Spurði hvort „örlítill grenjandi minnihluti“ ætti að geta neitað þjóðinni um þjóðgarð

Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis sagði á þingi að frum­varp um Hálend­is­þjóð­garð færði aukin völd og áhrif til heima­manna og þjóð­garð­ur­inn nyti ríks stuðn­ings þjóð­ar­innar. „Grenj­andi minni­hluti“ ætti ekki að hafa neit­un­ar­vald.

Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis í ræðustól í kvöld.
Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis í ræðu­stól í kvöld. Mynd: Skjáskot

„Á ein­hver örlít­ill grenj­andi minni­hluti að hafa neit­un­ar­vald um það að þjóðin megi stofna þennan þjóð­garð sinn á sínu eigin landi?“ spurði Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis og þing­maður Vinstri grænna í ræðu sinni um Hálend­is­þjóð­garð á Alþingi í kvöld.

Forseti Alþingis er ekki tíður gestur í ræðu­stól þings­ins, en Stein­grímur sagð­ist hafa látið það eftir sér að halda ræðu um málið, sem hann sagði sér mik­il­vægt. „Ég hef sterkar taugar til þessa svæðis,“ sagði Stein­grímur og bætti því við að fyrir honum væri leynd­ist hjarta Íslands og helgi­dómar á hálend­inu.

„Fyrir okkur sem ekki eru trúuð er vissu­lega hægt að kom­ast í helgi­dóma, þeir eru kannski ann­ars eðlis heldur en kirkjur eða moskur. Mér er það mikið til­finn­inga­mál að við stöndum okkur, núver­andi kyn­slóð í land­inu, í gæslu okkar fyrir þessum perlum sem þarna liggja,“ sagði hann og bætti við að hann fagn­aði því mjög að frum­varpið væri komið fram til umræðu á Alþingi.

[adspot]

Sagðist hann þess full­viss að hægt yrði að breikka sam­stöðu enn frekar um málið í með­förum þings­ins, en sagði þó þegar vís­bend­ingar um að 65 pró­sent þjóð­ar­innar væru hlynnt því að stofna þennan þjóð­garð og vildu fá sinn hálend­is­þjóð­garð.

„Að sjálf­sögðu á að leita eins góðrar sam­stöðu og mögu­legt er, en ég segi líka alveg hik­laust að sá síð­asti eigi ekki að hafa neit­un­ar­vald,“ sagði Stein­grímur.

Síðan spurði hann hvort það væri svo að „ein­hver örlít­ill grenj­andi minni­hluti“ ætti að hafa neit­un­ar­vald gagn­vart þjóð­inni um þjóð­garð­inn. Svo rakti Stein­grímur að verið væri að tala um þjóð­lend­urnar, hina gömlu almenn­inga Íslands.

Hann minnti á að þverpóli­tíska nefndin um stofnun mið­há­lend­is­þjóð­garðs, sem hann sat í fyrir hönd Vinstri grænna, hefði valið þá leið til að greiða götu máls­ins, að draga minnsta sam­nefn­ara og marka Hálend­is­þjóð­garði svæði utan um þjóð­lendur innan hálend­is­lína. „Er þá ekki staðan býsna sterk, til að inn á því svæði megi þjóðin stofna sinn þjóð­garð?“

Verið að færa „stóraukin áhrif og völd“ til heimafólks

Þau sjón­ar­mið að með stofnun Hálend­is­þjóð­garðs sé verið að færa skipu­lags­völd frá sveit­ar­fé­lögum hafa heyrst í umræðum um málið.

Stein­grímur sagði sveit­ar­fé­lögum lands­ins tryggður alveg „óheyri­lega sterkur vett­vangur“ innan stjórn­sýslu fyr­ir­hug­aðs þjóð­garðs, ásamt fleirum sem þyrftu að koma að málum svo að vel færi.

Hann sagði und­ar­legt að engir alþing­is­menn hefðu minnst á það í umræðum kvölds­ins að með þessu frum­varpi væri verið að færa sveit­ar­fé­lögum, heima­mönnum, umsýslu frið­lýstra svæða sem Umhverf­is­stofnun færi með nú. Stein­grímur sagði auk þess að ekki væri með frum­varp­inu verið að raska neinum hefð­bundnum nytjum á svæð­unum. Það skil­yrði væri þó gert að þær nytjar væru sjálf­bærar.

Stein­grímur sagði að öfugt við það sem væri oft heyrð­ist í umræð­unni væri í raun verið að færa heima­mönnum „stór­aukin áhrif og völd í þessu frum­varpi“.

Stjórnmálamönnum verði þakkað um aldir

Hann setti fram þann spá­dóm undir lok ræðu sinnar, að þeirri kyn­slóð íslenskra stjórn­mála­manna sem skil­aði í höfn því verki að stofna þennan „stór­kost­lega merki­lega þjóð­garð á heims­vísu, með gríð­ar­legum tæki­færum fyrir okkur öll,“ yrði þakkað um aldir á Íslandi.

„Við erum ekki að taka neitt frá neinum með því að stofna þennan þjóð­garð, við erum að tryggja að hlutir verði til, óskemmdir og ósnortnir, handa kom­andi kyn­slóðum,“ sagði Stein­grímur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár