Könnun: Fleiri andvíg en fylgjandi frumvarpi Guðmundar Inga um Hálendisþjóðgarð

Samkvæmt könnun frá Gallup segj­ast 43 pró­sent and­víg frum­varpi umhverfis- og auð­linda­ráð­herra um stofnun Hálend­is­þjóð­garðs, en 31 pró­sent fylgj­andi. Rúmlega fjórir af tíu segj­ast hafa litla þekk­ingu á frum­varp­inu.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ný könnun frá Gallup leiðir í ljós að fleiri segj­ast and­víg frum­varpi Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar umhverfis- og auð­linda­ráð­herra um Hálend­is­þjóð­garð en fylgj­andi.

RÚV greinir frá nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar, en um er að ræða net­könnun sem fram­kvæmd var dag­ana 29. des­em­ber til 10. jan­úar. Nið­ur­stöður hennar eru á þann veg að 43 pró­sent aðspurðra segj­ast and­víg frum­varp­inu en 31 pró­sent fylgj­andi. Rúmlega fjórð­ungur seg­ist hvorki með eða á móti. Skoða má nið­ur­stöður Þjóð­ar­púls Gallup um Hálend­is­þjóð­garð í heild sinni hér.

Fram kemur í frétt RÚV að 45 pró­sent séu þó almennt fylgj­andi því að hálendi Íslands verði gert að þjóð­garði, eða tölu­vert fleiri en segj­ast fylgj­andi frum­varpi ráð­herra, sem deilt hefur verið um á sviði stjórn­mál­anna und­an­farið.

34 pró­sent segj­ast nú and­víg því að mið­há­lendið verði gert að þjóð­garði en 20 pró­sent taka hvorki afstöð með eða á móti. Því eru áfram fleiri en færri sem vilja að þjóð­garður verði stofn­aður á hálend­inu.

Einnig segir að 56 pró­sent þeirra sem eru undir þrí­tugu séu fylgj­andi frum­varp­inu og að stuðn­ingur sé mestur á meðal þeirra sem einnig segj­ast ætla að kjósa Vinstri græn eða Sam­fylk­ing­una. Þeir sem segj­ast ætla að kjósa Mið­flokk­inn eða Fram­sókn­ar­flokk­inn eru lík­leg­astir til að vera and­vígir frum­varp­inu.

Fleiri en fjórir af tíu telja sig ekki þekkja frumvarpið vel

Samkvæmt frétt RÚV telja rúm­lega 40 pró­sent aðspurðra sig ekki þekkja frum­varpið vel. Fram kemur að karlar seg­ist þekkja frum­varpið betur en konur og að and­stæð­ingar hálend­is­þjóð­garðs, íbúar utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og kjós­endur Mið­flokks­ins hafi verið lík­leg­ust til að segj­ast þekkja frum­varpið vel.

[adspot]

Á vef stjórn­ar­ráðs­ins hefur verið sett upp upp­lýs­inga­síða þar sem algengum spurn­ingum um stofnun hálend­is­þjóð­garðs og það sem felst í frum­varp­inu er svar­að.

Stuðningur við Hálendisþjóðgarð hefur farið vaxandi undanfarinn áratug

Skoð­ana­kann­anir sem fram­kvæmdar hafa verið á und­an­förnum árum hafa sýnt fram á meiri­hluta­stuðn­ing við stofnun mið­há­lend­is­þjóð­garðs, en málið hefur verið umdeilt og mikið til umræðu nú þegar hug­mynd­irnar eru komnar á það stig að geta orðið að veru­leika.[links]

Sam­kvæmt skoð­ana­könnun sem Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands fram­kvæmdi árið 2018 voru tæp­lega 63 pró­sent frekar eða mjög hlynnt stofnun þjóð­garðs á mið­há­lend­inu og um 28 pró­sent sögð­ust ekki hafa á því skoðun sem hall­að­ist í aðra hvora átt­ina. Einungis 10 pró­sent voru and­víg.

Nánar má fræð­ast um nið­ur­stöður við­horfskönn­un­ar­innar í meist­ara­verk­efni Michaël Bis­hop í land- og ferða­mála­fræði, sem finna má á Skemm­unni.

Fyrri kann­anir sem gerðar hafa verið á við­horfum þjóð­ar­innar til stofnun mið­há­lend­is­þjóð­garðs hafa einnig bent til þess að meiri­hluti lands­manna sé hlynntur hug­mynd­inni.

Sam­kvæmt könnun Capacent Gallup frá árinu 2011 voru um 56 pró­sent þjóð­ar­innar hlynnt því að stofna þjóð­garð á mið­há­lend­inu, en tæp 18 pró­sent lýstu sig and­víg slíkum hug­mynd­un­um. Þá, rétt eins og í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar 2018, var stuðn­ing­ur­inn mestur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Önnur könnun sem Gallup gerði árið 2015 sýndi að stuðn­ingur lands­manna við mið­há­lend­is­þjóð­garð var kom­inn yfir 61 pró­sent. Áfram mæld­ist stuðn­ing­ur­inn meiri á meðal íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en íbúa lands­byggð­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár