Áforma að reisa 70-100 vindmyllur í grennd við Stuðlagil

Ef fyr­ir­ætl­anir Zephyr Iceland ganga eftir munu 70-100 vind­myllur rísa á Fljóts­dals­heiði, í um 4-5 kíló­metra fjar­lægð frá Stuðla­gili. Svæðið er í dag óbyggt en Zephyr segir það til­valið undir vind­orku­ver enda vinda­far ákjós­an­legt og stutt í háspennu­línur.

Í orkuverinu yrðu á bilinu 70-100 vindmyllur, sem eru 200 metra háar aflstöðvar hver fyrir sig. Myndin er frá vindorkuveri í Svíþjóð
Í orku­ver­inu yrðu á bil­inu 70-100 vind­myllur, sem eru 200 metra háar afl­stöðvar hver fyrir sig. Myndin er frá vind­orku­veri í Svíþjóð Mynd: Statskraft.no

Zephyr Iceland fyr­ir­hugar að reisa vind­orku­ver í landi jarð­ar­innar Klaust­ursels á Fljóts­dals­heiði. Verið yrði innan Múla­þings, á svæði sem nú er óbyggt. Virkj­un­ar­kost­inn kallar fyr­ir­tækið Klaust­ursels­virkjun og áformar að hún verði allt að 500 MW að afli. Hver vind­mylla, sem yrði um 200 metrar á hæð, yrði 5-7 MW og því þyrfti 70-100 slíkar.

Í mats­á­ætlun fram­kvæmd­ar­innar, sem nú hefur verið lagt fram til kynn­ingar, kemur fram að áætlað sé að byggja virkj­un­ina í áföngum. Fyrsti áfangi yrði á bil­inu 50-300 MW og vind­myll­urnar því 10-60 tals­ins. Síðar er gert ráð fyrir að stækka virkj­un­ina í allt að 500 MW. „Stærð áfanga er þó háð eft­ir­spurn eftir raf­orku þegar nær dregur fram­kvæmdum,“ segir í mats­á­ætl­un­inni sem verk­fræði­stofan Mannvit vinnur fyrir Zephyr.

[adspot]

Þetta er umtals­vert stærri virkjun en upp­haf­lega var kynnt. Kjarninn fjall­aði um frum­at­hugun vegna hennar fyrr á þessu ári og þá var hug­myndin sú að verið yrði 250 MW og vind­myll­urnar 40-50.

Áætlað er að meg­in­fram­kvæmd­irnar vegna vega­gerðar, raf­orku­flutn­ings og upp­setn­ingar á vind­myllum taki um tvö sumur. Þessi fram­kvæmda­tími miðar við stærð virkj­unar allt að 350 MW. Ef strax yrði farið í 500 MW má reikna með að eitt sumar bæt­ist við fram­kvæmda­tím­ann.

Í meirihlutaeigu Norðmanna

Zephyr Iceland ehf. var stofnað árið 2018 í þeim til­gangi að þróa vind­orku­ver hér á landi. Það er dótt­ur­fyr­ir­tæki norska vind­orku­fyr­ir­tæk­is­ins Zephyr AS auk þess sem Hreyfi­afl ehf., sem er í eigu Ketils Sig­ur­jóns­sonar, er hlut­hafi. Hann er jafn­framt fram­kvæmda­stjóri Zephyr Iceland.

Vind­myllur, sem margir eru stærðar þeirra vegna farnir að kalla vindraf­stöðvar eða vind­túrbínur, hafa á síð­ustu árum hækkað enda eru þær orðnar afl­meiri. Í mats­skýrsl­unni er talað um að þessi þróun muni halda áfram og að því sé mögu­legt að færri en stærri vind­myllur verði reistar á Fljóts­dals­heiði sem skili jafn­miklu afli og fleiri 200 metra háar túrbínur.

Fljóts­dals­heiði er að sögn Zephyr til­val­inn staður fyrir vind­orku­ver. Þar eru, að því er segir í mats­á­ætl­un­inni, hag­stæð veð­ur­skil­yrði, til­tölu­lega ein­falt er að tengj­ast raf­orku­flutn­ings­kerfi Lands­nets og góðir inn­viðir til staðar vegna und­ir­bún­ings og aðflutn­inga. Engin byggð er á svæð­inu og nálæg­ustu bæir eru Klaust­ur­sel, Hákon­ar­staðir og Grund. Með „góðum innviðum“ er m.a. átt við línuslóða vegna lagn­ingar Kröflu­línu 1 og 3 um heið­ina. Í áætl­un­inni segir að svæðið „ein­kenn­ist nú þegar af orku­mann­virkjum“ í formi háspennu­lína (Kröflu­línur 2 og 3). Þá sé það ekki langt frá stærstu virkjun í Íslandi, Kára­hnjúka­virkjun.

[links]Fram­kvæmda­að­ili hefur metið vinda­far út frá sögu­legum gögnum frá næstu veð­ur­stöðvum Veð­ur­stof­unnar. Þá hafa vind­að­stæður einnig verið metnar út frá hug­bún­aði sem Zephyr nýtir. „Þó ítar­legri mæl­ingar á vinda­fari séu nauð­syn­legur und­ir­bún­ingur svona verk­efna, gefa fyr­ir­liggj­andi gögn skýrar vís­bend­ingar um vind­inn á svæð­inu,“ segir í mats­á­ætl­un­inni. Til að stað­festa áætl­aðan vind verða vind­að­stæður mældar í um 80 metra hæð í minnst 12 mán­uði.

Ekki stefnt að ratsjármælingum

Í mats­á­ætl­un­inni segir að sam­kvæmt flokkun Nátt­úru­fræði­stofn­unar sé fyr­ir­hugað fram­kvæmda­svæði utan svæða sem talin eru mik­il­væg fugla­svæði.

Zephyr segir að vinna þurfi sér­staka fugla­rann­sókn. Þar yrði einkum um að ræða rann­sókn á varp­fuglum innan og í nágrenni við fram­kvæmda­svæðið og athugun á flugi far­fugla um svæðið. „Þó að margar rann­sóknir sýni fram á aukin afföll fugla vegna vind­mylla, sýna þær flestar fram á óveru­leg áhrif eða að ekk­ert bendi til nei­kvæðra áhrifa á fugla­stofna,“ segir Zephyr. Fyr­ir­hugað fram­kvæmda­svæði er ekki flokkað sem mik­il­vægt fugla­svæði. Ekki er gert ráð fyrir að beitt verði rat­sjár­mæl­ingum „nema það verði bein­línis talið skylt af hálfu stjórn­valda“.

Í mats­á­ætl­un­inni kemur fram að verk­fræði- og ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Norconsult hafi nýlega unnið skoðun á því hvernig henti fyrir vind­orku­ver á þessu svæði að tengj­ast flutn­ings­kerf­inu. „Nið­ur­stöður voru jákvæðar, enda eru öfl­ugar háspennu­línur í nágrenn­inu ásamt tengi­virki og kerfið vel tengt stórum vatns­afls­virkj­unum sem geta nýst sem jöfn­un­ar­afl,“ segir í áætl­un­inni. „Eðli máls­ins sam­kvæmt gæti þurft að styrkja flutn­ings­kerfið, en það fer mjög eftir því hver eða hverjir verða helstu not­endur raf­orkunnar.“

Fyrir fram­kvæmda­svæðið er í gildi Aðal­skipu­lag Fljóts­dals­hér­aðs 2008-2028 og land­notkun skil­greind sem „óbyggð svæði“. Ljóst er að með upp­setn­ingu vind­orku­vers er nauð­syn­legt að gera breyt­ingar á aðal­skipu­lagi Múla­þings (Fljóts­dals­hér­aðs) í þá veru að afmarka fyr­ir­hugað virkj­un­ar­svæði sem „iðn­að­ar­svæði“.

Um 4-5 kíló­metrum neðan við fyr­ir­hugað virkj­un­ar­svæði í Jökuldal eru tvö nátt­úru­fyr­ir­bæri, Stuðla­foss og Stuðla­gil, sem bæði eru á nátt­úru­minja­skrá. Stuðla­foss er form­fagur foss með stuðla­bergs­um­gjörð og í Stuðla­gili eru háir stuðla­bergs­hamrar í far­vegi Jöklu. Báðir stað­irnir eru vax­andi áning­ar­staðir ferða­manna. Þá yrði vind­orku­verið í nálægð við Jök­ul­dals­heiði sem er til­nefnd á nátt­úru­minja­skrá vegna ferskvatns­vist­gerða. Hún er einnig skil­greind sem mik­il­vægt fugla­svæði á Íslandi.

Hið fyr­ir­hug­aða fram­kvæmda­svæði er um 4.110 hekt­arar að flat­ar­máli og innan þess verður, að sögn Zephyr, vind­myll­unum komið þannig fyrir „að tekið verið til­lit til vind­að­stæðna og ann­arra umhverf­is­að­stæðna með það að mark­miði að lág­marka umhverf­is­á­hrif“.

Öllum er frjálst að senda Skipu­lags­stofnun umsagnir við mats­á­ætl­un­ina. Þær þurfa að ber­ast stofn­un­inni eigi síðar en 7. jan­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár