Vindmyllurnar munu „gína yfir umhverfi mínu eins og hrammur“

1-8 vind­myllur myndu sjást frá Þing­völlum. 8 frá foss­inum Glym og jafn­margar frá hring­veg­inum um Hval­fjörð­inn. Enda yrðu þær jafn­vel 247 metrar á hæð. Og hátt upp í fjalli.

Steinunn á grunni sumarbústaðarins sem hún er að byggja í Hvalfjarðarsveitinni.
Steinunn á grunni sum­ar­bú­stað­ar­ins sem hún er að byggja í Hval­fjarð­ar­sveit­inni. Mynd: Úr einkasafni

Eftir mikla leit að stað fyrir sum­ar­hús valdi Steinunn Guð­munds­dóttir Hval­fjarða­sveit. Ástæðan var ein­föld: Fegurð, kyrrð, fugla­líf, friðun og óend­an­legir mögu­leikar á fal­legum göngu­leiðum ekki síst að hæsta fossi lands­ins, Glym í botni Hval­fjarðar. „Ég fjár­festi í góðri trú í þess­ari nátt­úruperlu og kyrrð fyrir tugi millj­óna,“ segir hún. En nú er komið babb í bát­inn.

[links]Fyr­ir­tækið Zephyr Iceland ehf. áformar að reisa allt að 50 MW vind­orku­ver að bænum Brekku í Hval­firði og það mun að mati Stein­unnar spilla þeirri para­dís sem hún hafði séð fyrir sér með kaupum á leigu­lóð í landi Kala­staða í Hval­fjarð­ar­sveit fyrir réttu ári síðan.

„Ég verð að mót­mæla því harð­lega að verið sé að verð­fella allt mitt með vind­orku­garði sem mun gína yfir umhverfi mínu eins og hrammur og gera að engu þá nátt­úruperlu og fugla­líf sem er ein­stakt á þessu svæði,“ skrifar Steinunn í ítar­legri umsögn um mats­skýrslu Zephyr, „með hávaða­mengun, ljós­mengun, sjón­mengun og öllum þeim öðrum ókostum sem þessu fylgir.“

[adspot]

Zephyr vill reisa 8-12 vind­myllur á fjall­inu Brekku­kambi sem er í um 647 metra hæð yfir sjáv­ar­máli. Hver mylla gæti verið um 247 metrar á hæð en ekki hefur verið ákveðið af hvaða teg­und þær yrðu. Til sam­an­burðar er Hall­gríms­kirkju­turn 74,5 m og Eiffel-turn­inn í París um 300, 324 ef spíran er tekin með.

Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands skil­greinir Hval­fjörð sem mik­il­vægt fugla­svæði og er fjörð­ur­inn einnig á B-hluta nátt­úru­minja­skrár sem og foss­inn Glymur sem er í um 10 kíló­metra fjar­lægð frá virkj­ana­svæð­inu. En „frum­at­hug­anir á svæð­inu benda til þess að vind­að­stæður á fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmda­svæði séu góðar fyrir vind­orku­nýt­ingu,“ segir í mats­á­ætlun Zephyr. „Stað­setn­ing fyr­ir­hug­aðs vind­orku­garðs á Brekku­kambi þykir góð vegna nálægðar við helstu raf­orku­not­endur lands­ins (höf­uð­borg­ar­svæðið), háspennu­lín­urnar Sult­ar­tanga­línu 3 og Brenni­mels­línu 1, tengi­virki og höfn við Grund­ar­tanga.”

Steinunn segir ljóst að með 247 metra háum vind­myllum með blikk­andi ljósum til varnar flug­um­ferð sé „hin dimma íslenska nátt­úru­feg­urð með norð­ur­ljósum og til­heyr­andi horfin úr nátt­úr­unni á stóru svæði“.

Mikil upp­bygg­ing hefur verið í ferða­þjón­ustu í Hval­fjarð­ar­sveit og fer sum­ar­húsa­byggð þar ört stækk­andi. „Svæðið umhverfis fram­kvæmda­svæðið ein­kenn­ist af land­bún­aði, sum­ar­húsa­byggð og úti­vist­ar­mögu­leikum,“ segir í skýrslu Zephyr. Sum­ar­húsa­byggðir eru m.a. í Svínadal við Eyr­ar­vatn og Glamma­staða­vatn og við Bjart­eyj­ar­sand og Brekku við suð­ur­hlíð Brekku­kambs.

Næstu mann­virki við fram­kvæmda­svæðið eru suð­vestan þess, í sum­ar­húsa­byggð við Forna­stekk. Ysti sum­ar­bú­stað­ur­inn er í um 2,01-2,18 km fjar­lægð frá ystu vind­myll­unum.

Steinunn bendir á að fjöldi þekktra staða og göngu­leiða séu á þessum slóðum, staðir sem ferða­menn og úti­vi­star­fólk sæki sífellt meira í. „Lega vind­myll­anna er slík að það er ekki bara Hval­fjörður og nærum­hverfi sem verða fyrir sjón­mengun heldur er sjálfur þjóð­garður okkar, Þing­vellir, í valnum því reiknað er með að þaðan gætu sést átta vind­myllur af þeim fimmtán sem fyr­ir­hugað er að reisa og sjást allt að átta vind­myllur frá þjóð­veg­inum á hinum ýmsu stöðum, sem sagt alls staðar frá.“

Hún gagn­rýnir fjöl­margt í skýrslu Zephyr sem unnin er af verk­fræði­stof­unni Eflu. Hún spyr t.d. hvernig eigi að vernda fugla á þessu mik­il­væga búsvæði þeirra og standa við þá alþjóð­legu samn­inga sem Ísland hefur und­ir­ritað. Þá gerir hún athuga­semdir við áform­aðar rann­sóknir á hljóð­mengun og spyr í hverju mót­væg­is­að­gerðir vegna rösk­unar á við­kvæmum svæðum eigi að fel­ast.

Bæir sem ekki eru til?

„Mér þykir rýra veru­lega gildi skýrsl­unnar þegar ekki er einu sinni hægt að fara rétt með bæj­ar­nöfn en það er talað um Kata­staði og Kata­staða­kot í skýrslu Eflu sem eru ekki á þessu svæði,“ bendir Steinunn svo á. „Hins vegar eru bæirnir Kala­staðir og Kala­staða­kot í Hval­fjarð­ar­sveit. Ykkur til fróð­leiks þá er Kata­staða­kot ekki til mér vit­an­lega og Kata­staðir eru á Norð­aust­ur­landi en það er kannski verið að áforma vind­orku­garð þar líka?“

Allir geta kynnt sér mats­á­ætlun Zephyr um vind­orku­ver í Hval­firði hér. Frestur til að skila umsögnum, sem verða að vera skrif­legar, er til og með 20. júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vindorkuver

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár