Rafmagnsnotkun mun minni í ESB í ár

Alls minnk­uðu aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins raf­orku­notkun sína um níu pró­sent í vor og byrjun sum­ars, miðað við sama tíma­bil í fyrra.

Frá Ítalíu í sumar. Raforkunotkun minnkaði einna mest í Suður-Evrópu, sérstaklega á Kýpur og Ítalíu
Frá Ítalíu í sumar. Raf­orku­notkun minnk­aði einna mest í Suður-Evrópu, sér­stak­lega á Kýpur og Ítalíu Mynd: EPA

Raf­magns­neysla flestra aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins hefur verið tölu­vert undir með­al­tali síð­ustu ára síðan í mars síð­ast­liðnum. Þetta kemur fram í nýút­gefnum tölum hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins, Eurostat.

Samkvæmt til­kynn­ingu Eurostat hefur lækk­unin verið mest á meðal aðild­ar­ríkja sem reiða sig meira á ferða­manna­iðn­að­inn, en hún nam meiri en tíu pró­sentum í Grikk­landi, Spáni, Króatíu, Kýpur, Póllandi og Slóveníu.

Mesta breyt­ingin var á Kýpur, þar sem raf­orku­notkun milli mars og júní dróst saman um 14 pró­sent. Minnstu breyt­ing­una má hins vegar sjá í Norður-Evrópu, en raf­magns­notkun í Eist­landi, Svíþjóð og Danmörku á mán­uð­unum mars til júní er nán­ast á pari við sama tíma­bil í fyrra.

Heild­ar­raforku­notkun allra aðild­ar­ríkja sam­band­ins hefur svo dreg­ist saman um tæpar 74 þús­und gíga­vatts­stundir í vor og byrjun sum­ars, en það er um níu pró­sentum minna en notað var í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár