Vaxandi stuðningur við þjóðgarð á hálendinu undanfarinn áratug en ekki sátt í þinginu

Tæp 63 pró­sent lands­manna sögð­ust styðja stofnun þjóð­garðs á mið­há­lend­inu í könnun árið 2018, en ein­ungis tæp 10 pró­sent voru and­víg. Mörg ólík sjón­ar­mið eru þó enn uppi um útfærsl­una og ekki full sátt um málið í þing­liði rík­is­stjórn­ar­flokk­anna.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra Vinstri grænna mælti fyrir frumvarpinu í gær.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra Vinstri grænna mælti fyrir frum­varp­inu í gær. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra mælti fyrir frum­varpi sínu um Hálend­is­þjóð­garð á Alþingi í gær og gekk málið til nefndar í kjöl­far umræðu sem stóð til mið­nættis. Ólík sjón­ar­mið þing­manna voru viðruð í ræðu­stól Alþingis, eins og við mátti búast og nokkuð hart tek­ist á.

Eins og Kjarninn sagði frá í gær­kvöldi hélt for­seti Alþingis, Stein­grímur J. Sig­fús­son, inn­blásna ræðu um málið, en hann hefur setið í þverpóli­tískri nefnd um stofnun mið­há­lend­is­þjóð­garðs fyrir hönd Vinstri grænna.[links]

Nefndin hafði í meg­in­dráttum það hlut­verk að setja fram til­lögur að útfærslu þjóð­garðs­ins, þ.e. skil­greina mörk, leggja línur um fyr­ir­komu­lag og áherslur sem útfærðar yrðu í laga­frum­varpi um þjóð­garð­inn. Nefndin skil­aði skýrslu fyrir rösku ári síðan, sem allir póli­tískt skip­aðir nefnd­ar­menn und­ir­rit­uðu nema full­trúi Mið­flokks­ins.

Í starfi þess­arar nefndar voru haldnir tugir kynn­ingar- og sam­ráðs­funda með hags­muna­að­ilum, sveit­ar­fé­lögum og fleirum, víða um land. Sömu­leiðis stóð yfir sam­ráðs­ferli jafn­óðum og nefndin starf­aði í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, þangað sem 122 umsagnir bár­ust í heild­ina við ein­staka þætti vinn­unnar. 

[adspot]

Sjötíu og tvær umsagnir bár­ust svo um frum­varps­drögin þegar þau lágu frammi í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Ljóst er að margir hafa skoð­anir á útfærsl­unni og ekki allir eru sáttir með það verði sam­þykkt í óbreyttri mynd.

Und­ir­skriftum er nú safnað á net­inu gegn öllum áformum um stofnun hálend­is­þjóð­garðs. Á vef stjórn­ar­ráðs­ins hefur verið sett upp upp­lýs­inga­síða þar sem algengum spurn­ingum um stofnun hálend­is­þjóð­garðs og það sem felst í frum­varp­inu er svarað.

Stein­grímur sagð­ist í ræðu sinni í gær trúa því að hægt yrði að breikka stuðn­ing um þjóð­garð­inn í með­förum þings­ins en sagð­ist að sama skapi ekki vera á þeirri skoðun að sá minni­hluti sem væri á móti ætti að hafa neit­un­ar­vald.

„Á ein­hver örlít­ill grenj­andi minni­hluti að hafa neit­un­ar­vald um það að þjóðin megi stofna þennan þjóð­garð sinn á sínu eigin land­i?“ spurði Stein­grímur og lagði áherslu á að ríkur vilji hefði mælst hjá almenn­ingi um að stofna ætti þjóð­garð á hálend­inu. En hvernig hafa við­horf almenn­ings til stofn­unar þjóð­garðs á mið­há­lend­inu mælst?

Lítill minnihluti réttnefni hjá Steingrími

Samkvæmt skoð­ana­könnun sem Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands fram­kvæmdi árið 2018 voru tæp 10 pró­sent lands­manna ýmist mjög eða frekar and­víg því að stofn­aður yrði mið­há­lend­is­þjóð­garður.

Tæplega 63 pró­sent sögð­ust frekar eða mjög hlynnt stofnun þjóð­garðs á mið­há­lend­inu og um 28 pró­sent sögð­ust ekki hafa á því skoðun sem hall­að­ist í aðra hvora átt­ina. Nánar má fræð­ast um nið­ur­stöður við­horfskönn­un­ar­innar í meist­ara­verk­efni Michaël Bishop í land- og ferða­mála­fræði, sem finna má á Skemm­unni.

Munur á milli viðhorfa í höfuðborg og landsbyggðum

Meist­ara­verk­efni Bishop hverfð­ist um að draga fram við­horf þjóð­ar­innar til stofnun hálend­is­þjóð­garðs og kom í ljós í rann­sókn hans að mark­tækur munur var á við­horfum til stofn­unar þjóð­garð á meðal mis­mun­andi hópa í íslensku sam­fé­lagi.

Stuðn­ingur við stofnun mið­há­lend­is­þjóð­garðs reynd­ist til dæmis meiri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en í lands­byggð­unum, en um 71 pró­sent höf­uð­borg­ar­búa sögð­ust styðja stofnun og um 47 pró­sent íbúa í lands­byggð­unum. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mæld­ist and­staðan að sama skapi ein­ungis 6 pró­sent, en 17 pró­sent í lands­byggð­unum.

Aukinn stuðningur frá fyrri könnunum

Fyrri kann­anir sem gerðar hafa verið á við­horfum þjóð­ar­innar til stofnun mið­há­lend­is­þjóð­garðs hafa einnig bent til þess að meiri­hluti lands­manna sé hlynntur hug­mynd­inni. Sá stuðn­ingur hefur farið vax­andi á und­an­förnum árum.

Samkvæmt könnun Capacent Gallup frá árinu 2011 voru um 56 pró­sent þjóð­ar­innar hlynnt því að stofna þjóð­garð á mið­há­lend­inu, en tæp 18 pró­sent lýstu sig and­víg slíkum hug­mynd­unum. Þá, rétt eins og í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar 2018, var stuðn­ing­ur­inn mestur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Önnur könnun sem Gallup gerði árið 2015 sýndi að stuðn­ingur lands­manna við mið­há­lend­is­þjóð­garð var kom­inn yfir 61 pró­sent. Áfram mæld­ist stuðn­ing­ur­inn meiri á meðal íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en íbúa lands­byggð­anna.

Ekki full sátt um málið í þingliði ríkisstjórnarflokkanna

Frumvarp umhverfis- og auð­linda­ráð­herra hefur nú gengið til umræðu í umhverfis- og sam­göngu­nefnd þings­ins, sem áður segir, en miðað við umræð­urnar í þing­inu í gær verða marg­vís­leg sjón­ar­mið uppi á borð­inu í starfi nefnd­ar­innar.

Bæði þing­menn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks, sem sitja með Vinstri grænum í rík­is­stjórn, hafa lýst yfir efa­semdum um frum­varpið og gefið í skyn að þeir geti ekki stutt það í núver­andi mynd, þrátt fyrir að málið sé í stjórn­ar­sátt­mála flokk­anna þriggja og hafi verið sam­þykkt í rík­is­stjórn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár