Zephyr frestar kynningarfundi á vindorkuveri í Hvalfirði

Ekkert verður af kynn­ing­ar­fundi á áform­uðu vind­orku­veri í Hval­fjarð­ar­sveit í kvöld. Zephyr segir frestun skýr­ast af of stuttum fyr­ir­vara en sam­tökin Mót­vindur-Ísland segja nær að bíða með kynn­ingar þar til rammi stjórn­valda liggi fyrir.

Brekkukambur er hæsta fjall Hvalfjarðarstrandarinnar. Á toppi þess hyggst Zephyr Iceland reisa 250 metra háar vindmyllur.
Brekku­kambur er hæsta fjall Hval­fjarð­ar­strand­ar­innar. Á toppi þess hyggst Zephyr Iceland reisa 250 metra háar vind­myllur. Mynd: Google Maps

„Vegna ábend­inga sem fram hafa komið um stuttan fyr­ir­vara á kynn­ing­ar­fund­inum er fund­inum frestað. Vind­orku­fyr­ir­tækið Zephyr Iceland og verk­fræði­stofan EFLA munu aug­lýsa nýjan fund­ar­tíma með góðum fyr­ir­vara."

Þannig hljóðar til­kynn­ing frá for­svars­mönnum Zephyr sem ætl­uðu sér í kvöld, mánu­dag­inn 9. jan­úar, að halda kynn­ing­ar­fund um áformað vind­orku­ver sitt á Brekku­kambi í Hval­fjarð­ar­sveit. Fund­ur­inn átti að fara fram í Heið­ar­skóla og voru „íbúar og hags­muna­að­ilar hvattir til að mæta og kynna sér fram­kvæmd­ina.“

[adspot]

Fram­kvæmdin fyr­ir­hug­aða, 50 MW vind­orku­ver í landi bæj­ar­ins Brekku, hefur verið harð­lega gagn­rýnd af nær­sam­fé­lag­inu. Líkt og Kjarninn hefur fjallað um ótt­ast íbúar í nágranni vers­ins hávaða, að vist­kerfum og þar með fugla­lífi verði stefnt í hættu, og sjón­mengun. Um hana er vart hægt að deila, reistar yrðu 8-12 vind­myllur efst á Brekku­kambi, hæsta fjalli Hval­fjarð­ar­strand­ar­innar, og myndu þær blasa við úr öllum áttum.

[links]Zephyr Iceland lagði fram mats­á­ætlun fyrir vind­orku­verið í fyrra og gerðu margir umsagn­ar­að­ilar, m.a. stofn­anir, fjöl­margar athuga­semdir við fram­kvæmd­ina, ekki síst stað­ar­valið. Heil­brigð­is­eft­ir­lit Vest­ur­lands sagð­ist m.a. telja það „mikla áskorun“ að ná sátt um bygg­ingu vind­orku­vers í svo lít­illi fjar­lægð frá bæjum og frí­stunda­byggðum. Og Umhverf­is­stofnun taldi að frekar ætti að stað­setja vind­myllur, sem í þessu til­viki yrðu um 250 metrar á hæð, á núver­andi orku­vinnslu­svæðum. Að mati Nátt­úru­fræði­stofn­unar er mjög vanda­samt að skipu­leggja svo stórt inn­grip í lands­lag á svæði sem er þekkt fyrir fjöl­breytt og fal­legt lands­lag líkt og raunin er um Hval­fjarð­ar­sveit.

Zephyr Iceland segir í til­kynn­ingu sinni að frestun fund­ar­ins sé til­komin vegna ábend­inga um að til hans hefði verið boðað með stuttum fyr­ir­vara. En ábend­ing­arnar eru þó alls ekki bundnar við það.

Hin nýstofn­uðu sam­tök, Mót­vindur – Ísland, sendu Zephyr og Eflu, verk­fræði­stof­unni sem vinnur að umhverf­is­mati vind­orku­vers­ins, opið erindi eftir að fund­ur­inn var aug­lýstur.

„Það vekur furðu að nær­sam­fé­lagið er boðað á fund með orku­fyr­ir­tæk­inu og keyptum ráð­gjöfum þess um upp­bygg­ingu orku­vers og umhverf­is­á­hrif á sama tíma og stjórn­völd í land­inu eru að skoða og móta stefnu í vind­orku­málum á lands­vísu og ekk­ert liggur fyrir um að leyfi­legt verði að reisa slík orku­ver um allt land,“ sagði í erind­inu. Er þar vísað til starfs­hóps sem umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra skip­aði síð­asta sumar sem hefur það hlut­verk að gera til­lögur að stefnu stjórn­valda er kemur að nýt­ingu vinds­ins. Hópurinn á að skila til­lögum sínum um næstu mán­aða­mót.

„Það hlýtur að telj­ast ótíma­bært nema að hags­muna­að­il­arnir telji sig fyr­ir­fram komna með virkj­ana­leyfi og þá um leið að vinna starfs­hóps og Alþingis í kjöl­farið sé í raun forms­at­riði,“ sagði í erindi Mótvinds.

Í því voru að auki gerðar athuga­semdir við fund­ar­boðið, m.a. að til fund­ar­ins væri boðað með skömmum fyr­ir­vara, í skamm­degi og ófærð, í skóla­húsi í Hval­fjarð­ar­sveit.

„Nú er það svo að land­eig­endur, eig­endur fast­eigna og fyr­ir­tækja­eig­endur, á því stóra svæði sem raf­orku­ver ykkar hefði gríð­ar­leg áhrif á, eru margir staddir víðs­fjarri fund­ar­staðnum og þyrftu mun lengri aðdrag­anda og und­ir­bún­ing fyrir slíkan fund ef hann ætti að vera gagn­legur fyrir alla aðila.“

[adspot]

For­svars­menn Mótvinds-Ísland bentu einnig á að „hefðu menn raun­veru­legan áhuga á fjölda­mæt­ingu á slíkan fund væri hann að sjálf­sögðu boð­aður á nútíma­lega vísu með fjar­fund­ar­bún­aði svo að sem allra flestir gætu tekið þátt“.

Þá yrði slíkur fjar­fundur „að sjálf­sögðu“ að vera gagn­virkur þannig að nær­sam­fé­lagið „væri ekki boðað á umhverf­is­nám­skeið hjá fyr­ir­tækjum ykkar heldur í gagn­kvæmt sam­tal þar sem allar raddir myndu heyr­ast“.

Hvatti Mót­vindur for­svars­menn hins áform­aða vind­orku­vers til að boða til fund­ar­ins með þessum fyrr­greinda hætti en taldi þó eðli­leg­ast að bíða með kynn­ing­ar­fund­inn þar til nið­ur­stöður stjórn­valda um nýt­ingu vinds hér á landi liggja fyrir.

Undir erindi Mótvinds-Ísland skrif­uðu:

Thelma Harð­ar­dóttir

Arn­finnur Jónasson

Steinunn Sig­ur­björns­dóttir

Denni Karlsson

Kristín Helga Gunn­ars­dóttir

Andrés Skúlason

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvalfjarðarsveit

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár