Fresta breytingum á skipulagi vegna vindorkuvers „því þetta er gríðarlega stór ákvörðun“

Sveit­ar­stjórn Norð­ur­þings hefur ákveðið að fresta frek­ari vinnu við breyt­ingu á aðal­skipu­lagi þar til umhverf­is­mati fyr­ir­hug­aðs vind­orku­vers á Mel­rakka­sléttu verður lokið að fullu. Gert í sam­ræmi við vilja íbúa, segir for­seti sveit­ar­stjórnar.

svæðið sem átti samkvæmt tillögu að breyta úr landbúnaðarsvæði í iðnaðarsvæði á aðalskipulagi.
svæðið sem átti sam­kvæmt til­lögu að breyta úr land­bún­að­ar­svæði í iðn­að­ar­svæði á aðal­skipu­lagi. Mynd: EFLA

Ekki verður gerð breyt­ing á aðal­skipu­lagi Norð­ur­þings vegna áform­aðs vind­orku­vers á Mel­rakka­sléttu fyrr en umhverf­is­mati þess verður að fullu lokið. Þetta var sam­þykkt sam­hljóða á síð­asta fundi sveit­ar­stjórnar. „Það voru allir sam­mála um að ef meiri­hluti íbúa á svæð­inu vildi bíða og fá umhverf­is­mat myndum við gera það,“ segir Kolbrún Ada Gunn­ars­dóttir, full­trúi V-lista (lista VG og óháðra) og for­seti sveit­ar­stjórnar Norð­ur­þings, í sam­tali við Kjarnann. Sú afstaða hafi komið fram á íbúa­fundi hverf­is­ráðs Kópa­skers nýverið.

[links]Ada, eins og hún er oft­ast kölluð, er sjálf þeirrar skoð­unar að vind­orku­ver á Mel­rakka­sléttu sé ekki góður kostur fyrir svæðið. Frekar ætti að berj­ast fyrir því að styrkja inn­viði fyrir raf­orku­flutn­inga í sveit­ar­fé­lag­inu. „Mér hugn­ast ekki þessi stað­setn­ing. Að setja þarna 43 vind­myllur, sem fara í ein­hverja 200 til 300 metra hæð, finnst mér bara galið.“ Mik­il­vægt sé hins vegar að íbúar hafi öll þau gögn sem þurfi til að taka afstöðu og þau muni m.a. fást er umhverf­is­á­hrif fram­kvæmd­ar­innar verða metin.

Unnið hefur verið að hug­myndum á breyt­ingum aðal­skipu­lags sveit­ar­fé­lags­ins vegna vind­orku­vers­ins á Mel­rakka­sléttu í nokkra mán­uði. Tillaga að skipu­lags- og mats­lýs­ingu var kynnt um síð­ustu ára­mót og drög að til­lög­unni að sjálfri breyt­ing­unni svo aug­lýst og hún kynnt á fundi á Kópa­skeri 14. júní.

Þeir sem sáu um þá kynn­ingu voru full­trúar fram­kvæmda­að­il­ans, Qair Iceland ehf., auk ráð­gjafa frá Eflu en sú verk­fræði­stofa vann bæði til­lögu að mats­á­ætlun orku­vers­ins fyrir fyr­ir­tækið og til­lögu að aðal­skipu­lags­breyt­ing­unni.

Samkvæmt til­lög­unni átti að breyta 33 fer­kíló­metrum lands á Mel­rakka­sléttu úr land­bún­að­ar­svæði í iðn­að­ar­svæði svo þar yrði hægt að reisa um 40 vind­myllur sem hver yrði um 200 metrar á hæð.

Skipulagsstofnun setti sautján skilyrði

Ákvörðun Skipu­lags­stofn­unar um mats­á­ætlun Qair Iceland vegna hins fyr­ir­hug­aða vind­orku­vers, lá fyrir í byrjun júlí. Stofn­unin féllst á áætl­un­ina, sem er eitt skrefið í umhverf­is­mats­ferl­inu, en með skil­yrðum sem sett voru fram í sautján liðum. Bent var m.a. á að fram þurfi að fara mat á áhrifum á óbyggð víð­erni þar sem hið fyr­ir­hug­aða fram­kvæmda­svæði ein­kenn­ist af víð­feðmu flat­lendi og sjá­ist því víða að. Þá leggur stofn­unin á það sér­staka áherslu að í frum­mats­skýrslu, sem er næsta skref í mati á umhverf­is­á­hrifum, verði við nálgun og fram­setn­ingu mats á áhrifum á fugla fylgt bestu starfsvenjum og að rann­sóknir á þeim þurfi að standa í að minnsta kosti tvö ár.

Í öllu þessu ferli kom fram hörð gagn­rýni frá ýmsum aðilum, m.a. íbúum á svæð­inu. Á það var m.a. bent að í núver­andi aðal­skipu­lagi Norð­ur­þings stendur: „Forðast skal að raska ósnortnum víð­ernum í Norð­ur­þingi með því að reisa þar mann­virki eða ann­ars gæta þess að þau valdi sem minnstu raski og sjón­mengun.“

Þá stendur í sátt­mála meiri­hluta Norð­ur­þings 2018-2022: „Tryggja að ekki verði ráð­ist í verk­efni innan Norð­ur­þings sem útheimti nýja virkj­un­ar­kosti á við­kvæmum ósnortnum svæðum í Þing­eyj­ar­sýslum.“

Ada ákvað í kjöl­far gagn­rýn­innar að leggja fram til­lögu á fundi byggð­ar­ráðs Norð­ur­þings um að fallið yrði frá breyt­ingum á aðal­skipu­lagi þar til umhverf­is­mati yrði að fullu lokið. Hún hvatti einnig til þess að vilji íbúa til hins áform­aða vind­orku­vers yrði kann­aður.

„Að breyta aðal­skipu­lagi svæðis úr land­bún­að­ar­landi í iðn­að­ar­svæði til orku­nýt­ingar til að rúma vind­orku­ver á mjög stórum skala er ekki létt­væg aug­lýs­ing eða kynn­ing heldur stefnu­mark­andi ákvörðun sveit­ar­fé­lags,“ skrif­aði Ada m.a. í grein­ar­gerð með til­lögu sinni sem tekin var fyrir í byrjun júlí. Hún benti á að fjórtán umsagnir og athuga­semdir hefðu borist „og engin þeirra jákvæð“. Þá benti hún einnig á að „í besta falli“ væru áhöld um það hvernig þessar fram­kvæmdir ættu að nýt­ast sveit­ar­fé­lag­inu og nær­sam­fé­lag­inu. „Ekkert liggur fyrir um það hvernig orkan verði nýtt og enn­fremur ekk­ert sem tryggir að orkan verði nýtt á nær­svæð­inu. Sam­fé­lags­á­bati er því óljós, burt­séð frá umhverf­is­á­hrifum öllum.“

Byggð­ar­ráðið frestaði afgreiðslu á til­lögu Ödu þar til í ágúst en sam­þykkti á seinni fundi sínum í júlí að við­horf íbúa í nágrenni hins fyr­ir­hug­aða vind­orku­vers yrði kannað.

„Þegar þetta var kynnt fyrst fyrir okkur þá var alltaf talað um að þetta væri í sam­vinnu við land­eig­endur þannig að maður vildi ekki stíga á tærnar á mönnum á meðan þetta var í rann­sókn­arfasa,“ segir Ada við Kjarnann um for­sögu máls­ins. Þegar hún hins vegar hafi séð allar þær nei­kvæðu umsagnir og athuga­semdir sem bár­ust vegna til­lög­unnar og heyrt í mörgum sem voru ósáttir ákvað hún að skoða málið betur. Þá tók hún m.a. eftir því að fram­kvæmda­að­ili var búinn að fjölga vind­myll­unum úr 33 í 43. Hún lagði því fram til­lögu um að fresta aðal­skipu­lags­breyt­ing­unni. „Því þetta er gríð­ar­lega stór ákvörðun. Að fara að breyta aðal­skipu­lagi án þess að vita nákvæm­lega hvaða áhrif það myndi hafa á svæðið.“

Hún spurð­ist fyrir um hvort að frestun aðal­skipu­lags­breyt­ingar þar til umhverf­is­mati yrði lokið myndi hægja veru­lega á öllu ferl­inu og fékk þau svör að svo væri ekki. „Þannig að ég gat ekki séð að okkur lægi svo lífið á að breyta aðal­skipu­lagi. Því það er mjög stórt skref og ætti að mínu mati þá alltaf að vera síð­asti punktur í ferli.“

Skiptar skoðanir en allir sammála um frestun breytinga

Á fundi hverf­is­ráðs Kópa­skers sem hald­inn var 18. ágúst mættu margir sem búa í nágrenni hins fyr­ir­hug­aða fram­kvæmda­svæðis. „Þar komu fram ýmsar athuga­semdir,“ segir Ada. „Það eru ekki allir á móti þessu en allir voru sam­mála um að það væri gott að fá fyrst nið­ur­stöðu umhverf­is­mats.“

Funduð þið eða þú fyrir þrýst­ingi frá fram­kvæmda­að­ila að fara í þessar aðal­skipu­lags­breyt­ingar áður en umhverf­is­mats­ferl­inu væri lokið?

„Nei, kannski ekki hægt að segja það, ekki þannig. Það kemur nátt­úru­lega upp þetta um að halda ferl­inu gang­andi. Og eðli­lega vilja þeir keyra þetta allt í gegn sem hrað­ast af því að þetta er nátt­úr­lega þeirra fjár­fest­ing.“

Ada segir enga ákvörðun hafa verið tekna um að hætta við íbúa­könn­un­ina. Kristján Þór Magn­ús­son, sveit­ar­stjóri Norð­ur­þings, segir í skrif­legu svari til Kjarnans að eftir „afar góðan íbúa­fund á Kópa­skeri“ reikni hann með að aflað verði frek­ari upp­lýs­inga um hina fyr­ir­huguð fram­kvæmd áður en könn­unin fari fram.

„Ég held að margir eigi erfitt með að taka afstöðu án þess að hafa frek­ari gögn í hönd­unum,“ segir Ada. „Ég myndi segja að þegar umhverf­is­mati lýkur sé hægt að halda kynn­ingu, svara spurn­ingum og svo væri svo hægt að kanna við­horfið, þá yrði fólk komið með gögn í hend­urnar til að mynda sér skoðun.“

Ada tók fyrr á árinu við starfi skóla­stjóra Borg­ar­hóls­skóla sem er ein stærsta stofnun sveit­ar­fé­lags­ins Norð­ur­þings. Hún tók því þá ákvörðun að hætta í sveit­ar­stjórn, þó að hún muni áfram sitja í nefndum fyrir hönd V-lista. Aldey Trausta­dóttir kemur inn í sveit­ar­stjórn í hennar stað og verður for­seti hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

virkjanamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár