Vindmyllur við Lagarfoss þurfa í umhverfismat

Umhverf­is­stofnun og Nátt­úru­fræði­stofnun voru ekki sam­mála um nauð­syn þess að 160 metra háar vind­myllur við Lag­ar­foss­virkjun færu í umhverf­is­mat. Orku­salan vill öðl­ast reynslu á rekstri vind­mylla.

Ásýnd vindmyllanna frá bænum Ekru, 1,6 kílómetra norðan við Lagarfoss.
Ásýnd vind­myll­anna frá bænum Ekru, 1,6 kíló­metra norðan við Lag­ar­foss. Mynd: Úr greinargerð Orkusölunnar.

Skipu­lags­stofnun tekur undir með Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands og hefur ákveðið að 9,9 MW vind­orku­ver Orku­söl­unnar sem áformað er við Lag­ar­foss í Múla­þingi skuli fara í umhverf­is­mat enda sé fram­kvæmdin lík­leg til að hafa umtals­verð umhverf­is­á­hrif. Stærð hins áform­aða vers, sem myndi telja tvær 160 metra háar vind­myllur, gerir það að verkum að fram­kvæmdin fór ekki sjálf­krafa í umhverf­is­mat sam­kvæmt lögum. Til þess hefði verið þurft að vera 1 pró­sent meira að afli eða 10 MW. Áformin eru engu að síður til­kynn­ing­ar­skyld til Skipu­lags­stofn­unar.

[adspot]

Við mat á því hvort til­kynn­ing­ar­skyld fram­kvæmd skuli háð umhverf­is­mati skal taka mið af eðli fram­kvæmdar, svo sem stærð og umfangi hennar og sam­legðar með öðrum fram­kvæmdum. Einnig skal taka mið af stað­setn­ingu fram­kvæmdar og hversu við­kvæm þau svæði eru sem lík­legt er að fram­kvæmd hafi áhrif á. Einnig ber að líta til álags­þols nátt­úr­unnar, svo sem með til­liti til vot­lend­is­svæða, lands­lags­heilda og kjör­lendis dýra.

[links]Und­an­farin miss­eri hefur Orku­salan, sem er alfarið í eigu opin­bera hluta­fé­lags­ins Rarik, kannað mögu­leik­ann á nýt­ingu vind­orku innan Fljóts­dals­hér­aðs. Fyr­ir­tækið er langt í frá það eina sem er í svip­uðum pæl­ingum því tugir vind­orku­vera hafa verið riss­aðir upp hér og hvar á land­inu af nokkrum fjölda fyr­ir­tækja.

„Svæði hafa verið skoðuð og kort­lögð með til­liti til margra ólíkra áhrifa­þátta og hefur Orku­salan nú hug á að setja upp tvær vind­myllur við Lag­ar­foss­virkjun sem fram­leiða allt að 9,9 MW,“ sagði í grein­ar­gerð fyr­ir­tæk­is­ins til Skipu­lags­stofn­unar í haust. Markmið fram­kvæmd­ar­innar væri að öðl­ast reynslu og byggja upp þekk­ingu á rekstri vind­mylla.

Myll­urnar yrðu reistar á athafna­svæði Orku­söl­unnar við Lag­ar­foss­virkjun í Lag­ar­fljóti í um 2-300 metra fjar­lægð austan við Lag­ar­foss­veg. Und­ir­stöður mastr­anna yrðu lík­lega steyptar og allt að 25 metrar í þver­mál. Vinnuplan við hvora vind­myllu yrði allt að 3.500 fer­metrar.

Að sögn fram­kvæmd­ar­að­ila er vind­orkan talin henta vel með vatns­afls­virkj­unum og mik­ill kostur sé að hafa vatns­aflið til að vinna með vind­orkunni. Stutt sé í aðveitu­stöð svo að teng­ingar við dreifi­kerfið eru auð­veldar í fram­kvæmd fyrir Orku­söl­una. Jákvæð sam­legð­ar­á­hrif séu með Lag­ar­foss­stöð og fyr­ir­hug­aðri vind­orku­upp­bygg­ingu.

Vind­myll­unum verður að öllum lík­indum landað á Reyð­ar­firði og þaðan fluttar land­leið­ina að Lag­ar­fossi.

[adspot]

„Nú er það svo,“ sagði í umsögn Orku­stofn­unar um grein­ar­gerð Orku­söl­unnar, að vind­orku­ver, 10 MW eða stærri, eru alltaf háð umhverf­is­mati, ásamt því að falla undir lög um ramma­á­ætlun. Veltir stofn­unin því upp hvort fram­kvæmda­að­ili hafi metið kosti og galla minni eða auk­innar fram­leiðslu­getu virkj­un­ar­kost­ar­ins. Telur hún nauð­syn­legt að fram­kvæmda­að­ilar rök­styðji betur hvernig og hvers vegna nið­ur­staðan hafi verið 9,9 MW virkjun.

Fyr­ir­huguð fram­kvæmd er innan svæðis sem er skil­greint sem mik­il­vægt fugla­svæði og hefur verið til­nefnt á fram­kvæmda­á­ætlun nátt­úru­minja­skrár vegna vist­gerða á landi, fugla og sela. Þá er það einnig innan svæðis sem þegar er á nátt­úru­minja­skrá.

Víð­áttu­mikla blá, en flóar eru gjarnan nefndir blár á Aust­ur­landi, er að finna í grennd við Lag­ar­foss­virkjun. Blárnar á þessum slóðum eru flokk­aðar sem tjarn­ar­star­ar­flóa­vist, vernd­ar­gildi þeirra er mjög hátt og er vist­gerðin á lista Bern­ar­samn­ings­ins yfir vist­gerðir sem þarfn­ast verndar. Nátt­úru­fræði­stofnun bendir á í umsögn sinni að önnur vind­myllan myndi að lík­indum standa í vot­lendi og því raska syðsta hluta tjarn­ar­star­ar­blá­ar­innar. „Þrátt fyrir að vind­myllu­stæðin tvö séu í grennd við Lag­ar­foss­virkjun og landi hafi verið raskað þar í grennd er lík­legt að stæðin muni raska heil­legum vist­kerfum með mjög hátt vernd­ar­gildi og umtals­verðu vot­lendi.“

Vind­myllur geta haft veru­lega nei­kvæð áhrif á fugla­líf og telur Nátt­úru­fræði­stofnun „afar brýnt“ að vanda stað­ar­val vel með til­liti til þess. Í nið­ur­stöðu grein­ar­gerðar Orku­söl­unnar eru áhrif á fugla­líf metin óveru­leg og er þar sér­stak­lega horft til nið­ur­staðna mæl­inga við Búr­fellslund. Hins vegar minnir Nátt­úru­fræði­stofnun á, ein­kenn­ist það svæði af teg­unda­fæð og lágum þétt­leika varp­fugla. Úthérað sé aftur á móti á lág­lendi og ein­kenn­ist fugla­líf þar af mik­illi teg­unda­fjöl­breytni og háum varp­þétt­leika. Þar má finna mik­inn fjölda vatna­fugla sem eru meðal þeirra fugla­hópa sem sér­stak­lega er hætt við áflugi. Má þar t.d. nefna lóma og grá­gæsir. „Þá er svæðið mik­il­vægt varp­svæði fyrir skúm, sem er á válista sem teg­und í bráðri hættu, sem og kjóa, sem einnig er á válista.“ Að auki er þétt­leiki vað­fugla á svæð­inu hár. „Það er því mat Nátt­úru­fræði­stofn­unar að ekki er hægt að yfir­færa nið­ur­stöður mæl­inga við Búr­fellslund yfir á Úthérað þar sem aðstæður eru gjör­ó­líkar.“

Náttúruperlur í nágrenninu

Úthérað, er að því er fram kemur í umsögn Nátt­úru­fræði­stofn­unar, eitt af stærstu, til­tölu­lega lítið snortnu svæðum á lág­lendi Íslands. Nátt­úruperlan Stórurð í Dyr­fjöllum, sem nú er frið­lýst svæði, er stein­snar frá. Myll­urnar yrðu vel sýni­legar öllum þeim sem fara austur í Borg­ar­fjörð eða í Stórurð. Tölu­verðar líkur séu á því að vind­orku­ver á Úthéraði hefði nei­kvæð áhrif á upp­lifun ferða­manna.

Múlaþing tekur í sama streng í sinni umsögn og bendir á að ekk­ert sé fjallað um sýni­leika vind­myll­anna frá vin­sælum útsýn­is­stað í Vatns­skarði þar sem víð­sýnt sé yfir Hér­aðs­flóa og inn til dala. Þaðan sé jafn­framt upp­haf göngu­leiðar upp í Stórurð og mik­il­vægt sé að greina hvort áhrifa gæti á þessa staði.

Í svari Orku­söl­unnar við þessum athuga­semdir segir að allir þessir staðir séu tölu­vert mikið ofar en hæsti punktur vind­myll­anna og því myndu þær ekki bera við him­inn heldur yrði horft niður á þær. Í 20-25 kíló­metra fjar­lægð séu vind­myll­urnar ein­ungis sýni­legar í góðu skyggni og alls ekki áber­andi. Vegurinn til Borg­ar­fjarðar eystri og upp í Stórurð sé í hvarfi og vind­myll­urnar sjá­ist ekki allan tím­ann sem veg­ur­inn er far­inn. Fram­kvæmda­að­ili geti ekki tekið undir að vind­myll­urnar verði vel sýni­legar ferða­mönnum á þess­ari leið og á þessum stöðum.

[adspot]

„Hér er um að ræða umtals­verða fram­kvæmd á við­kvæmu svæði sem er gíf­ur­lega verð­mætt af nátt­úru­minjum,“ segir í nið­ur­lagi umsagnar Nátt­úru­fræði­stofn­unar. „Það er afdrátt­ar­laus skoðun Nátt­úru­fræði­stofn­unar Íslands að fyllstu var­úðar eigi að vera gætt og að fram­kvæmdin skuli því fara í umhverf­is­mat.“

Færri ver á afmörkuðum stöðum

Umhverf­is­stofnun hefur í umsögnum við sam­bæri­leg mann­virki talið betra að stað­setja vind­orku­ver á núver­andi orku­vinnslu­svæðum þannig að inn­viðir sem þegar eru til staðar nýt­ist. Æskilegt sé að setja sem flestar vind­myllur á þau svæði í stað þess að dreifa vind­orku­verum um allt land. „Umhverf­is­stofnun telur að forð­ast eigi að reisa vind­myllur á svæðum þar sem engin svo stór mann­virki eru til staðar, ófull­komnir inn­viðir og í sumum til­fellum þar sem vind­myllu­garðar munu skerða víð­erni.“

Þegar um svo stór mann­virki og vind­myllur sé að ræða sé stað­setn­ing afger­andi hvað varðar umhverf­is­á­hrif og þá sér­stak­lega sjón­rænu áhrifin og áhrif á lands­lag.

Umhverf­is­stofnun taldi hins vegar ekki ástæðu til að ætla að mat á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmd­ar­innar við Lag­ar­foss myndi leiða í ljós upp­lýs­ingar sem í veiga­miklum atriðum myndu breyta nið­ur­stöðu grein­ar­gerðar Orku­söl­unnar „og að ekki sé ástæða til að ætla að umrædd fram­kvæmd muni haf umtals­verð umhverf­is­á­hrif í för með sér“.

Skipu­lags­stofnun bendir í ákvörðun sinni um mats­skyldu á að lands­lag í kringum fram­kvæmda­svæðið ein­kenn­ist af löngum sjón­lengdum og mik­illi víð­sýni. Stórar vind­myllur séu því lík­legar til að verða ráð­andi þáttur í lands­lagi svæð­is­ins. Með til­liti til stað­setn­ingar, þ.á.m. nálægra vernd­ar­svæða, telur Skipu­lags­stofnun lík­legt að áhrif fram­kvæmd­ar­innar á lands­lag verði mikil.

Sjónræn áhrif fram­kvæmd­anna munu ná yfir stórt svæði og eru lík­leg til að fela í sér breytta ásýnd frá bæjum, frí­stunda­húsum, úti­vist­ar­svæðum og ferða­leiðum. Að mati Skipu­lags­stofn­unar eru áhrif fram­kvæmd­ar­innar á ásýnd því einnig lík­leg til að verða mikil. Mögu­leikar á að draga úr áhrifum á lands­lag og ásýnd eru afar tak­mark­aðir.

Hvað fugla­líf varðar segir stofn­unin að með hlið­sjón af því að fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir fela í sér tak­markað rask á landi megi gera ráð fyrir að bein áhrif vegna rösk­unar búsvæða verði tak­mörkuð. Aftur á móti sé óvissa um áhrif vegna árekstra fugla og um afleidd áhrif þar sem ekki liggi fyrir upp­lýs­ingar um hvernig fuglar nýta svæðið. Með hlið­sjón af stað­setn­ingu kunni þau áhrif þó að verða tals­verð.

„Á grund­velli fyr­ir­liggj­andi gagna er það nið­ur­staða Skipu­lags­stofn­unar að fyr­ir­huguð fram­kvæmd sé lík­leg til að hafa umtals­verð umhverf­is­á­hrif,“ segir í nið­ur­stöðu stofn­un­ar­innar. „Því skal fram­kvæmdin háð mati á umhverf­is­á­hrifum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vindorkuver

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár