Vilja reisa 40-50 vindmyllur í nágrenni Stuðlagils

Um 40-50 vind­myllur munu rísa í landi Klaust­ursels í Jökuldal gangi áform Zephyr Iceland eftir. Vind­orku­verið yrði í nálægð við Kára­hnjúka­virkjun og þar með flutn­ings­net raf­orku en einnig í grennd við hinn geysi­vin­sæla ferða­manna­stað, Stuðla­gil.

Vindmyllur eru sífellt að hækka. Þær nýjustu eru um 200 metra háar.
Vind­myllur eru sífellt að hækka. Þær nýj­ustu eru um 200 metra háar. Mynd: Wikipedia

Fyr­ir­tækið Zephyr Iceland áformar að reisa í áföngum vind­orku­ver í landi Klaust­ursels í Jökuldal og mun 1. áfangi verða 40-50 MW en loka­stærð vers­ins gæti orðið allt að 250 MW. Þá yrðu 40-50 vind­myllur reistar á svæð­inu, hver um 200 metrar á hæð. Stuðla­gil, einn vin­sæl­asti ferða­manna­staður Íslands síð­ustu árin, er næsta nágrenni hins fyr­ir­hug­aða fram­kvæmda­svæðis.

[adspot]

Í lok jan­úar var hald­inn for­sam­ráðs­fundur full­trúa Zephyr, Múla­þings og Skipu­lags­stofn­unar um áformin. Á þeim fundi vakti Sigurður Jónsson, skipu­lags­full­trúi Múla­þings, athygli á nálægð­inni við Stuðla­gil sem ekki var getið í skýrslu þeirri um Klaust­ursels­virkjun sem Zephyr lét útbúa fyrir Orku­stofnun er sóst var eftir að kost­inum yrði skilað inn til með­ferðar hjá verk­efn­is­stjórn 4. áfanga ramma­á­ætl­unar. Sagði Sigurður mik­il­vægt að athuga með sýni­leika vind­myll­anna frá hinum geysi­vin­sæla ferða­manna­stað.

Allir geta komið að athuga­semdum um fram­kvæmdir í for­sam­ráði og skal fram­kvæmda­að­ili gera grein fyrir slíkum athuga­semdum í mats­á­ætlun um fram­kvæmd­ina sem er eitt fyrsta skefið í átt að mati á umhverf­is­á­hrifum.

Zephyr Iceland vinnur að und­ir­bún­ingi, rann­sóknum og þróun nokk­urra vind­orku­verk­efna á Íslandi. Fyr­ir­tækið er að meiri­hluta í eigu norska Zephyr, sem er umfangs­mikið vind­orku­fyr­ir­tæki þar í landi. Alls er Zephyr nú með rúm­lega 500 MW af vindafli í rekstri í Noregi og er að auki að reisa um 200 MW í við­bót.

Meðal verk­efna Zephyr til þessa eru t.a.m. vind­orku­verið Tellenes (um 160 MW) sem reis sum­arið 2017 og selur raf­ork­una til Google og vind­orku­ver á Guleslettene (um 200 MW) sem reis sum­arið 2020 og selur raf­ork­una til Alcoa.

Íslenska fyr­ir­tækið Hreyfi­afl er einnig hlut­hafi í Zephyr Iceland. Hreyfi­afl er í eigu Ketils Sig­ur­jóns­sonar, sem jafn­framt er fram­kvæmda­stjóri Zephyr Iceland.

Svæðið þar sem Klaust­ursels­virkjun er fyr­ir­huguð liggur innan jarð­ar­innar Klaust­ursels í sveit­ar­fé­lag­inu Fljóts­dals­hér­aði. Fram­kvæmda­svæðið yrði á Fljóts­dals­heiði vest­an­verðri.

Um svæðið liggur háspennu­lína Lands­nets en auk þess er nú verið að reisa öfl­ugri háspennu­línu, Kröflu­línu 3, sam­hliða hinni eldri. Báðar lín­urnar tengj­ast tengi­virki við Kára­hnjúka­virkjun.

Helstu stórnot­endur raf­orku í nágrenni Fljóts­dals eru álverið á Reyð­ar­firði og fiski­mjöls­verk­smiðjur, en einnig er t.a.m. Eyja­fjarð­ar­svæðið og kís­il­verk­smiðjan á Bakka tengd flutn­ings­kerf­inu. Vegna nálægðar við Kára­hnjúka­virkjun og hafn­ar­innar á Reyð­ar­firði eru góðir inn­viðir til und­ir­bún­ings og upp­bygg­ingu vind­orku­vers­ins til staðar að mati fram­kvæmda­að­ila. „Á und­ir­bún­ings­tíma virkj­un­ar­innar verður afar lítið rask á heið­inni því unnt er að nýta fyr­ir­liggj­andi veg­slóða sem þar eru,“ sagði m.a. í gögnum sem skilað var inn vegna virkj­ana­kosts­ins til mats í ramma­á­ætlun. Þegar kæmi að því að reisa vind­myll­urnar yrði sá veg­slóði styrktur eða byggður nýr vegur á heið­inni.

Fljóts­dals­heiði er víð­feðmt heið­ar­land milli Jök­ul­dals og Fljóts­dals. Jörðin Klaust­ur­sel liggur í og upp af Jökuldal og jörð­inni til­heyrir víð­áttu­mikið land uppi á heið­inni. Sá hluti Fljóts­dals­heiðar þar sem virkj­unin er fyr­ir­huguð er nokkuð inn­ar­lega á heið­inni. „Með því eru sjón­ræn áhrif virkj­un­ar­innar frá byggð lág­mörkuð og um leið má gera ráð fyrir að dragi úr ísingu eftir því sem kemur innar á heið­ina, en þar er víð­áttu­mikið fremur flat­lent svæði,“ segir í gögnum Zephyr Iceland.

[links]Virkj­un­ar­svæðið er í einka­eigu hluta­fé­lags sem er í end­an­legri eigu ábú­anda jarð­ar­innar Klaust­ursels. „Engin frið­lýst svæði, nátt­úru­vernd­ar­svæði né vatns­vernd­ar­svæði munu vera innan virkj­un­ar­svæð­is­ins,“ segir enn­fremur í gögn­unum en hvergi er þar getið um nálægð­ina við Stuðla­gil.

Til norð­urs nokkuð fjarri fram­kvæmda­svæð­inu liggur Hálslón og önnur miðl­un­ar­lón Kára­hnjúka­virkj­unar og því eru til upp­lýs­ingar um nátt­úru­far á hluta af nágranna­svæðum Klaust­ursels. Við mat á umhverf­is­á­hrifum verk­efn­is­ins verður skoðað hvort ein­hverjar jarð­mynd­anir eða vist­gerðir þar njóti sér­stakrar verndar sam­kvæmt lögum og þá hvernig unnt verði að lág­marka rask á þeim, ásamt því sem þá munu eiga sér stað aðrar við­eig­andi rann­sóknir á líf­ríki svæð­is­ins.

Unnið að heildargreiningu á vindorkukostum

Stefán Bogi Sveins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Múla­þingi og vara­for­seti sveit­ar­stjórnar, sagði á for­sam­ráðs­fund­inum með fram­kvæmda­að­ila og Skipu­lags­stofnun í lok jan­úar að heild­ar­grein­ing á vind­orku­kostum í Múla­þingi stæði yfir. Vonast sé til að þeirri vinnu ljúki fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í vor. Í kjöl­farið muni sveit­ar­fé­lagið taka afstöðu til kosta og þá m.a. hvort gert verði ráð fyrir fyr­ir­hug­uðum áformum að Klaust­ur­seli í aðal­skipu­lagi Múla­þings.

Vinna við nýtt aðal­skipu­lag hins nýja sveit­ar­fé­lags hefj­ist að öllum lík­indum ekki fyrr en eftir kosn­ing­arnar en eðli máls­ins sam­kvæmt taki það langan tíma að ljúka slíkri vinnu.

Sigurður skipu­lags­full­trúi benti á að ljóst væri að grein­ing á vind­orku­kostum væri umfangs­mikil þar sem um mjög stórt sveit­ar­fé­lag væri að ræða. Þá væri líka ljóst að það gæti tekið 3-4 ár að vinna nýtt aðal­skipu­lag fyrir Múlaþing en sagði enn­fremur að það væri kostur að breyta núgild­andi aðal­skipu­lagi Fljóts­dals­hér­aðs ef nið­ur­staða grein­ingar væri sú að vind­orku­ver að Klaust­ur­seli væri kostur

Haukur Ein­ars­son, full­trúi verk­fræði­stof­unnar Mannvits, sem vinnur að und­ir­bún­ingi umhverf­is­mats fram­kvæmd­ar­innar fyrir Zephyr Iceland sagð­ist á fund­inum telja þá leið æski­legri en að bíða eftir nýju aðal­skipu­lagi.

Ketill Sig­ur­jóns­son, fram­kvæmda­stjóri Zephyr Ísland, sagði í við­tali við RÚV vegna Klaust­ursels­virkj­unar um mitt árið 2020 að jörðin Klaust­ur­sel væri mjög land­mikil og því væri þar „fræði­lega séð“ pláss fyrir „geysi­lega stóran vind­myllu­garð. Í raun­inni enn þá stærri en þann sem við höfum til­kynnt inn“.

Ætla að setja sérstök lög um nýtingu vindorku

Verk­efn­is­stjórn fjórða áfanga ramma­á­ætl­unar lauk störfum í apríl í fyrra. Hún fékk 34 vind­orku­kosti til umfjöll­unar en tók aðeins örfáa þeirra til mats þar sem hún taldi fyr­ir­liggj­andi gögn þeirra flestra ekki nægj­an­leg. Klaust­ursels­virkjun var ekki tekin til mats. Virkj­ana­kostir sem eru 10 MW að afli eða meira fara til mats í ramma­á­ætlun þar sem tekið er til­lit til ýmissa sjón­ar­miða, s.s. umhverf­is­legra. Fyrr­ver­andi orku­mála­stjóri var ósam­mála þeirri afstöðu umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins að vind­orku­ver þyrftu öll sem eitt að fara í gegnum tíma­frekt ferli ramma­á­ætl­unar væru þau 10 MW eða stærri.

Rík­is­stjórnin áformar að setja sér­stök lög um nýt­ingu vind­orku með það að mark­miði að ein­falda upp­bygg­ingu vind­orku­vera. Áhersla verði lögð á að vind­orku­ver bygg­ist upp á afmörk­uðum svæðum nærri tengi­virkjum og flutn­ings­línum þar sem unnt verði að tryggja afhend­ingar­ör­yggi og lág­marka umhverf­is­á­hrif.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

virkjanamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár