Samtök ferðaþjónustunnar mæla gegn samþykkt frumvarps um hálendisþjóðgarð

„Gríð­ar­lega mik­il­vægt“ er að ná „breiðri sátt“ þegar færa á ákvörð­un­ar­vald stórs land­svæðis undir eina rík­is­stofnun. Sú sátt er ekki fyrir hendi þegar kemur að frum­varpi um hálend­is­þjóð­garð, segja Samtök ferða­þjón­ust­unnar.

Samtök ferða­þjón­ust­unnar telja að þrátt fyrir að und­ir­bún­ingur frum­varps um hálend­is­þjóð­garð hafi verið fag­legur sé þörf á að vinna málið lengra og vinna úr ákveðnum grund­vall­ar­at­riðum sem enn eru óljós. Það er mat sam­tak­anna að útfærslur í frum­varp­inu séu ekki í nægi­lega miklu sam­ræmi við þau „góðu mark­mið“ sem sett eru fram í mark­miðs­grein frum­varps­ins. Samtökin gagn­rýna einnig að frum­varpið virð­ist „festa í sessi rík­is­stofnun með flókna og þung­lama­lega stjórn­sýslu, þar sem sú atvinnu­grein sem mesta hags­muni hefur af nýt­ingu nátt­úru svæð­is­ins, ferða­þjón­ustan, hefur tak­markað vægi.“

Meðal ann­ars af þessum sökum mæla sam­tökin gegn sam­þykkt frum­varps um hálend­is­þjóð­garð í óbreyttri mynd. „Þegar svo stórt land­svæði er tekið undir ákvörð­un­ar­vald einnar rík­is­stofn­unar er gríð­ar­lega mik­il­vægt að ná breiðri sátt,“ stendur í umsögn sam­tak­anna um frum­varpið. Samtökin telja því brýnt að „svo stórt hags­muna­mál fyrir þjóð­ina alla sé unnið í sem víð­tæk­astri sátt meðal hag­að­ila“, til dæmis með til­liti til nátt­úru­verndar, ábyrgar stjórn­unar og nýt­ingu sam­eig­in­legrar auð­lindar.

Umsagna­frestur um frum­varp til laga um hálend­is­þjóð­garð rann út í gær, 1. febr­úar. Yfir 130 umsagnir og athuga­semdir bár­ust.

[adspot]

Í umsögn Samtaka ferða­þjón­ust­unnar (SAF) kemur fram að þau hafi í gegnum árin almennt verið jákvæð í garð hálend­is­þjóð­garðs. „Það frum­varp sem lagt er fram nú verður þó ein­ungis að horfa á sem skref í átt­ina að þeim áfanga,“ segir í umsögn­inni sem Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna, skrifar. „Lítil sátt er um frum­varpið meðal hag­að­ila enda virð­ist frum­varpið ekki ná þeirri sam­stöðu sem sam­tökin telja að þurfi til. Nauð­syn­legt er að end­ur­skoða og und­ir­búa betur ýmis grund­vall­ar­at­riði máls­ins í sam­vinnu ríkis og hag­að­ila.“

[links]Þrátt fyrir að ferða­þjón­usta sé sú atvinnu­grein sem nýtir hvað mest auð­lindir hálend­is­ins er vægi ferða­þjón­ust­unnar í fram­lögðu frum­varpi að mati SAF tak­markað. Lítið er þar fjallað um atvinnu­grein­ina þrátt fyrir að hún sé talin ein meg­in­for­senda laga­setn­ing­ar­innar og aug­ljóst sé að sér­tekjur þjóð­garðs­ins eigi sam­kvæmt frum­varp­inu að koma að stórum hluta frá ferða­þjón­ustu og ferða­mönnum.

Þá telja sam­tökin reglu­gerð­ar­heim­ildir ráð­herra of opnar og að drög að reglu­gerðum og stefnu­mörkun þurfi að vera til staðar áður en mál af þess­ari stærð er sam­þykkt. „Þó að ramm­inn í púsl­inu sé að ein­hverju leyti til staðar í frum­varp­inu vantar mikið upp á heild­ar­mynd­ina. Í stað þess að frum­varpið sé leið­bein­andi virð­ist það frekar halla að boðum og bönnum. Frum­varpið má ekki koma í veg fyrir eðli­lega og mik­il­væga atvinnu­þróun og upp­bygg­ingu með boð­uðum tak­mörk­unum. Gjald­taka, leyf­is­veit­ingar og úthlut­anir taka í raun stærri sess í frum­varp­inu en þau mark­mið sem lagt er upp með.“

SAF bendir á að reynslan hafi kennt að það taki tíma að byggja upp þjóð­garð í sátt við hag­að­ila. Til að hægt sé að koma þjóð­garði af þess­ari stærð á lagg­irnar þurfi að tryggja rekstur til langs tíma. „Sú fjár­mögnun hefur ekki verið tryggð og ljóst er að ótækt er að slík fjár­mögnun verði tryggð með öflun sér­tekna af ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum. Öllum er ljóst að ferða­þjón­usta hefur farið hvað verst út úr þeim heims­far­aldri sem nú gengur yfir heim­inn. Ljóst er að burðir grein­ar­innar til auk­innar gjald­töku og skatt­heimtu verða engir næstu árin.“

[adspot]

Náttúra Íslands, þar á meðal hálendi Íslands og jað­ar­svæði þess, er sú auð­lind sem íslensk ferða­þjón­usta byggir á, segir enn­fremur í umsögn­inni. Verð­mæta­sköpun atvinnu­grein­ar­innar fyrir sam­fé­lagið byggi á nýt­ingu auð­lind­ar­innar á sjálf­bæran hátt til fram­tíðar. Þegar fjallað sé um vernd og friðun hálend­is­ins sé því nauð­syn­legt að horfa sér­stak­lega til þátta varð­andi áfram­hald­andi nýt­ingar auð­lind­ar­innar og upp­bygg­ingar inn­viða ásamt atvinnu­sköpun í sam­hengi við vernd nátt­úru. „Nauð­syn­legt er að tryggja eins og kostur er jafn­vægi verndar og nýt­ingar. Að mati SAF er frum­varp um hálend­is­þjóð­garð van­búið hvað þetta varðar.“

Ferða­þjón­usta stendur frammi fyrir „afar erf­iðum upp­bygg­ing­ar­tíma eftir heims­far­aldur kór­ónu­veiru á næstu árum og hlýtur að gera kröfu um að laga­setn­ing stjórn­valda um grund­vall­ar­at­riði varð­andi atvinnu­starf­semi í grein­inni veiti skýra fram­tíð­ar­sýn,“ segir í umsögn SAF.

Í ljósi allra þess­ara þátta segj­ast Samtök ferða­þjón­ust­unnar ekki geta mælt með sam­þykkt frum­varps um hálend­is­þjóð­garð í óbreyttri mynd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hálendisþjóðgarður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár