Aflaukning núverandi virkjana þurfi ekki að fara í gegnum rammaáætlun

Umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið hefur uppi áform um að breyta lögum þannig að tækni­leg aflaukn­ing virkj­ana, sem ekki feli í sér eig­in­lega stækkun virkj­ana, muni ekki lengur þurfa að fara í gegnum ferli ramma­á­ætl­unar.

Guðlaugur Þór Þórðarsson er ráðherra orku- og umhverfismála.
Guð­laugur Þór Þórð­ars­son er ráð­herra orku- og umhverf­is­mála. Mynd: Bára Huld Beck

Umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið hefur sett fram til sam­ráðs í sam­ráðs­gátt stjórn­valda áform um laga­setn­ingu, þess efnis að lögum um ramma­á­ætlun verði breytt með þeim hætti að „tækni­leg aflaukn­ing“ virkj­ana sem eru í rekstri þurfi ekki lengur að fara í gegnum ferli ramma­á­ætl­unar. Umsagn­ar­frestur um málið er til 18. febr­úar.

Breyt­ing­arnar sem eru fyr­ir­hug­aðar myndu fela í sér að tækni­leg aflaukn­ing starf­andi virkj­ana þyrfti ekki lengur að fara til umfjöll­unar hjá ramma­á­ætlun sem sér­stakur virkj­ana­kostur. Tekið er fram að slíkar fram­kvæmdir þyrftu þó eftir sem áður ef til vill að fara í gegnum umhverf­is­mats­ferli.

Í umfjöllun ráðu­neyt­is­ins um fyr­ir­hug­aðar laga­breyt­ingar í sam­ráðs­gátt­inni segir að sam­kvæmt núver­andi lögum um ramma­á­ætlun frá 2011 geti umfjöllun um ein­staka virkj­un­ar­kosti í verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun tekið allt að fjögur ár, frá því að virkj­un­ar­að­ili sendir inn umsókn um mat á virkj­un­ar­kost­inum og þar til virkj­un­ar­kost­ur­inn er afgreiddur inn í orku­nýt­ingar-, bið- eða vernd­ar­flokk af Alþingi.[links]

„Með frum­varp­inu er ætl­unin að und­an­skilja tækni­legar aflaukn­ingar á virkj­unum sem nú þegar eru í rekstri umfjöllun ramma­á­ætl­unar. Slíkar fram­kvæmdir munu eftir sem áður þurfa að fara í gegnum umhverf­is­mat sam­kvæmt lögum þar að lút­andi,“ segir í umfjöllun umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins.

Umframrennsli

Í skjali þar sem áformin um laga­setn­ing­una eru nánar útskýrð segir að almennt sé „tækni­leg aflaukn­ing í vatns­afls­virkj­unum sem þegar eru í rekstri til þess hugsuð að nýta umfram­rennsli sem þegar er til staðar í hinu virkj­aða vatns­falli, t.d. vegna auk­innar bráðn­unar jökla. Um er að ræða að auka afkasta­getu véla í stöðv­ar­húsi þannig að umfram­rennslið, sem áður var veitt fram hjá stöðv­ar­húsi, nýt­ist til raf­orku­fram­leiðslu.“

Segir í þessu sama skjali að þessar aflaukn­ingar feli ekki í sér „stór­felldar breyt­ingar á þeim atriðum sem mestu skipta við mat á umhverf­is­á­hrifum virkj­anna, t.d. yfir­borðs­hæð og yfir­borðs­flat­ar­máli lóna, lengd og umfang skurða og stíflna í vatna­sviði ofan virkj­unar o.s.frv.“

Enn­fremur segir í skjal­inu að þar sem máls­með­ferð ramma­á­ætl­unar miði að því að að vega og meta áhrif virkj­un­ar­fram­kvæmda á umhverfi, sam­fé­lag og efna­hag sé ekki talið rétt að skylda tækni­legar aflaukn­ingar inn í ferli ramma­á­ætl­unar, þar sem geri megi ráð fyrir því að umhverf­is­á­hrif tækni­legra aflaukn­inga séu tak­mörkuð.

Rammaáætlun á leið fyrir þingið enn einu sinni

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í morgun að leggja til­lögu Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar ráð­herra til þings­á­lykt­unar um 3. áfanga ramma­á­ætl­unar til þing­flokka stjórn­ar­flokk­anna þriggja til afgreiðslu.

Í til­kynn­ingu um þetta á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að þings­á­lykt­un­ar­til­lagan hafi verið lögð fram í sömu mynd og á 151., 146. og 145. lög­gjaf­ar­þingi, en á þeim þingum náð­ist ekki að afgreiða málið.

Í til­kynn­ing­unni segir að svæði sem Alþingi hafi þegar sam­þykkt í vernd­ar­flokk og hafi verið frið­lýst í sam­ræmi við lög um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun hafi verið felld úr til­lög­unni. Þetta eru Hólmsár­virkjun við Ein­hyrn­ing, Tungna­ár­lón, Gýgjar­foss­virkjun, Blá­fells­virkjun, Gjá­stykki, Brenni­steins­fjöll, Hvera­botn, Neðri-Hverdalir, Kisu­botnar og Þverfell.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

virkjanamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár