Segir sátt verða að ríkja um hálendisþjóðgarð – ekki óeðlilegt að „meðgöngutíminn“ sé langur

Ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra segir að „hugs­unin um þjóð­garð á hálend­inu“ sé góð og að tæki­færi felist í slíkum garði fyrir ferða­þjón­ust­una en að hugs­an­lega þyrfti að taka fleiri skref en smærri í þessu máli.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra.
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, og ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ræddu frum­varp sem nú liggur fyrir Alþingi um hálend­is­þjóð­garð í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í dag. Ráð­herr­ann sagði að málið væri af þeirri stærð­argráðu að henni fynd­ist ekki óeðli­legt að með­göngu­tím­inn væri langur og að það tæki jafn­vel lengri tíma en plön gerðu ráð fyrir.

Hanna Katrín hóf fyr­ir­spurn sína á því að segja að eðli­lega létu fjöl­margir sig málið varða, enda sner­ist þetta um risa­hags­muna­mál lands­manna allra í nútíð og fram­tíð.

„Það hefur verið mikið talað um sjálfs­á­kvörð­un­ar­vald sveit­ar­fé­laga og nátt­úru­vernd­ar­sjón­ar­mið í tengslum við frum­varpið en það hefur, að minnsta kosti framan af, farið minna fyrir umræðu um þau áhrif sem frum­varpið mun hafa á ferða­þjón­ust­una okkar,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Spurði hvað útskýrði mótstöðuna

Sagði hún að þau í Viðreisn hefðu alla tíð talað fyrir mik­il­vægi þess að auð­lindir lands­ins væru nýttar með ábyrgum hætti sam­fara öfl­ugri nátt­úru­vernd.

„Við viljum vernda hálendið sam­fara þessu sjón­ar­miði fyrir fólkið en ekki fyrir fólk­inu. Ég held að við séum býsna mörg þar. En það verður samt að segj­ast eins og er að þær hafa verið margar og sterkar radd­irnar úr röðum ferða­þjón­ustu­að­ila sem telja málið, eins og það er lagt fram í frum­varp­inu, vega að atvinnu­grein­inni. Nú hef ég eins og fjöl­margir aðrir Íslend­ingar verið ferða­langur í þjóð­görðum erlendis. Ég hef notið þess mjög. Þar hafa þessir þættir farið saman sam­kvæmt því sem ég hef alla vega upp­lifað og best veit, það er nátt­úru­vernd og upp­lifun ferða­fólks sam­hliða atvinnu­upp­bygg­ingu á svæð­inu. Ég hefði haldið að þetta væri happa­fengur fyrir ferða­þjón­ust­una okkar en það er eitt­hvað í þessu máli sem virð­ist standa í mjög mörgum ferða­þjón­ustu­að­ilum.“

Benti Hanna Katrín á að þetta mál, stofnun hálend­is­þjóð­garðs, væri í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar, höf­uð­stefnuplaggi hverrar rík­is­stjórnar. Spurði hún Þórdísi Kolbrúnu hvers vegna hún teldi að mót­staðan væri með þessum hætti nú þegar vel er liðið á síð­asta ár kjör­tíma­bils­ins.

„Hefði sam­ráð og sam­vinna milli þess­ara ráðu­neyta, ráðu­neytis umhverf­is­mála og ráðu­neytis ferða­þjón­ustu, mátt vera annað og meira en raun hefur borið vitni? Hvað er það sem gerir að verkum að ferða­þjón­ustu­að­ilar eru jafn ósáttir og þeir eru ef marka má þessa miklu umræðu og sterku gagn­rýn­is­raddir úr röðum þeirra? Og að lokum, herra for­seti: Hvað telur hæstv. ráð­herra að þetta frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar um hálend­is­þjóð­garð muni gera fyrir ferða­þjón­ust­una á Íslandi?“ spurði hún.

Hálendisþjóðgarður mjög stór ákvörðun

Þórdís Kolbrún svar­aði og sagði að auð­vitað ótal mörg sjón­ar­mið sem heyrðu þarna undir. „Hátt­virtur þing­maður fók­userar á ferða­þjón­ust­una þannig að ég ætla að halda mig við það þrátt fyrir að einnig væri hægt að eyða dágóðri stund í að tala um þetta út frá orku­nýt­ingu. Þetta mál er af þeirri stærð­argráðu að mér finnst ekki óeðli­legt að með­göngu­tím­inn sé langur og að það taki jafn­vel lengri tíma en plön gera ráð fyrir. Þetta er risa­stórt svæði. Þetta er mjög stór ákvörðun. Þetta er mikið sam­tal við fjölda sveit­ar­fé­laga, fjölda félaga­sam­taka, fjölda fyr­ir­tækja og ann­arra sem nýta þetta stóra svæði í dag, orku­fyr­ir­tækja og ann­arra.“

Sagðist hún hafa heyrt í mörgum ferða­þjón­ustu­að­ilum sem væru „svo sem áfram um málið“, og í öðrum sem væru það alls ekki. „Svo er kannski bara stór hluti sem veit ekki alveg hvernig honum á að líða með það, finnst vanta frek­ari svör um hvað þetta þýðir fyrir hann og fyrir rekstur hans. Við eigum nú þegar mjög mikið verk fyrir höndum almennt þegar kemur að stýr­ingu, sér­leyfum, úthlut­unum á tak­mörk­uðum gæðum, til að mynda bara í Þing­valla­þjóð­garði, Vatna­jök­uls­þjóð­garði og ann­ars staðar þar sem við erum nú þegar með þjóð­garða eða svæði sem eru í eigu rík­is­ins.“

Telur hún frum­varpið vera mjög mik­il­vægt mál. „Það helst í hendur við hvað það þýðir að búa til þjóð­garð. Vatna­jök­uls­þjóð­garður stendur frammi fyrir stóru verk­efni í úthlut­unum. Komið hefur upp þegar fyr­ir­tækin ætla að taka ein­hver skref að það hefur verið umdeilt og þau hafa dregið það til baka. En ég myndi halda, og ég tel, að fyr­ir­tækjum finn­ist skorta sam­ráð, skorta skýr­ari svör um hvað þetta þýðir fyrir þau. Svo er alltaf spurn­ing hvernig fólk upp­lifir þetta jafn­vægi sem þarf að vera til staðar á milli vernd­ar­sjón­ar­miða og nýt­ing­ar­sjón­ar­miða í þjóð­garð­inum. Þær spurn­ingar og mögu­lega ein­hver tor­tryggni gagn­vart kerf­inu snú­ast, held ég, að hluta til um það. Svo ef maður setur það í sam­hengi við hvað við eigum eftir að gera í upp­bygg­ingu, úthlut­unum og öðru slíku nú þegar, óháð hálend­is­þjóð­garði, þá er hægt að segja: Eigum við ekki nóg eftir þrátt fyrir að bíða örlítið með þjóð­garð­inn?“

Ferðaþjónustan í sviðsljósinu núna

Hanna Katrín kom aftur í pontu og sagð­ist átta sig fylli­lega á því að það væru fleiri verk­efni á borði ráð­herra sem tengj­ast hálend­is­þjóð­garð­inum, eins og orku­mál, og yrðu þau án nokk­urs vafa rædd síðar.

„En ferða­þjón­ustan er í svo­lítið í sviðs­ljós­inu núna, ekki síst vegna þeirra erf­ið­leika sem greinin á við að etja vegna COVID. Þegar upp er staðið er hægt að skipta þessu í tvennt, það er mót­staða við frum­varpið af því að menn hafa ekki haft tíma til að kynna sér það eða það er mót­staða við frum­varpið af því að menn segja að það þurfi að breyta því á ein­hvern hátt. Það er eig­in­lega það sem mig langar til að reyna að fá fram hjá hæst­virtu ráð­herra, varð­andi þessa til­teknu atvinnu­grein, ferða­þjón­ust­una: Hver er óska­staðan fyrir fram­haldið?“ spurði hún og bætti því við að þær væru lík­leg­ast sam­mála um að þjóð­garður á hálendi Íslands gæti orðið gríð­ar­leg lyfti­stöng fyrir ferða­þjón­ust­una.

„En snýst þetta þá um það að við þurfum bara lengri tíma til að kynna þetta frum­varp fyrir aðil­unum? Eða snýst þetta um það að það þarf að laga þetta frum­varp að ein­hverju leyti betur að ferða­þjón­ust­unni og þar með að aðgengi fólks að hálend­inu?“ spurði hún að lokum.

„Ég held að þetta þurfi tíma“

Þórdís Kolbrún svar­aði aftur og sagði að almennt sæi hún mikil tæki­færi í því fyrir íslenska ferða­þjón­ustu að hálendið væri ram­mað inn og ef ákvörðun yrði tekin um þjóð­garð þar. Hún væri þeirrar skoð­unar.

„Í því fel­ast mikil tæki­færi en það skiptir auð­vitað öllu máli hvernig það er gert og hvaða sjón­ar­mið vega þyngst í því. Það er mín per­sónu­lega skoðun að mér fynd­ist allt í lagi að hugsa, í ljósi umræðu um málið, hvort það sé mögu­leiki að taka fleiri skref en smærri, sem mér finnst líka bara í anda þess að tala um þjóð­garð. Það að koma á fót svona stórum þjóð­garði, svona stórum hluta af land­inu, þarf auð­vitað að vera í sátt og það er verk­efni okkar að vinna að því. Það er erfitt að koma á fót risa­stórum þjóð­garði ef mjög tak­mörkuð sátt ríkir um það. Ég ætla ekki að full­yrða hvernig málin þró­ast í þeim efnum en þessi sátt þarf að vera til staðar. Ég held að þetta þurfi tíma. Ég er sam­mála því að það eru margir sem hafa ákveðnar hug­myndir um þjóð­garð­inn, vantar svörin og vantar kannski frek­ari tíma til að kynna sér það. Það er líka partur af þeim með­göngu­tíma sem ég er að tala um af því að ég held að hugs­unin um þjóð­garð á hálend­inu sé góð og í því felist tæki­færi fyrir ferða­þjón­ustu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hálendisþjóðgarður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár