg­inu og því næst selja. Sautján ár eru svo síðan að jarð­fræð­ingur kom niður á liþ­íum í bor­holu í Jadar-dalnum. Hann var ekki að leita að því efni heldur öðrum fágætum jarð­efnum. Það var því eig­in­lega til­viljun að nátt­úru­auð­lindin upp­götv­að­ist á þessum slóðum.

Lykilefnið eftirsótta

Kaup­end­urnir eru margir. Og þeim fer hratt fjölg­andi. Liþíum er lykil­efni í raf­hlöðum til að knýja hina nýju kyn­slóð bíla, raf­magns­bíla, sem stjórn­völd víða um heim binda vonir við að verði stórt púsl í þeirri við­leitni að bjarga jarð­ar­búum út úr lofts­lags­vand­anum sem þeir hafa komið sér í.

Liþíum er líka nauð­syn­legt til fram­leiðslu sól­ar­raf­hlaða og vind­mylla. Það er því eitt hinna fágætu jarð­efna sem eru að verða enn eft­ir­sótt­ari en áður. En til að nálg­ast þau, hvar svo sem þau er að finna í ver­öld­inni, þarf að grafa eftir þeim. Og þeim námu­greftri fylgja oft mikil nátt­úru­spjöll sem og meng­un­ar­hætta, m.a. vegna geisla­virkni sumra efn­anna.

„Græn tækni, raf­bílar, hreint loft – allt þetta þarf á einum mesta liþ­íum-forða ver­ald­ar­innar, sem finnst einmitt hér í Jadar í Serbíu, að halda.“

Á þessum orðum hefst sjón­varps­aug­lýs­ing sem sýnd hefur verið í serbneska rík­is­sjón­varp­inu und­an­farið. Hún hefur það að mark­miði að róa almenn­ing og þær þús­undir sem mót­mælt hafa fyr­ir­hug­uðum námu­greftri í Jadar-dalnum. „Við skiljum áhyggjur ykkar vegna umhverf­is­ins full­kom­lega,“ heldur þulur aug­lýs­ing­ar­innar áfram. Námu­fyr­ir­tækið sé að gera nákvæma grein­ingu „til að full­vissa okkur öll um að við þróum Jadar-verk­efnið í sam­ræmi við hæstu umhverfis-, öryggis- og heil­brigðis­kröfur.“ Næst sjást yfir­veg­aðir vís­inda­menn á skjánum og loks ungt par sem gengur inn í sól­ar­lagið. „Rio Tinto: Saman höfum við tæki­færi til að bjarga plánet­unni“.

Rio Tinto. Hið ástr­alska-enska námu­fyr­ir­tæki, það annað stærsta í heim­inum, hefur ástæðu til að ótt­ast að vera ekki talið trú­verð­ugt þegar kemur að því að grafa eftir liþ­íum í Jadar-dalnum með það að mark­miði að verða meðal stærstu fram­leið­enda málms­ins á heims­vísu. Það hefur líka ástæðu til að ásæl­ast þessa auð­lind. Allt liþ­íum sem notað er til fram­leiðslu „grænna lausna“ í Evrópu, m.a. raf­bíla, er unnið úr jörðu utan álf­unnar. En Evrópa vill verða sjálf­bær og því sá Rio Tinto sér leik á borði.

Hin 150 ára saga fyr­ir­tæk­is­ins er stráð ásök­unum og mál­sóknum vegna spill­ingar, mann­rétt­inda­brota og umhverf­is­sóða­skapar, líkt og rakið er í ítar­legri frétta­skýr­ingu The Guardian og Kjarninn hefur einnig áður fjallað um. Nýjasta málið höfð­aði banda­ríska við­skipta­ráðið sem sakar fyr­ir­tækið um að hafa beitt blekk­ingum í tengslum við kola­vinnslu sína í einu fátæk­asta ríki heims: Mósambík. For­stjór­inn sagði upp í fyrra eftir að upp komst að fyr­ir­tækið hefði vís­vit­andi sprengt upp helga hella í Ástralíu – hella sem fyrstu menn­irnir bjuggu í fyrir um 46 þús­und árum. Simon Trott, sem tók við for­stjóra­starf­inu, sagði fyrr á þessu ári að fyr­ir­tækið væri „ekki stolt af sögu sinni“ í tengslum við Marandoo-námuna í Vestur-Ástralíu. Orðin lét hann falla vegna upp­ljóstrana um að hund­ruðum forn­gripa hefði verið hent á haug­ana við námu­vinnsl­una.

[adspot]

Um svipað leyti féllst stjórn fyr­ir­tæk­is­ins loks á að láta gera mat á áhrifum starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins á umhverfi og mann­rétt­indi í Papúa Nýju-Gíneu. Rio Tinto rak kopar- og gull­námu á einni eyj­anna í ára­tugi og er sakað um að hafa dælt millj­ónum tonna af úrgangi frá vinnsl­unni í ár og menga vatns­ból með marg­vís­legum afleið­ingum á líf­ríkið. Íbúar eru enn að bíta úr nál­inni með það. Um þetta til­tekna mál hefur Vera Ill­uga­dóttir m.a. fjallað í þætti af Í ljósi sög­unnar.

Dæmin eru miklu fleiri. Eitt það nýjasta er hörð gagn­rýni á starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Mongólíu við rekstur enn einnar gull- og kop­ar­námunnar. Sú er úti í Gobi-eyði­mörk­inni og er vinnslan í sam­starfi við stjórn­völd í land­inu. Þau hafa hins vegar viðrað alvar­legar áhyggjur sínar af starf­sem­inni. Telja Rio Tinto, eða öllu heldur dótt­ur­fyr­ir­tæki þess, ekki vera að segja satt og rétt frá um tafir og annað sem upp á hefur komið og orðið til þess að náman er ekki enn orðin sjálf­bær á sjötta starfs­ári.

Liþíum í milljón rafbíla á ári

Nú hefur Rio Tinto sett stefn­una á Serbíu. Í júlí til­kynnti fyr­ir­tækið að það ætl­aði að fjár­festa fyrir millj­arða í áform­aðri vinnslu á liþ­íum í Jadar-dalnum. Þetta verður stærsta liþ­íum-náma Evrópu, sagði fyr­ir­tækið. Áformað væri að að starf­rækja námuna í og við Korenita-ána í fjöru­tíu ár. Hægt væri að fram­leiða 2,3 millj­ónir tonna af liþ­íum á ári sem og tug­þús­undir tonna af bór-sýru sem einnig er nýtt til að fram­leiða hina grænu tækni. Efnið myndi duga til að fram­leiða eina milljón raf­bíla árlega. Náman yrði ein­stök á heims­vísu enda ekki vitað um annan stað þar sem bæði liþ­íum og bór er að finna í sömu stein­d­inni. Rio Tinto hefur bent á „liþ­íum hol­una“ – hversu gríð­ar­leg eft­ir­spurnin sé og verði á næstu árum á sama tíma og að fram­leiðslan sé langa vegu frá því að svala henni.

Fólk sem mót­mælt hefur áformunum á götum serbneskra borga síð­ustu mán­uði hefur hins vegar bent á að græna bylt­ingin gæti orðið á kostnað nátt­úr­unnar og umhverf­is­ins, einmitt þess sem henni er ætlað að vernda.

Það var einmitt jarð­fræð­ingur á vegum Rio Tinto sem fann liþ­íum í Jadar-dalnum fyrir tæpum tveimur ára­tugum. Koma hans og ann­arra jarð­fræð­inga er Marijönu Pet­kovitsj, sem býr í nágrenni hinnar fyr­ir­hug­uðu námu, í fersku minni. Hún kynnt­ist vís­inda­mönn­unum vel. Bauð þeim í kaffi, segir hún m.a. í við­tali við Guardian. „Þá var verið að tala um litla námu, kannski um 20 hekt­ara, og að við myndum varla vita af henni.“

Gjafir til samfélagsins

Á næstu árum hóf Rio Tinto að færa sam­fé­lög­unum í Jadar-dalnum ýmsar gjafir. Einn grunn­skól­anna fékk t.d. eina slíka í formi end­ur­bóta. Fót­boltalið í einu þorp­inu fékk nýtt þak á íþrótta­húsið að gjöf og svo mætti áfram telja.

Námu­á­formin stækk­uðu sam­hliða auknum gjöfum. Er fram liðu stundir voru þau komin upp í 80 hekt­ara. Í haust barst svo íbúum bréf um að land­bún­að­ar­land í dalnum yrði skil­greint sem iðn­að­ar­svæði. Starfs­maður á vegum Rio Tinto heim­sótti konur í þorp­unum og spurði hvers þær væntu af námu­starf­sem­inni. Pet­kovitsj seg­ist hafa verið ein­föld. Að hún hafi ekki áttað sig á því hvað væri í gangi.

Serbnesk stjórn­völd til­kynntu í mars að áhrifa­svæði námunnar yrði um 850 hekt­arar. Það jafn­ast á við um 1.000 fót­bolta­velli. Jarð­efnin yrðu unnin úr bergi undir far­vegi Korenita-árinnar en þar er liþ­íum að finna á 100-650 metra dýpi.

Íbúar Jadar-dals­ins þekkja árnar sínar og vita að þær eiga það til að flæða yfir bakka sína. Það gerð­ist til dæmis árið 2014 með þeim afleið­ingum að flóða­vatn komst inn í aflagða kop­ar­námu og eitruð og meng­andi efni flæddu yfir tún og akra. Rio Tinto hefur svarað því til að ætl­unin sé að ganga svo um hnúta að búnar verði til þurrar „kökur“ úr fljót­andi úrgangi frá starf­sem­inni til að koma í veg fyrir slík meng­un­ar­slys. Á þeim fjórum ára­tugum sem áformað er að starf­rækja námuna myndu falla til tæp­lega 60 milljón tonn af úrgangi, aðal­lega berg­muln­ingi. Fram­leiðslan er vatns­frek og þyrfti um 6-18 lítra af vatni á sek­úndu.

[adspot]

Svo stórt svæði þarf Rio Tinto til námu­vinnsl­unnar að fyr­ir­tækið hefur keypt jarðir af tæp­lega 300 land­eig­endum, að hluta eða í heild. Þá þurfa átta­tíu heim­ili að víkja. Sumir fara af fúsum og frjálsum vilja. Aðrir ekki.

Mörg hús í þorpi Pet­kovitsj eru nú komin í eigu Rio Tinto. Hún lýsir því fyrir blaða­manni Guardian að fólk hafi tekið allt eigu­legt úr þeim, jafn­vel glugga, hurðir og þök, áður en það yfir­gaf þau. Eftir standa tómar augn­tóftir áður líf­legra íbúð­ar­húsa.

Bjarsýnir á leyfi

And­stæð­ingar námunnar hafa m.a. áhyggjur af því að drykkj­ar­vatn hund­ruð þús­unda manna spillist. Dragana Đorđević, pró­fessor í umhverf­is­efna­fræði og verk­fræði við háskól­ann í Belgrad, bendir t.d. á að það sé rík ástæða fyrir því að námur sem þessar hafi hingað til verið reknar á afskekktum stöðum. Hann telur hættu á vatns­mengun mikla.

Rio Tinto hefur ekki enn fengið öll til­skilin leyfi til að hefja fram­kvæmdir við námuna. Fyr­ir­tækið hefur að sögn gert margar rann­sóknir, m.a. á líf­ríki, vegna áfor­manna en hefur ekki viljað birta nið­ur­stöður þeirra opin­ber­lega. Til stendur að skila skýrslu um mat á umhverf­is­á­hrifum til serbneska umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins fyrir ára­mót.

Talsmenn Rio Tinto eru bjart­sýnir á jákvæð við­brögð stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

riotinto

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár