Danir ætla að búa til risastóra eyju í Norðursjó

Fullgerð myndi eyjan sem stendur til að búa til í Norð­ur­sjó vera á stærð við 64 fót­bolta­velli. Á henni verður fram­leitt elds­neyti og raf­magni sem vind­myllur allt í kring munu fram­leiða dreift.

Orkueyjan í Norðursjó er einu skrefi nær því að verða að veruleika.
Orku­eyjan í Norð­ur­sjó er einu skrefi nær því að verða að veru­leika. Mynd: Danskenergi.dk

Umhverf­is­ráð­herra Dan­merkur hefur tryggt póli­tískt sam­komu­lag sem felur í sér að búin verður til eyja í Norð­ur­sjó, um 80 kíló­metrum undan ströndum lands­ins. Um stærstu fjár­fest­ingu í sögu Dan­merkur er að ræða. Fram­kvæmdin mun kosta að minnsta kosti 210 millj­arða danskra króna – um fimm sinnum meira en kost­aði að reisa Stóra­belt­is­brúna.

Á eyj­unni og í sjónum umhverfis hana verður rek­inn risa­stór orku­garður með hund­ruðum vind­mylla. Myll­urnar verða óvenju stórar eða um 260 metrar á hæð. Orku­eyjan mun verða til þess að Danir geta upp­fyllt mark­mið sín í lofts­lags­málum. Þá stendur einnig til að flytja raf­magnið og elds­neytið sem fram­leitt verður á eyj­unni út til ann­arra landa.

Umhverf­is­ráð­herr­ann segir að með sam­komu­lag­inu hafi verið lagður grunnur að orku­skipt­unum – ekki aðeins Dönum til heilla heldur einnig Evrópu og í raun heims­byggð­inni allri. „Það er mik­il­vægt að Danmörk sé land nýsköp­unar,“ sagði ráð­herr­ann Dan Jørg­en­sen, er hann kynnti áætl­an­irnar á blaða­manna­fundi í vik­unni. „Aðeins með því að hvetja aðra í því að þróa grænar lausnir sem þeir geta nýtt getum við raun­veru­lega tek­ist á við lofts­lags­breyt­ingar.“

Gæti framleitt rafmagn fyrir 10 milljónir heimila í Evrópu

Eyjan verður í fyrsta áfanga að minnsta kosti 120 þús­und fer­metrar að stærð – jafn­stór og um átján fót­bolta­vellir. Vind­myll­urnar verða á hafi úti en á eyj­unni verða m.a. tengi- og dreifi­virki. Er á stefnu­skránni að í fyrstu verði fram­leitt raf­magn sem dugar fyrir um þrjár millj­ónir heim­ila en að orku­garð­ur­inn verði svo stækk­aður og geti í fram­tíð­inni fram­leitt raf­magn fyrir um tíu millj­ónir heim­ila. Áður en af því yrði þyrfti að stækka eyj­una veru­lega og myndi hún þá jafn­ast á við 64 fót­bolta­velli. Á eyj­unni á m.a. nýta nýj­ustu tækni og fram­leiða elds­neyti fyrir skip og flug­vélar fram­tíð­ar­innar, t.d. vetni.

Orku­fyr­ir­tækið Ørsted, sem er að hluta í eigu danska rík­is­ins og er leið­andi í rekstri vind­orku­garða á hafi úti, hefur gagn­rýnt þessar fyr­ir­ætl­anir og ótt­ast að til­búin eyja muni ekki falla vel í kramið hjá Dönum. Auk þess telur fyr­ir­tækið kostn­að­inn of stóran bita að kyngja. Þá minnir fyr­ir­tækið á að til að fram­leiða vetni þurfi að hafa góðan aðgang að miklu magni af fersku vatni. Ørsted seg­ist hafa lagt til að í stað til­bú­innar eyju verði not­ast við palla sem auki sveigj­an­leik­ann. Á þessa gagn­rýni hafi stjórn­völd ekki hlustað.

Í frétt Berl­inske um málið segir að eyjan verði flokkuð sem grunn­inn­viðir og verði því í meiri­hluta­eigu rík­is­ins. Nokkrir danskir fjár­fest­ing­ar­sjóðir hafa þegar sýnt áhuga á verk­efn­inu sem þeir kalla Vindeyju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár