Hugmyndir um útbreidd vindorkuver „alls ekki raunhæfar”

Bjarni Bjarna­son for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur varar við því að reist verði mörg vind­orku­ver á skömmum tíma. Hann segir fyr­ir­tæki sem sæk­ist eftir því að reisa vind­orku­ver ekki gera það til að bjarga lofts­lag­inu heldur hugsi um ágóða.

Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, var í viðtali í Silfrinu á RÚV. Mynd / Aðsend.
Bjarni Bjarna­son, for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur, var í við­tali í Silfrinu á RÚV. Mynd / Aðsend. Mynd: Atli Már Hafsteinsson

Hug­myndir um nýt­ingu vind­orku hér á landi eru að óraun­hæfar að mati Bjarna Bjarna­sonar frá­far­andi for­stjóra Orku­veitu Reykja­víkur sem var í við­tali í Silfrinu á RÚV á sunnu­dag. Hann segir ekki rétt að það liggi veru­lega á að koma hér upp vind­orku­verum í þágu orku­skipta og segir að það versta sem gæti gerst væri ef hér yrðu reistar þús­und vind­myllur á einu bretti.

Bjarni ræddi um orku­skiptin, orku­þörf og hug­myndir um upp­bygg­ingu vind­orku­vera, eða vind­myllu­garða hér á landi. Ýmis fyr­ir­tæki hafa sóst eftir því að fá að beisla vind­inn, alla liggja fyrir hug­myndur um slíka upp­bygg­ingu á 34 stöðum víða um landið.

Meðalvindorkuver gnæfir 150 metra yfir umhverfið

„Fyr­ir­tækin sem sækj­ast eftir að kom­ast í þetta eru norsk og dönsk og frönsk og ein­hver íslensk að auki. Ég held að það þurfi svona um það bil 30 vind­myllur á hverju svæði bara til þess að tryggja lág­marks hag­kvæmni. Og það þýðir á þessum svæðum sam­an­lagt svona um eitt þús­und vind­myllur. Eitt þús­und vind­myllur.

Vind­myllur í dag eru engin smá­smíð. Ég bendi á að með­al­vind­mylla í dag, sem er þrjú mega­vött, hún er 100 metra há, bara stólp­inn undir henni. Með spaða í hæstu hæð þá bæt­ast við 50 metrar þannig að hún mun hún gnæfa 150 metra yfir umhverfið.

En tækn­inni fleygir fram þannig að lík­ast til verða vind­virkj­anir fjögur til fimm mega­vött og þeim mun hærri, kannski 250 metrar á hæð,“ segir Bjarni.

Orkugeirinn myndi valta yfir ferðaþjónustuna

Hann var spurður að því í þætt­inum hvort áform um vind­virkj­anir hér á landi væru raun­hæfar að hans mati.

„Ég tel að þær séu alls ekki raun­hæfar. Þarna væri orku­geir­inn að valta yfir ferða­þjón­ustu. Ferða­þjón­ustan er í dag sá atvinnu­vegur sem skilar mestum gjald­eyri í þjóð­ar­búið, gerði það fyrir Covid og það stefnir í það aftur núna, þannig að atvinnu­vegir þurfa að sjálf­sögðu að búa saman í sátt og sam­lyndi, það er ekki annað hægt. Einn atvinnu­vegur getur ekki valtað yfir annan.”

[links]

Ekkert liggi á

Bjarni segir æski­legt að eyða allri notkun á jarð­efna­elds­neyti út úr orku­bú­skap Íslands og eðli­legt sé að nýta vind­inn til að fram­leiða orku, en það sé ekki sama hvernig staðið sé að málum.

„Ég tel í fyrsta lagi að okkur liggi alls ekki á. Það versta sem gæti gerst er að við færum af stað og byggðum 1.000 vind­myllur sam­tímis. Sporin hræða og hjarð­hegðun er ekki góð,” segir Bjarni og bendir á að hér á landi hafi í gegnum tíð­ina verið gengið of langt í ýmsum atvinnu­greinum með slæmum afleið­ingum, t.d. í fisk­eldi, loð­dýra­rækt og svo í banka­starf­semi fyrir hrun.

„Ef við gefum okkur ekki tíma til að læra af reynsl­unni, af fyrstu vind­orku­görð­unum, þá er ver af stað farið en heima setið,“ segir Bjarni.

Gera þarf vindmælingar á hverjum stað

Hann segir mjög mik­il­vægt að fara ekki of hratt í upp­bygg­ing­una. „Við verðum að gefa okkur tíma. Í fyrsta lagi þarf að gera 2-3 ára mæl­ingar á hverjum stað, það er algjör­lega nauð­syn­legt. Það þarf að velja rétta tækni og það er mik­il­vægt hvar við veljum þeim stað.“

Hann bendir á að það getu haft kosti að stað­setja vind­orku­ver á rösk­uðum svæðum, þ.e. við núver­andi virkj­anir. Að tylla vind­myllum upp á fjall er afar óheppi­legt að mati Bjarna, enda sjá­ist víða langar leiðir hér á landi. Nálægð við virkj­anir hafi einnig þann kost að aðgengi að dreifi­kerfi sé betra.

Mikil pressa er víða lögð á sveit­ar­stjórn­ar­fólk að taka ákvarð­anir um vind­orku­ver, Bjarni var beð­inn að gefa þeim ráð um hvað skyldi gera.

„Andið með nef­inu. Megni þess­ara fyr­ir­tækja eru erlend fyr­ir­tæki sem eru ekki að hugsa um lofts­lagið heldur fyrst og fremst að hugsa um ágóða. Mál­flutn­ingur þeirra er dálítið í þeim dúr, og jafn­vel að þeir séu að vekja sekt­ar­kennd meðal heima­manna að þeir verði að taka þátt í að bjarga heim­inum. Þetta er ekki góður mál­flutn­ingur finnst mér. Með því að bjarga heim­inum megum við ekki fórna nátt­úru heims­ins heldur.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár