Áformin einkennist af „einhvers konar firringu“

Zephyr Iceland, sem áformar vind­orku­ver í Hval­firði, „forð­ast að snerta á kjarna máls­ins“ í mats­á­ætlun á fram­kvæmd­inni. Kjarninn er sá að mati Skúla Mogensen, eig­anda sjó­bað­anna í Hvamms­vík, að áformin ein­kenn­ast af „ein­hvers konar firr­ingu“.

Skúli Mogensen hefur byggt upp mikla ferðaþjónustu í Hvammsvík i Hvalfirði.
Skúli Mogensen hefur byggt upp mikla ferða­þjón­ustu í Hvamms­vík i Hval­firði. Mynd: Samsett mynd

Ef vind­orku­ver Zephyr Iceland verður reist á Brekku­kambi í Hval­fjarð­ar­sveit mun það gjör­breyta útsýni gesta sjó­baða Skúla Mogensen í Hvamms­vík. Hann er væg­ast sagt ósáttur við áformin. Í umsögn sem lög­maður sendir fyrir hans hönd segir að mats­á­ætlun Zephyr um fram­kvæmd­ina sé haldin „stór­kost­legum ann­mörkum“. Í henni sé farið vítt og breitt yfir ýmis atriði sem varða áformað vind­orku­ver en „forð­ast að snerta á kjarna máls­ins“. Hann er sá að mati Skúla að áformin ein­kenn­ist af „ein­hvers konar firr­ingu“.

Þeta megi ráða t.d. af því að ætl­unin sé að byggja orku­verið á 647 metra háu fjalli, að hver vind­mylla verði svo um 250 metrar á hæð sem sam­svarar 3,3 Hall­gríms­kirkju­turnum. Þær munu því teygja sig í um 900 metra hæð yfir sjáv­ar­máli. „Ætlunin er að gera þetta rétt hjá höf­uð­borg­ar­svæð­inu og í námunda við helstu úti­vist­ar­svæði borg­ar­búa og öll þau helstu svæði sem ferða­menn leita helst til.“

[adspot]

Umhverf­is­mat Zephyr Iceland á vind­orku­veri í landi bæj­ar­ins Brekku í Hval­fjarð­ar­sveit hófst í sumar með kynn­ingu á mats­á­ætlun sem aug­lýst var á vef Skipu­lags­stofn­unar. Verið myndi telja 8-12 vind­myllur, verða 50 MW að afli, og vegna hæðar sinnar yfir sjáv­ar­máli blasa við víða að – allt frá sveit­inni sem það yrði byggt í upp á Lang­jökul og Skjald­breið.

[links]Tugir íbúa og sum­ar­húsa­eig­enda í nágrenn­inu sendu inn athuga­semdir um mats­á­ætl­un­ina og gagn­rýna þeir allir fyr­ir­ætl­anir Zephyr harð­lega líkt og Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um. Verið er aðeins eitt af mörgum sem fyr­ir­tækið áformar á Íslandi. Zephyr Iceland er í meiri­hluta eigu norska fyr­ir­tæk­is­ins Zephyr AS.

Lögmaður Skúla segir hann hafa fjár­fest veru­lega í vist­vænni ferða­þjón­ustu í Hvamms­vík og að hann yrði „óþyrmi­lega fyrir barð­inu á því ef þessi áform myndu raun­ger­ast“. Tilvist vers­ins myndi orka sem „stór­kost­legur hem­ill“ á fjár­fest­ingu í ferða­þjón­ustu í Hval­firði og víðar enda myndi sjást til vind­myll­anna frá Húsa­felli, lengst innan úr Norð­ur­ár­dal, frá Langjökli, Þór­isjökli, frá Skjald­breið, frá Gjá­stykki við Þing­velli og ofan af Mos­fells­heiði.

„Í þessu myndi fel­ast ómældur skaði, langt umfram ávinn­ing af fram­kvæmdum, sem fram­kvæmda­að­ilar virð­ast ekki leggja raun­hæft mat á með nokkrum hætti,“ segir í umsögn­inni.

Þá séu ótalin ýmis önnur umhverf­is­á­hrif sem hljót­ast myndu af vind­orku­ver­inu. Þekkt sé að vist­kerfi og víð­erni lands­ins eru mun við­kvæm­ari fyrir hvers kyns raski eftir því sem leitað er hærra yfir sjáv­ar­mál. „Sætir sam­kvæmt þessu furðu að engir aðrir val­kostir séu teknir til skoð­unar en sá sem kynntur er og hann bor­inn saman við svo­nefndan „núll­kost“.“ Fjöl­margir aðrir val­kostir hljóti að vera til staðar en að byggja vind­orku­ver á toppi Brekku­kambs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár