Ferðaþjónustan alls ekki einróma um hvernig best sé að nýta hálendið

Um 45 pró­sent svar­enda í nýrri rann­sókn á sýn ferða­þjón­ust­unnar á nýt­ingu hálend­is­ins voru and­vígir stofnun hálend­is­þjóð­garðs en um 40 pró­sent studdu hana. Þeir sem nýta hálendið í starf­semi sinni voru nei­kvæð­ari gagn­vart fyr­ir­hug­uðum garði en aðrir.

Víðerni og lítt spillt náttúra eru mikilvæg auðlind fyrir ferðaþjónustuna og er því spáð að verðmæti slíks umhverfis eigi eftir að aukast á næstu áratugum.
Víðerni og lítt spillt nátt­úra eru mik­il­væg auð­lind fyrir ferða­þjón­ust­una og er því spáð að verð­mæti slíks umhverfis eigi eftir að aukast á næstu ára­tugum. Mynd: Aðsend mynd

Af nýrri rann­sókn á sýn ferða­þjón­ust­unnar til nýt­ingar hálend­is­ins „má vera ljóst að ferða­þjón­ustan er alls ekki ein­róma varð­andi það hvernig best er að nýta mið­há­lendið,“ segja höf­undar í sam­an­tekt á nið­ur­stöðum. „Má ætla að sjón­ar­miðin stjórn­ist meðal ann­ars af tíð­ar­and­anum og þeirri orð­ræðu sem er í gangi í þjóð­fé­lag­inu, sem og ólíkri nátt­úru­sýn fólks almennt og hug­myndum um hvort eigi að nýta nátt­úr­una af hóf­semd eða af áfergju. Almennt má þó segja að ferða­þjón­ustan telji mið­há­lendið mik­il­væga auð­lind fyrir grein­ina og til að svo verði áfram verði að nýta það og byggja þar upp inn­viði af hóf­semd, virð­ingu og skyn­semi.“

Aðal­höf­undur rann­sókn­ar­innar er Anna Dóra Sæþórs­dóttir, pró­fessor í ferða­mála­fræði við Háskóla Íslands og það er land- og ferða­mála­fræði­stofa líf- og umhverf­is­vís­inda­deildar Háskóla Íslands sem gefur hana út. Rann­sóknin var styrkt af umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­inu og verk­efna­stjórn 4. áfanga ramma­á­ætl­unar.

[adspot]

Markmið rann­sókn­ar­innar var að varpa ljósi á sýn ferða­þjón­ust­unnar á nýt­ingu mið­há­lend­is­ins. Annars vegar var gerð net­könnun meðal allra ferða­skrif­stofa og ferða­sala dags­ferða hér á landi sem eru með leyfi frá Ferða­mála­stofu og feng­ust svör frá 382 aðilum sem er um 40 pró­sent svar­hlut­fall. Hins vegar voru tekin við­töl við 47 manns sem starfa hjá ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum víðs vegar um landið. Af þeim sem tóku þátt í net­könn­un­inni störf­uðu 59 pró­sent hjá fyr­ir­tækjum sem skipu­lögðu ferðir á mið­há­lend­inu og algeng­ast var að þeir byðu upp á jeppa­ferðir.

Nið­ur­stöð­urnar sýndu að flestir ferða­þjón­ustu­að­ilar, jafn­vel þeir sem bjóða ekki upp á ferðir á hálend­inu, töldu mið­há­lendið hafa mikið aðdrátt­ar­afl fyrir við­skipta­vini sína. Aðdrátt­ar­aflið var fyrst og fremst talið fel­ast í nátt­úru­legu yfir­bragði svæð­is­ins, ósnort­inni nátt­úru, víð­ernum, tak­mörk­uðum mann­virkjum og fámenni. Jafn­framt kom fram að margir töldu mið­há­lendið ekki eiga að vera fyrir hvaða ferða­menn sem er heldur sé það meira „spari“ (exclusive) áfanga­staður fyrir þá sem gera miklar kröfur til umhverf­is­ins og eru til­búnir til að leggja á sig að ferð­ast um erf­iða vegi og sætta sig við tak­mark­aða þjón­ustu. Meiri­hluti svar­enda net­könn­un­ar­innar taldi einnig að hálendið væri mik­il­vægt fyrir íslenska ferða­þjón­ustu og að gildi þess myndi aukast enn frekar á næstu árum. Könnunin leiddi jafn­framt í ljós að suð­ur­hluti mið­há­lend­is­ins, sér í lagi Land­manna­laugar og Þórsmörk, er mest nýttur af fyr­ir­tækj­unum en einnig eru Kerl­ing­ar­fjöll, Lang­jök­ull, Askja og Vatna­jök­ull mikið nýtt.

Almennt töldu svar­endur að upp­bygg­ing inn­viða á mið­há­lend­inu ætti að vera hóf­leg og í sátt við nátt­úr­una. Við­mæl­endum fannst mik­il­væg­ast að fjölga sal­ernum og merktum göngu­leiðum, sér­stak­lega á fjöl­sóttum ferða­manna­stöðum. Rúmlega 60 pró­sentum þótti æski­legt að fjölga fjalla­skálum. Um helm­ingur taldi núver­andi fjölda gesta­stofa, veit­inga­sölu og hót­ela á mið­há­lend­inu við­eig­andi. Um 20 pró­sent töldu að fjölga mætti hót­elum á hálend­inu. Aftur á móti taldi fjórð­ungur að hótel á mið­há­lend­inu ættu að vera færri en nú er.

Í sér­stökum hluta net­könn­un­ar­innar voru svar­endur beðnir um að til­greina hvort eða hvaða ein­stök svæði innan hálend­is­ins þyrftu á frek­ari innviðum að halda. Þátt­tak­endur voru almennt þeirrar skoð­unar að inn­viðir á mið­há­lend­inu ættu að vera tak­mark­aðir og ein­faldir. Fyrst og fremst var talið að bæta þyrfti inn­viði á vin­sælum ferða­manna­stöðum og voru Hvera­vellir, Askja, Land­manna­laugar, Þjórs­ár­dalur, Sprengi­sandur og Lónsör­æfi sér­stak­lega nefnd.

Vondir vegir skapa óbyggðarupplifun

Um helm­ingur svar­enda taldi mik­il­vægt að vegir á hálend­inu fengju betra við­hald. Um þriðj­ungur taldi að Kjal­vegur og Sprengisands­leið ættu að vera í núver­andi ástandi og tæpur helm­ingur taldi æski­legt að Fjalla­baks­leið og aðrir vegir á mið­há­lend­inu væru áfram eins og þeir eru. Fáir vilja upp­byggða vegi eða bundið slit­lag á hálend­inu. Var það ann­ars vegar vegna þess að „vondir vegir“ sköp­uðu hluta af óbyggða­upp­lifun­inni sem ferða­menn eru að sækj­ast eftir og hins vegar vegna þess að vondir vegir tak­marka þann fjölda sem kemur inn á svæðið. Tæp 60 pró­sent töldu jafn­framt mik­il­vægt að tak­marka umferð ferða­manna um mið­há­lendið en skiptar skoð­anir voru með hvaða hætti það ætti að gera.

[adspot]

Um helm­ingur svar­enda taldi að núver­andi virkj­anir á hálend­inu hefðu haft bæði jákvæð og nei­kvæð áhrif á ferða­þjón­ust­una. Jákvæðu áhrifin væru bætt aðgengi að svæðum vegna nýrra eða bættra vega sem gerðu ferða­lög að þeim auð­veld­ari en áður. Neikvæðu áhrifin væru hins vegar þau að mann­virkin dragi úr aðdrátt­ar­afli svæða og geti því haft nei­kvæð áhrif á upp­lifun ferða­manna.

Almennt töldu við­mæl­endur að frek­ari virkj­anir hér á landi ætti heldur að reisa á lág­lendi en á hálend­inu.

Vilja vera með í ráðum

Nið­ur­stöður net­könn­un­ar­innar leiddu í ljós að mörgum ferða­þjón­ustu­að­ilum, eða um 80 pró­sent, fyrst og fremst þeim sem nýta mið­há­lendið í starf­semi sinni, fannst mik­il­vægt að vera hafðir með í ráðum um skipu­lag og stjórnun svæð­is­ins til fram­tíðar. Skiptar skoð­anir séu meðal ferða­þjón­ust­unnar um til­lögur stjórn­valda um stofnun mið­há­lend­is­þjóð­garðs þar eð um 45 pró­sent svar­enda net­könn­unar voru and­vígir til­lög­unni en um 40 pró­sent studdu hana. Þeir sem nýta mið­há­lendið í starf­semi sinni voru nei­kvæð­ari í garð til­lög­unnar en þeir sem nýta það ekki. Ýmis atriði mót­uðu afstöðu þátt­tak­enda til mið­há­lend­is­þjóð­garðs, sér­stak­lega hvernig upp­bygg­ingu inn­viða yrði háttað, hvort aðgangur að mið­há­lend­inu yrði að ein­hverju leyti tak­mark­aður og hver færi með skipu­lags­valdið.

Einnig kom skýrt fram að svar­endur þekktu mis­vel til til­lög­unnar og voru uppi ýmsar hug­myndir um hvaða áhrif þjóð­garð­ur­inn myndi hafa á íslenska ferða­þjón­ustu, hug­myndir sem oft stöng­uð­ust á. Til að mynda töldu sumir að stofnun þjóð­garðs­ins myndi leiða til þess að aðgangur að hálend­inu yrði heftur en aðrir töldu aftur á móti að hann myndi batna. „Ljóst er því að skýra má betur fyrir ferða­þjón­ust­unni hvaða afleið­ingar stofnun mið­há­lend­is­þjóð­garðs myndi raun­veru­lega hafa á það hvernig greinin getur nýtt svæðið fyrir starf­semi sína,“ segir í sam­an­tekt rann­sak­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hálendisþjóðgarður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár