Vindorkuverið hefði „veruleg áhrif á ásýnd“ Hvalfjarðar og nágrennis

Hval­fjörður er þekktur fyrir fjöl­breytt og fal­legt lands­lag. Stofn­anir segja „mjög vanda­samt“ að skipu­leggja svo stórt inn­grip sem vind­orku­ver er á slíku svæði og að það yrði „mikil áskorun“ að ná sátt um bygg­ingu þess.

Vindmyllurnar sem yrðu notaðar í vindorkuverið í Hvalfirði yrðu um 250 metrar á hæð. Þær yrðu á fjalli sem er 647 metrar á hæð og því sjást mjög víða að.
Vind­myll­urnar sem yrðu not­aðar í vind­orku­verið í Hval­firði yrðu um 250 metrar á hæð. Þær yrðu á fjalli sem er 647 metrar á hæð og því sjást mjög víða að. Mynd: EPA

Ljóst er að vind­orku­ver sem Zephyr Iceland áformar á Brekku­kambi í Hval­fjarð­ar­sveit hefði mikil áhrif á ásýnd svæð­is­ins enda Hval­fjörður svæði sem er þekkt fyrir fjöl­breytt og fal­legt lands­lag .Að mati Nátt­úru­fræði­stofn­unar er mjög vanda­samt að skipu­leggja svo stórt inn­grip í lands­lag á svæði af slíkum toga. Heil­brigð­is­eft­ir­lit Vest­ur­lands telur það mikla áskorun að ná sátt um bygg­ingu vind­orku­vers í svo lít­illi fjar­lægð frá sum­ar­húsum og lög­býlum og Umhverf­is­stofnun telur að frekar ætti að stað­setja vind­myllur á núver­andi orku­vinnslu­svæðum þar sem allir inn­viðir til flutn­ings raf­orku og vegir eru til staðar og á landi hefur þegar verið raskað.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögnum stofn­ana við mats­á­ætlun Zephyr Iceland á fyr­ir­hug­uðu vind­orku­veri í Hval­fjarð­ar­sveit. Verið yrði 50 MW að afli og ráð­gert er að það rísi á um 300 hekt­ara svæði á Brekku­kambi, í landi Brekku. Reistar yrðu 8-12 vind­myllur sem hver um sig yrðu 250 metrar á hæð. Brekku­kambur er 647 metra hátt fjall í norð­an­verðum Hval­firði.

[adspot]

Til fram­kvæmd­ar­innar þyrfti m.a. að steypa grunn undir hverja vind­myllu og gera vinnuplan fyrir þær allar. Reisa á safn­stöð á fram­kvæmda­svæð­inu og bygg­ingar fyrir skrif­stofur, snyrt­ingu, eld­hús, geymslu og fleira tengt rekstri vind­orku­vers­ins. Innan fram­kvæmda­svæð­is­ins á svo að leggja nýja mal­ar­slóða, alls 12 kíló­metra á lengd og 6 metra á breidd. Gert er ráð fyrir að lagðir verði um 36 kíló­metrar af jarð­strengjum á milli vind­mylla og að safn­stöð og alls 12 km af loft­línum frá til­teknum vind­myllum að safn­stöð. Þá er gert ráð fyrir að loft­lína frá safn­stöð að tengi­virki Lands­nets verði um 10 kíló­metrar. Loks er gert ráð fyrir að nýr slóði verði lagður frá Draga­vegi að fram­kvæmda­svæð­inu.

Tugir athuga­semda frá fólki sem býr í Hval­firði og næsta nágrenni mót­mæla bygg­ingu vers­ins líkt og Kjarninn fjall­aði nýverið um. Sjón­mengun, hávaða­mengun og áhrif á fugla­líf eru þeim ofar­lega í huga. Vind­myll­urnar myndu gnæfa yfir stórt svæði og sjást í tuga kíló­metra fjar­lægð.

Mjög nálægt mikilvægu fuglasvæði

Nátt­úru­fræði­stofnun hefur skil­greint Hval­fjörð sem mik­il­vægt fugla­svæði og er það til­nefnt á B-hluta nátt­úru­minja­skrár. Um fjörð­inn liggja m.a. far­leiðir margæsa, rauð­bryst­inga og fleiri far­fugla og þar verpa ýmsar teg­undir. Hafernir heim­sækja fjörð­inn, íbúar segja þá hafa átt sér varp­stað þar í ára­tugi.

[links]„Þótt fram­kvæmda­svæðið skarist ekki við mörk fugla­svæð­is­ins er það mjög nálægt því og afar mik­il­vægt er að meta hvort far­leiðir t.d. margæsa liggi þar um,“ segir í umsögn stofn­un­ar­innar. „Sér­kenni­legt og óheppi­legt“ sé að ekki sé stefnt að því að fram­kvæma rat­sjár­mæl­ingar við fugla­rann­sókn­irnar sem eru að mati stofn­un­ar­innar nauð­syn­leg við­bót við sjón­ar­hóls­mæl­ingar til að meta far fugla um svæðið.

Ljóst er að áhrif fram­kvæmd­ar­innar á lands­lag og ásýnd svæð­is­ins verða mikil og í umhverf­is­mat­inu þurfi því að taka til­lit til margra ásýnd­ar­sjón­ar­horna til að fá heild­stæða sýn yfir lands­lags­á­hrifin. Nátt­úru­fræði­stofnun telur ástæðu til að bæta við all­mörgum mynda­töku­stöðum t.d. við­komu­stöðum ferða­fólks eins og á útsýn­is­staðnum ofan við Hval­fjarð­ar­eyri vestan Kjósar, Hvamms­vík og Hvítanes í inn­an­verðum Hval­firði, af Þyr­ils­nesi, af göngu­leið á Leggja­brjóti, af göngu­leiðum í Skorra­dal og af útsýn­is­stöðum á göngu­leiðum upp á Akra­fjall, Esju, Móskarðs­hnúkum og Skarðs­heiði.

Þá bendir Nátt­úru­fræði­stofnun á að í mats­á­ætl­un­inni sé ekki fjallað um mögu­lega plast­mengun frá vind­myllu­spöðum en í nýlegu áliti Skipu­lags­stofn­unar um mats­á­ætlun fyrir áformað vind­orku­ver í Múla í Norð­ur­ár­dal var gerð krafa um að í umhverf­is­mat­inu væri lagt mat á losnun örplasts.

Gera þarf nákvæma fornleifaúttekt

Minja­stofnun telur ekki nóg að styðj­ast við forn­leifa­skrán­ingu af svæð­inu sem gera á í tengslum við nýtt aðal­skipu­lag Hval­fjarð­ar­sveitar líkt og fram­kvæmda­að­ili hugð­ist gera. Stofn­unin bendir á í umsögn sinni að forn­leifa­skrán­ing sem fram fari í tengslum við aðal­skipu­lags­vinnu sé oft óná­kvæm­ari en skrán­ing sem unnin er t.d. vegna deiliskipu­lags þar sem verið er að ákveða end­an­lega nýt­ingu lands. Þá sé mjög ólík­legt að við skrán­ingu forn­leifa vegna aðal­skipu­lags sé lögð áhersla á skrán­ingu svæða fjarri þétt­býli og „öruggt að það svæði sem hér er til umfjöll­unar hefur ekki verið gengið í leit að forn­leifum,“ segir í umsögn Minja­stofn­unar. Því telur stofn­unin að fá þurfi forn­leifa­fræð­ing til að skrá allt það svæði sem áætlað er að fari undir vind­orku­verið sem og svæði sem annað jarð­rask er fyr­ir­hugað vegna fram­kvæmd­anna, s.s. vegna vega­gerðar, end­ur­gerðar vega eða lagn­ingu raf­strengja.

Veð­ur­stofan fer ekki mörgum orðum um mats­á­ætl­un­ina í sinni umsögn en bendir þó skýrt á að þar sem Brekku­kambur sé í yfir 600 metra hæð sé lík­legt að þar sé tölu­verð ísing að vetr­ar­lagi, bæði slyddu­ís­ing og skýja­ís­ing.

Landsnet ítrekar í sinni umsögn mik­il­vægi þess að sam­ráð verði haft við fyr­ir­tækið um tengi­mögu­leika. Brýnt sé að huga sér­stak­lega að því að þeir falli að fram­tíð­ar­hug­myndum Lands­nets um upp­bygg­ingu flutn­ings­kerf­is­ins á svæð­inu. Enn fremur þurfi að kanna sér­stak­lega hvort mögu­legar jarð­strengslagnir frá vind­orku­ver­inu að tengi­punkti við flutn­ings­kerfið hafi áhrif á afhend­ing­ar­gæði raf­orku.

Landsnet bendir á að háspennu­línur fyr­ir­tæk­is­ins myndu þvera vegi sem Zephyr áætlar að flytja vind­myll­urnar um frá höfn­inni á Grund­ar­tanga að fram­kvæmda­svæð­inu. Vinna þurfi áhættu­mat vegna þessa.

Að vera í þögn og vera ekki lengur í þögn

Heil­brigð­is­eft­ir­lit Vest­ur­lands segir margt enn vera óljóst hvað varðar hina fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmd, s.s. hvar vega­gerð að svæð­inu mun liggja. Bendir Þor­steinn Narfason, fram­kvæmda­stjóri stofn­un­ar­innar á að áhrif af bygg­ingu vega þurfi að vera inni­falið í mats­á­ætlun. Það stækki fram­kvæmda­svæðið til muna.

Heil­brigð­is­eft­ir­litið telur að þó svo að unnt yrði að halda hljóð­vist innan við reglu­gerð­ar­mörk s.s. í nálægri byggð þá geti hávaði eða hljóð frá vind­myllum valdið ónæði. Fram kemur að fjar­lægð vind­mylla frá manna­bú­stöðum yrði að lág­marki 500 metrar sem sé ekki endi­lega nægi­leg fjar­lægð til að koma í veg fyrir ónæði. „Þannig getur stöð­ugur niður sem mælist innan við með­al­tals­mörk fyrir heilan sól­ar­hring haft nei­kvæð áhrif á líðan og heilsu fólks. Fyrir íbúa og gesti getur þetta munað því að vera í þögn og vera ekki lengur í þögn,“ skrifar Þor­steinn. Heil­brigð­is­eft­ir­litið telur að það geti verið mikil áskorun að ná sátt um þessi mál í svo lít­illi fjar­lægð frá sum­ar­húsum og lög­býlum.

Óbyggð víð­erni eru svæði sem eru að verða æ sjald­gæfari í heim­inum og má reikna með að virði slíkra svæða muni aukast mikið í fram­tíð­inni. Í umhverf­is­mats­skýrslu ætti að fjalla um verð­mæti víð­erna með til­liti til þess að mann­gera þau, segir í umsögn­inni.

Getur haft áhrif á verð fasteigna

Þor­steinn telur ekki úti­lokað að vind­myllur geti haft nei­kvæð áhrif á virði nálægs lands og fast­eigna vegna sjón­rænna áhrifa og vegna breyt­inga á hljóð­stigi. Kanna ætti í umhverf­is­mati við­horf íbúa á svæð­inu og ferða­þjón­ustu­að­ila til vind­orku­vers á þessum stað.

Að mati Umhverf­is­stofn­unar er ljóst að fram­kvæmdin mun hafa veru­leg áhrif á ásýnd svæð­is­ins og vera ein­kenn­andi í lands­lagi. Vind­myll­urnar yrðu sýni­legar á stóru svæði.

[adspot]

„Á Íslandi er að finna stóran hluta allra óbyggðra víð­erna í Evrópu og því mik­il­vægt að stuðla að verndun þeirra,“ segir í umsögn stofn­un­ar­innar. „Þar sem vind­myll­urnar verða lík­lega sýni­legar og þar af leið­andi ráð­andi í lands­lagi á svæðum sem gætu flokk­ast sem óbyggð víð­erni telur Umhverf­is­stofnun að í umhverf­is­mats­skýrslu ætti að fjalla sér­stak­lega um áhrif fram­kvæmdar á upp­lif­un­ar­gildi víð­erna.“

Umhverf­is­stofnun telur að gera skuli grein fyrir háspennu­línum sem reisa þyrfti vegna vind­orku­vers­ins ef í ljós kæmi að jarð­strengur að næsta tengi­virki henti ekki rekstr­ar­for­sendum Lands­nets. Stofn­unin telur að í stað þess að stað­setja vind­orku­ver á svæðum þar sem inn­viðir eru ekki til staðar og nauð­syn­legt yrði að leggja nýjar háspennu­línur sem séu „ekki sér­lega vin­sæl mann­virki um þessar mundir“ ætti frekar að stað­setja vind­myllur á núver­andi orku­vinnslu­svæðum þar sem allir inn­viðir til flutn­ings raf­orku og vegir eru til staðar og í landi hefur þegar hafi verið raskað.

Reikna með að umhverfismatið takið 2-3 ár

Mats­á­ætlun er eitt fyrsta skrefið sem fram­kvæmda­að­ilar taka í átt að mati á umhverf­is­á­hrifum. Það næsta felst í því að yfir­fara inn­komnar athuga­semdir, bæði frá ein­stak­lingum og stofn­unum og svara þeim og senda Skipu­lags­stofnun sem mun svo gefa álit sitt á mats­á­ætl­un­inni.

Þá hefst síð­asta skrefið, að skila umhverf­is­mats­skýrslu sem allir geta einnig skilað athuga­semdum við. Ferlinu lýkur svo með áliti Skipu­lags­stofn­unar.

Í mats­á­ætl­un­inni, sem verk­fræði­stofan EFLA vann fyrir Zephyr Iceland, segir óvíst hvenær fram­kvæmdir við upp­setn­ingu vind­orku­garðs­ins gætu haf­ist. Fram kemur að umhverf­is­mats­ferlið geti tekið 2-3 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vindorkuver

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár