Grenjandi minnihlutinn lætur í sér heyra og vantreystir ráðherra

Óánægja er á meðal ýmsra hópa vegna frum­varps umhverf­is­ráð­herra um Hálend­is­þjóð­garð. Orð for­seta Alþingis um að ein­ungis „örlít­ill grenj­andi minni­hluti“ standi gegn mál­inu hafa verið prentuð á bíla­lím­miða.

Á samfélagsmiðlum má finna fjölmargar færslur þar sem fólk tjáir sig undir kassmerkinu #örlítillgrenjandiminnihluti
Á sam­fé­lags­miðlum má finna fjöl­margar færslur þar sem fólk tjáir sig undir kass­merk­inu #örlít­ill­grenj­andiminni­hluti Mynd: Samsett

Hálfgerð sam­fé­lags­miðla­bylt­ing virð­ist hafin í sam­fé­lagi íslenskra fjalla­manna. Á Facebook hafa fjöl­margir birt myndir af sér á ferð um hálendi Íslands og lýst yfir and­stöðu við frum­varp Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar umhverf­is­ráð­herra um Hálend­is­þjóð­garð. Allt er þetta gert undir kass­merk­inu #örlít­ill­grenj­andiminni­hluti.

Nú þegar er búið er að fram­leiða lím­miða með íslenska fán­anum og þessu slag­orði, örlít­ill grenj­andi minni­hluti. Miðað við und­ir­tektir í umræðu­hópi fjalla­jeppa­manna á Facebook er þess ekki langt að bíða að lím­mið­inn skreyti aft­ur­stuð­ara eða bíl­rúður breyttra bíla í umferð­inni.

Með slag­orð­inu er vísað til orða Stein­gríms J. Sig­fús­sonar for­seta Alþingis, sem féllu í þing­ræðu um frum­varpið á þriðju­dags­kvöld. Þar vís­aði hann til þess að víð­tækur almennur stuðn­ingur væri á meðal lands­manna við að gera mið­há­lendið að þjóð­garði, þrátt fyrir að lít­ill hluti væri því and­vígur.[links]

Und­ir­skrifta­söfnun hefur verið í gangi und­an­farna daga gegn áformum um Hálend­is­þjóð­garð og hafa rúm­lega 11 þús­und manns sett nafn sitt á blað. Margir sem skrifa undir virð­ast hafa af því áhyggjur að stofnun þjóð­garðs muni þrengja að mögu­leikum þeirra til þess að ferð­ast að vild um hálendið.

Orð umhverf­is­ráð­herra um að þvert á móti sé með stofnun þjóð­garðs­ins verið að auka aðgengi þjóð­ar­innar að hálend­inu gera lítið til þess að sefa ótta sem sumir hafa, um að þegar og ef þjóð­garður verði stofn­aður muni ráð­herra hafa það á sínu valdi að loka svæðum fyrir umferð í nafni nátt­úru­verndar.

Ráðherra: „Óttist eigi“

Guð­mundur Ingi sagði í Kast­ljósi á mið­viku­dags­kvöld að þing­menn Mið­flokks­ins hefðu farið með ítrek­aðar rang­færslur um málið í ræðu­stól þings­ins og sagð­ist setja spurn­inga­merki við það þegar komin væri „hálf­gerð upp­lýs­inga­óreiða inn í málið inni í sölum Alþingis.“

[adspot]

Í Kast­ljósi full­yrti Guð­mundur Ingi einnig að ekki væri verið að fara að loka hálend­inu fyrir fólki.

„Þjóð­garðar eru einmitt til að færa nátt­úr­una að fólki, auka fræðslu um hana og auka aðgengi að henni. En það er vissu­lega stýr­ing og ég held að allir geti verið sam­mála um það að við þurfum að auka land­vörslu á þessum svæðum, auka fræðsl­una, beina fólki á ákveðnar brautir innan þess­ara svæða til þess að draga úr álagi á nátt­úr­una. Fáir þekkja mörg þess­ara svæða betur heldur en einmitt fólkið sem býst nær þeim og fólkið sem hefur verið að ferð­ast hvað mest á hálend­inu, úti­vi­star­fólk.

Á sama tíma og ég skil að fólkið hafi áhyggjur af því að það sé verið að reyna að taka eitt­hvað af þeim þá segi ég, ótt­ist eigi, því það er ekki það sem verið er að gera með þessu,“ sagði ráð­herra.

Sérstök síða hefur verið sett upp af hálfu umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins þar sem svör er að finna við algengum spurn­ingum um efni frum­varps­ins.

Óttast að ráðherra verði ráðríkur með reglugerðum

Kjarninn setti sig í sam­band við Kristinn Snæ Sig­ur­jóns­son, sem kom und­ir­skrifta­söfn­un­inni gegn þjóð­garðs­á­formum af stað. Hví þessi and­staða?

„Í okkar huga er þetta frekar ein­falt. Það er verið að vera að vega að lands­mönnum með þessum áformum,“ segir Kristinn Snær þegar blaða­maður spyr. Hann útskýrir að því meira sem fólk kynni sér frum­varpið komi betur og betur í ljós „hvað ráð­herra á eftir að hafa mikil völd í þessu.“

„Að okkar mati er það ekki hægt í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi að einn maður geti ráðið svo miklu land­flæmi á þessu landi. Það er ekki boð­legt,“ segir Kristinn. Hann bætir við að þegar farið sé yfir frum­varpið komi í ljós það sé ýmis­legt sem umhverf­is­ráð­herra hverju sinni sé ætlað að setja í reglu­gerðir.

„Alls kyns mál sem skipta miklu máli og okkur finnst að ráð­herra einn ætti ekki að geta haft alvald um,“ bætir Kristinn Snær við, en eitt af því sem helst brennur á þeim sem mót­mæla er kveðið á um í 18. gr. frum­varps­ins og að lýtur að umferð­ar­stýr­ingu í þjóð­garð­inum.

„Í reglu­gerð sem ráð­herra setur skal setja reglur um dvöl, umgengni og umferð í Hálend­is­þjóð­garði, þ.m.t. tjöldun og umferð gang­andi, ríð­andi og hjólandi veg­far­enda, sem og um umferð vél­knú­inna öku­tækja, báta, skipa, loft­fara, flygilda og hvers konar ann­arra far­ar­tækja í þjóð­garð­inum,“ segir um þetta í frum­varp­inu.

Ráðherra með tengsl við „náttúruverndar-öfgasamtök“

Blaða­maður spurði hvort orð ráð­herr­ans dugi ekk­ert til að sefa ótta um að hann muni taka sér alræð­is­vald og loka svæðum ef honum dytti það í hug. Er ekki trú til staðar á því að mögu­legar lok­anir á ein­staka svæðum eða slóðum verði ein­ungis gerðar að ráð­legg­ingum þeirra sér­fræð­inga sem fylgj­ast með ástandi nátt­úr­unnar?

„Jú, eflaust verða þau með í ráðum. En ráð­herra hefur loka­orðið. Eins og við vitum er hann tengdur hags­muna­sam­tökum. Hann er fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Land­verndar og þau telj­ast, því miður, sem nátt­úru­verndar-öfga­sam­tök,“ segir Kristinn Snær.

„Það er alveg sama hvert maður horfir í sam­fé­lag­inu eða heim­inum að öfgar eru aldrei af hinu góða. Það er staðan. Því miður erum við hrædd um það að þetta geri opnað á þann mögu­leika að öfga­kenndir stjórn­un­ar­hættir gætu orðið að veru­leika,“ bætir hann við.

Hann full­yrðir að and­staðan við frum­varpið sé ekki lítil, eins og sumir ráða­menn vilja meina, heldur mikil.

„Ég er full­viss um það að þing­menn­irnir í Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki láta þetta ekki fara í gegn eins og þetta er. Við treystum algjör­lega á þá til þess að vera með fæt­urnar á jörð­inni í þessu máli,“ segir Kristinn einnig.

Ýmsir sárir út í forseta þingsins

Kristinn segir að margir hafi furðað sig á því að Stein­grímur J. hafi notað orð­færið „örlít­ill grenj­andi minni­hluti“ er hann tjáði sig um málið á þingi í vik­unni.

Ein­hverjum hafi sárnað, þrátt fyrir að síðan hafi vörn verið snúið í sókn með því að hefja umræður um málið undir áður­nefndu kass­merki.

„Þetta er skandall að for­seti Alþingis láti svona út úr sér. Hann er í raun að gera lítið úr Alþingi með þessum ummælum. Hvernig eiga lands­menn að geta treyst þess­ari stofnun þegar for­seti Alþingis talar svona um hluta lands­manna? Og ekk­ert lít­inn hluta, þetta er mikið af fólki,“ segir Kristinn.

„Bara almennt, að tala niður til ein­hvers ákveð­ins þjóð­fé­lags­hóps. Þetta er skandall og ekk­ert annað. Hann virð­ist ekki skamm­ast sín mikið fyrir þetta,“ bætir hann við.

Hefur ekki áhyggjur af fyrirvörum við málið

Frumvarp um Hálend­is­þjóð­garð gekk til umhverfis- og sam­göngu­nefndar þings­ins á þriðju­dags­kvöld og fram hefur komið að þing­flokkar bæði Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks hafa sett fyr­ir­vara við sam­þykkt þess í óbreyttri mynd.

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra ráð­herra sagð­ist þó ekki hafa áhyggjur af því að þjóð­garðs­málið dag­aði uppi í nefnd­inni, er hann var spurður í Kast­ljósi hvort hann teldi lík­legt að það kæm­ist í gegnum þingið.

„Ég hef nú áður fengið fyr­ir­vara á mál sem ég hef farið með í þingið og við höfum leyst úr því. Ég hef ekki miklar áhyggjur af þessu,“ sagði Guð­mundur Ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

miðhálendisþjóðgarður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár