Landsvirkjun vill vera alfarið utan hálendisþjóðgarðs – segist ekki hafa lagt til rekstur á jaðarsvæðum

Að mati Lands­virkj­unar er mik­il­vægt að „hug­takið jað­ar­svæði verði alfarið fjar­lægt“ úr frum­varpi um hálend­is­þjóð­garð og leggst „ein­dregið gegn því“ að settar verði auknar kvaðir á starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins á hálend­inu.

Hrauneyjafossstöð er í dag þriðja stærsta raforkuver landsins, 210 MW. Hún stendur við Sprengisandsleið í jaðri hálendisins.
Hraun­eyja­foss­stöð er í dag þriðja stærsta raf­orku­ver lands­ins, 210 MW. Hún stendur við Sprengisands­leið í jaðri hálend­is­ins.

„Hér er ekki farið rétt með stað­reyndir og þetta er mistúlkun á umsögnum og óskum fyr­ir­tæk­is­ins,“ segir Lands­virkjun í umsögn sinni um frum­varp um stofnun hálend­is­þjóð­garðs. Vísar fyr­ir­tækið í þessu sam­bandi í grein­ar­gerð frum­varps­ins þar sem fram komi að Lands­virkjun hafi ásamt nátt­úru­vernd­ar­sam­tökum óskað eftir því að rekstur orku­vinnslu yrði stað­settur á jað­ar­svæði innan garðs­ins og lyti sér­stökum reglum ásamt því að vera undir stjórn hálend­is­þjóð­garðs.

Lands­virkjun seg­ist í fyrri umsögnum um málið hafa lagt áherslu á að rekstur fyr­ir­tæk­is­ins verði utan hálend­is­þjóð­garðs, m.a. í því skyni að tryggja fram­þróun orku­vinnslu. „Ljóst er að stað­setn­ing rekstr­ar­svæða orku­vinnslu innan sér­tækra jað­ar­svæða þjóð­garðs, líkt og kemur fram í frum­varpi, muni ekki ná þeim mark­miðum.“

[adspot]

Fyr­ir­tækið bendir á að „jað­ar­svæði“ sé nýtt hug­tak sem hvorki sé skil­greint í nátt­úru­vernd­ar­lögum né skipu­lags­lög­gjöf. Þá sé ekki að finna skil­grein­ingu á hug­tak­inu í laga­texta né grein­ar­gerð frum­varps­ins. „Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu er látið í það skína að Lands­virkjun hafi átt hug­mynd­ina að þessu fyr­ir­komu­lagi en því mót­mælir fyr­ir­tækið harð­lega.“

[links]Í umsögn sinni gagn­rýnir Lands­virkjun enn­fremur að sam­kvæmt frum­varp­inu verði ráð­herra, umdæm­is­ráðum og stjórn hálend­is­þjóð­garðs veitt „óskil­greint vald“ sem geti „valdið mik­illi óvissu og haft veru­leg hamlandi áhrif“ á rekstur orku­vinnslu. Er lögð á það rík áhersla að þau svæði sem eru mik­il­væg fyrir starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins verði alfarið utan marka hálend­is­þjóð­garðs­ins og svæða tengdum honum og þar með utan valds­viðs garðs­ins. Fyr­ir­tækið leggst „ein­dregið gegn því“ að settar verði auknar kvaðir á starf­semi þess á svæð­inu og leggur til að greinar frum­varps­ins sem fjalla um svokölluð jað­ar­svæði verði felldar á brott.

Þá gerir fyr­ir­tækið athuga­semd við að heild­ar­stærð þjóð­garðs­ins skuli ekki vera skil­greind í laga­text­anum og varar við því að „einum ráð­herra sé fengið það reglu­gerð­ar­vald sem fjallað er um í 2. gr. frum­varps­ins að ákveða stærð þjóð­garðs­ins og rekstr­ar­svæða orku­vinnslu“. Leggur Lands­virkjun því til að stærð garðs­ins verði skil­greind í frum­varp­inu og að aðkoma Alþingis og hags­muna­að­ila að ákvörðun um stærð garðs­ins sem og stækk­anir verði tryggð í texta frum­varps­ins.

Lands­virkjun gagn­rýnir einnig að vikið sé frá nið­ur­stöðu þverpóli­tískrar nefndar um hálend­is­þjóð­garð sem skil­aði loka­skýrslu í des­em­ber 2019. Í henni kom fram að stofnun þjóð­garðs á hálend­inu ætti ekki að koma í veg fyrir að fjallað yrði um nýjar orku­tengdar fram­kvæmdir innan hans í sam­ræmi við áætl­anir Alþingis um orku­nýt­ingu og flutn­ing raf­orku. Í frum­varp­inu nú er hins vegar ný orku­vinnsla á svæð­inu tak­mörkuð við virkj­un­ar­kosti í þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar.

Heimila megi nýjar virkjanir

Lands­virkjun telur að virða beri nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar og að ekki sé rétt að tak­marka heim­ildir verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar við þriðja áfanga hennar. „Fyr­ir­tækið ítrekar að breyta þarf grein­inni þannig að heim­ila megi nýjar virkj­anir í sam­ræmi við verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun Alþingis á hverjum tíma. Jafn­framt sé verk­efn­is­stjórn heim­ilt að leggja mat á nýja virkj­un­ar­kosti innan hálend­is­þjóð­garðs, að und­an­skildum svæðum sem hafa verið afmörkuð vegna verndar til­tek­innar nátt­úru- eða menn­ing­arminja og að sú vernd banni orku­vinnslu sér­stak­lega.“ Bendir fyr­ir­tækið á vind­orku­nýt­ingu eða aukna orku­vinnslu á núver­andi rekstr­ar­svæðum sem dæmi um fram­tíð­ar­mögu­leika „sem gætu vel sam­ræmst mark­miðum hálend­is­þjóð­garðs“.

Í loka­orðum umsagn­ar­innar leggur Lands­virkjun „ríka áherslu á að rekstur fyr­ir­tæk­is­ins sé alfarið utan þjóð­garðs og að engar auknar kvaðir verði settar á rekst­ur­inn þrátt fyrir nálægð við þjóð­garð­inn“. Að því sögðu seg­ist Lands­virkjun sjá „spenn­andi tæki­færi“ í sam­starfi við hálend­is­þjóð­garð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hálendisþjóðgarður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár