Óttast frelsisskerðingu, óhófleg boð og bönn og of rúmar valdheimildir

Hvað eiga félög hús­bíla­eig­enda, vélsleða- og vél­hjóla­manna, jeppa­fólks, hesta­fólks, flug­manna og veiði­manna sam­eig­in­legt? Öll hafna þau eða hafa miklar efa­semdir um frum­varp umhverf­is­ráð­herra um hálend­is­þjóð­garð.

Jarlhettur við Langjökul.
Jarl­hettur við Lang­jökul. Mynd: Úr skýrslu um miðhálendisþjóðgarð

Þjóð­garður þessi er algjör­lega ótíma­bær. Engin sátt ríkir um hann í þjóð­fé­lag­inu. Ráðherra yrðu gefin óhemju mikil völd og ferða­frelsi og almanna­réttur fótum troð­inn. Núver­andi nátt­úru­vernd­ar­lög ættu að nægja og ef nátt­úran á að fá að njóta vafans er það betur gert með því að leyfa hálend­inu að vera afskekkt, tor­sótt og fáfarið – á þann hátt feng­ist raun­hæf öræfa­kyrrð.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögnum ferða- og úti­vi­star­fé­laga um frum­varp um stofnun hálend­is­þjóð­garðs. Frestur til að skila umsögnum rann út í gær og um 140 umsagnir bár­ust frá stofn­unum, félaga­sam­tökum og ein­stak­lingum. Af þeim tæp­lega tutt­ugu sem bár­ust frá ferða- og úti­vi­star­fé­lögum og heild­ar­sam­tökum þeirra eru aðeins tvær jákvæðar í garð frum­varps­ins, umsagnir frá Ferða­fé­lagi Íslands og Útivist. Bæði félögin gera þó nokkrar athuga­semdir við frum­varpið.

[adspot]

Í öllum umsögn­unum kemur fram að virð­ing fyrir nátt­úru og landi sé leið­ar­stef við­kom­andi félaga­sam­taka og í flestum þeirra er tekið fram að rík áhersla sé lögð á að félags­menn gangi vel um landið. Hins vegar er það einnig sam­eig­in­legur þráður í þeim flestum að frum­varpið um stofnun hálend­is­þjóð­garðs þarfn­ist lengri og ítar­legri umræðu eigi að nást um það sátt í sam­fé­lag­inu.

[links]Þjóð­garður á hálend­inu þarfn­ast mun lengri und­ir­bún­ings­tíma, segir til að mynda í umsögn Félags hús­bíla­eig­enda, „það er að segja ef það er þörf fyrir hálend­is­þjóð­garð“. Þeir sem ferð­ist um á ferða­bílum hafi síð­ustu ár upp­lifað að þeir ráði sér ekki lengur sjálfir. „Frelsið sem við höfum haft minnkar ár frá ári, við ráðum ekki lengur hvaða slóða við ökum og við ráðum ekki lengur hvar við stoppum, dveljum eða náttum.“

Félag leið­sögu­manna með hrein­dýra­veiðum leggst alfarið gegn áformum um mið­há­lend­is­þjóð­garð og telur þau ekki vera til þess fallin að stuðla að sátt um nýt­ingu og vernd svæð­is­ins. „Ekki verður betur séð en að til­gang­ur­inn sé að ná yfir­ráðum yfir því landi sem nú lýtur yfir­ráðum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og færa alla ákvarð­ana­töku frá for­sæt­is­ráðu­neyti og sveit­ar­fé­lögum og þar með burtu frá nær­sam­fé­lögum sem mestra hags­muna hafa að gæta.“

Ráðherra gefin óhemju mikil völd

Ferða- og úti­vi­star­fé­lagið Slóða­vinir, sem í er fólk sem hefur áhuga á ferða­lögum um landið á vél­hjólum, leggst einnig „alfarið gegn fram­komnu frum­varpi“ og segir fram­setn­ingu í því víða með þeim hætti að það gangi „þvert á við­teknar leik­reglur lýð­ræð­is­ins“.

Slóða­vinir telja útfærslu mik­il­vægra þátta víða ábóta­vant og oftar en ekki séu mál afgreidd á þann hátt að ráð­herra semji um þau reglur síðar, sýn­ist honum svo. „Ráðherra eru því gefin óhemju mikil völd inn í fram­tíð­ina án aðkomu ann­arra hags­muna­að­ila, „telji“ hann þörf á.“

Ferða­klúbb­ur­inn 4x4, sem í eru á bil­inu 4-5.000 félags­menn, „hafnar algjör­lega“ þeim hug­myndum sem koma fram í frum­varp­inu. „Ef nátt­úran á að fá að njóta vafans þá er það betur gert með því að leyfa hálend­inu að vera afskekkt, tor­sótt og fáfarið.“

Í ítar­legri umsögn sinni bendir félagið á að ótækt sé að koma fram með svo stórt mál, sem skipti stóra hópa í þjóð­fé­lag­inu miklu máli, í miðjum far­aldri COVID-19 og sam­komu­banni. „Að keyra málið af stað um jól og ára­mót er algjör­lega óskilj­an­legt og sýnir svo ekki sé um villst að málið átti að fara hratt í gegn á tímum sem stórum félaga­sam­tökum er erfitt að fjalla um málið á þann hátt sem þyrfti.“

Í umsögn­inni er áréttað að Ferða­klúbb­ur­inn 4x4 vilji standa vörð um ferða­menn­ingu í tóm­stunda­skyni á hálendi Íslands. „Sú rót­gróna ferða­menn­ing kallar ekki á þjóð­garðs­stofnun.“

Jákvætt framlag

Ferða­fé­lag Íslands telur að stofnun þjóð­garða og frið­lýs­ingar í tengslum við þá sé mik­il­væg leið til að tryggja „að hin ein­staka nátt­úra lands­ins fái staðið óspillt fyrir kom­andi kyn­slóðir að njóta“. Á sama hátt er það mik­il­vægt að mati félags­ins að þær reglur sem muni gilda um dvöl og för í þjóð­görðum séu til þess fallnar að tryggja rétt almenn­ings til að ferð­ast um landið og njóta úti­vistar þar. „FÍ telur fram­lagt frum­varp til laga um hálend­is­þjóð­garð jákvætt fram­lag til nátt­úru­verndar og úti­vistar.“

[adspot]

Ferða­fé­lagið Mel­rakkar, félags­skapur fólks sem ferð­ast um á fjór­hjólum og böggý-bílum, leggst gegn frum­varp­inu og vill frekar hjálpa til við merk­ingar á leiðum og eru félags­menn til­búnir „að fræða ferða­menn sem gætu orðið á vegi okkar um hversu verð­mætt er að ganga vel um,“ segir í umsögn Melrakka. „Við berum ómælda virð­ingu fyrir land­inu og okkar eina mark­mið er að njóta félags­skapar við hvert annað og hins stór­brotna útsýnis sem Ísland hefur upp á að bjóða.“ Fræða þurfi ferða­fólk almennt betur en það er að mati félags­ins „ekki svo að það þurfi að loka mið­há­lend­inu til þess að vernda það“.

Að mati félags­ins er frum­varpið „mein­gallað“ í þeirri mynd sem það birt­ist nú. „Frestum frum­varp­inu og vinnum það betur með öllum sem að því koma – ekki ein­ungis útvöldum.“

Verulegar skorður settar á flug

Fisfélag Reykja­víkur skorar á stjórn­völd að hafna frum­varp­inu í því formi sem það er lagt fram núna. „Frum­varpið gengur of langt í boðum og bönnum án þess að sýnt hafi verið fram á nauð­syn þeirra. Sér­stak­lega vill Fisfélag Reykja­víkur benda á 18. gr. þar sem öllu flugi eru settar veru­legar skorður umfram aðra ferða­máta,“ segir í umsögn félags­ins. Í svip­aðan streng er tekið í umsögn Flug­mála­fé­lags Íslands. Innan félags­ins starfa nær öll félög, sam­tök og hópar sem tengj­ast flug­starf­semi og flug­í­þróttum á Íslandi.

Tvö hesta­manna­fé­lög sendu inn umsögn og sömu­leiðis Lands­sam­band hesta­manna sem í eru um 12.500 hesta­menn. Öll leggj­ast þau gegn sam­þykkt frum­varps­ins að svo stöddu og telja að of mörgum spurn­ingum sé enn ósvarað. Hesta­menn ótt­ast að með stofnun hálend­is­þjóð­garðs verði aðgengi og frelsi þeirra að hálend­inu skert, aðgengi sem hefur verið til staðar frá land­námi. „Reynsla hesta­manna af þeim þjóð­görðum sem þegar eru til staðar sýnir að hömlur eru settar á ferðir hesta­hópa um þjóð­garða.“

Almanna­réttur á sér langa hefð á Íslandi segir enn­fremur í umsögn­inni, og helg­ast af því við­horfi að nátt­úra Íslands sé sam­eig­in­leg gæði lands­manna sem öllum sé jafn­frjálst að njóta. „Mik­il­vægt er að standa vörð um þennan rétt, en honum fylgir jafn­framt skylda til að ganga vel um landið.“

Hvað er þjóðgarður án þjóðar?

Lands­sam­band íslenskra vélsleða­manna segir í sinni umsögn að nátt­úra Íslands sé óað­gengi­leg að vetri og sjái sjálf um „að vernda landið fyrir ágangi massa­t­úrisma. Sú fyr­ir­ætlan að leggja um það bil þriðj­ung flat­ar­máls alls Íslands undir vald­heim­ildir þjóð­garðsvarða mun skaða nátt­úru­vernd og ásýnd hennar um ókomin ár. Reynslan af vald­boði og ákvörð­unum í Vatna­jök­uls­þjóð­garði hefur sýnt okkar félags­mönnum að þjóð­garðs­vörðum er ekki treystandi fyrir svo viða­miklum vald­heim­ildum.“ Í nið­ur­lagi umsagn­ar­innar segir að frum­varpið sé umdeild­ara en af hafi verið látið og spurt: „Hvað er þjóð­garður án þjóðar!“

Skot­veiði­fé­lag Íslands, segir að meðan að ekki sé tryggt að almanna­veiði­réttur innan fyr­ir­hug­aðs þjóð­garðs verði óskertur legg­ist félagið alfarið gegn frum­varp­inu. „Það er því mat SKOTVÍS að kjósi þingið að halda frum­varp­inu til streitu, þurfi að gera á því veiga­miklar efn­is­legar breyt­ingar. Þær þurfi að ræða og kynna almenn­ingi og skapa um málið góða almenna sátt, áður en lengra verður haldið. Á tímum mik­illa sam­komu­tak­mark­ana og heims­far­ald­urs er erfitt að sjá að kynn­ing og sam­tal um málið geti farið vel fram. Líklega er ekki tíma­bært að stofna svo stóran þjóð­garð núna. Kannski er rétt að gefa Vatna­jök­uls­þjóð­garði tíma til að sýna sig og sanna áður en lengra verður gengið.“

Ferða­fé­lagið Útivist rifjar það upp í sinni umsögn að það hafi verið aðili að sam­starfs­verk­efni sem ýtt var úr vör í árs­byrjun 2016 sem að stóðu 28 úti­vistar- og nátt­úru­vernd­ar­sam­tök, auk sam­taka fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu. Markmið sam­starfs­ins var að skapa víð­tæka sátt um þjóð­garð á mið­há­lendi Íslands á grund­velli vilja­yf­ir­lýs­ingar sem sam­starfs­að­il­arnir und­ir­rit­uðu. Í þess­ari vilja­yf­ir­lýs­ingu voru settar fram for­sendur er varða nátt­úru­vernd, aðgengi og rétt­indi almenn­ings í þjóð­garð­inum og tæki­færi og aðkomu hag­að­ila (nátt­úru­vernd­ar­sam­taka, úti­vist­ar­hreyf­inga og ferða­þjón­ustu) að stjórnun garðs­ins. „Afstaða Ferða­fé­lags­ins Úti­vistar til hálend­is­þjóð­garðs er grund­völluð á þess­ari vilja­yf­ir­lýs­ingu og styður félagið stofnun þjóð­garðs, þar sem tryggt er að fram­an­greindar for­sendur haldi,“ segir í umsögn­inni og að Útivist leggi einkum áherslu á nokkur atriði:

  • Að réttur almenn­ings til úti­vistar og nátt­úru­fræðslu innan þjóð­garðs­ins verði tryggður.
  • Að fullt til­lit verði tekið til ára­tuga nýt­ingar úti­vi­star­fé­lag­anna á mið­há­lend­inu og allar nauð­syn­legar breyt­ingar sem kunna að eiga sér stað verði teknar í fullu sam­ráði við full­trúa þess­ara hags­muna­hópa.

Útivist gerir svo „alvar­lega athuga­semd“ við rúmar gjald­töku­heim­ildir þjóð­garðs­ins sem sam­kvæmt orða­lagi í einni grein frum­varps­ins ná ekki aðeins til greiðslu fyrir veitta þjón­ustu, heldur einnig almennar gjald­töku­heim­ildir á borð við gist­ingu innan þjóð­garðs­ins og leyf­is­gjöld fyrir þjón­ustu­samn­inga. Telur félagið „ótækt“ að ákvæðið sé opið fyrir slíkri túlkun og því lögð til eft­ir­far­andi breyt­ing á orða­lagi: „Þá er hálend­is­þjóð­garði heim­ilt að inn­heimta gjald fyrir gist­ingu í skálum og tjald­svæðum sem rekin eru af þjóð­garð­inum.“

Gríðarlegur kostnaður við uppbyggingu

Útivist segir enn­fremur að „eins og mörg dæmi um fram­kvæmdir á vegum rík­is­ins innan Vatna­jök­uls­þjóð­garðs sýna“, megi gera ráð fyrir að kostn­aður við upp­bygg­ingu inn­viða og þjón­ustu­stofn­ana verði „gríð­ar­legur“ sem til stendur að inn­heimta með þjón­ustu­gjöldum. „Afkoma af starf­semi ferða­fé­lag­anna ber ekki slíka gjald­töku. Því er nauð­syn­legt að end­ur­meta frá grunni fyr­ir­hug­aða fjár­mögnun á upp­bygg­ingu inn­viða með áherslu á bein fram­lög á fjár­lögum fremur en álögur á ferða­menn.“

Lokaorð umsagn­ar­innar eru á þá leið að afstaða Úti­vistar til þjóð­garðs á hálend­inu hafi almennt verið jákvæð en að ákveðnum for­sendum upp­fylltum. Er það von félags­ins að umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis fall­ist á athuga­semdir sem fram koma í umsögn­inni „sem eru for­senda þess að það geti mælt með sam­þykkt þessa frum­varps“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hálendisþjóðgarður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár