Umhverfismat vindorkuvers austan Baulu hafið

Fyr­ir­tækið Qair Iceland ehf. áformar að reisa 13-17 vind­myllur í Norð­ur­ár­dal, austan við fjallið Baulu. Fyrstu skref í umhverf­is­mati orku­vers­ins hafa verið tekin.

Qair Iceland áformar nokkur vindorkuver á Íslandi.
Qair Iceland áformar nokkur vind­orku­ver á Íslandi. Mynd: Flickr

Fyr­ir­tækið Qair Iceland ehf. áformar að reisa um 78-95 MW vind­orku­ver innan 3.528 hekt­ara svæðis að Hvammi í Borg­ar­byggð á Vest­ur­landi. Verk­efnið kall­ast Múli og liggur Þjóð­vegur 1 með­fram jaðri hins fyr­ir­hug­aða fram­kvæmda­svæðis. Nokkur bónda­býli og sum­ar­hús eru einnig í jaðri þess, og fáein býli eru innan þess. Næsti þétt­býl­is­staður er Borg­ar­nes, í um 39 kíló­metra fjar­lægð til suð­vest­urs og Háskól­inn á Bifröst er 10,5 kíló­metra til vest­urs af þró­un­ar­svæð­inu.

[links]Gert er ráð fyrir að reistar verði í kringum 13-17 vind­myllur í einum áfanga. Í mats­á­ætlun fram­kvæmd­ar­innar, sem lögð hefur verið fram til Skipu­lags­stofn­unar, kemur fram að vind­myll­urnar verði um 200 metra háar. Hæst nær fram­kvæmda­svæðið upp í um 750 metra hæð yfir sjáv­ar­máli en lægst er það í 150 metra hæð. Í mats­á­ætl­un­inni, sem er eitt fyrsta skrefið í umhverf­is­mati fram­kvæmda, kemur fram að fjar­lægð vind­mylla frá manna­bú­stöðum verði að lág­marki 500 metrar.

Ekkert vind­orku­ver hefur verið reist á Íslandi ef frá eru taldar tvær vind­myllur sem reistar voru í Þykkvabæ árið 2014. Þær skemmd­ust báðar í eldi nýverið. Þá reisti Lands­virkjun tvær vind­myllur í Hafinu, hraun­sléttu norðan við Búrfell, í rann­sókn­ar­skyni árið 2013.

[adspot]

Fjölmörg vind­orku­verk­efni eru á teikni­borð­inu um allt land en ágrein­ingur hefur verið um hvort að þau eigi að fara í ferli ramma­á­ætl­unar eður ei. Verk­efn­is­stjórn 4. áfanga áætl­un­ar­innar bár­ust 34 vind­orku­kostir til mats og var verk­efnið Múli í Borg­ar­byggð eitt þeirra. Stjórnin taldi hins vegar nægj­an­leg gögn aðeins hafa fylgt fimm þeirra og Múli var ekki þar á meðal.

„Þótt vind­ur­inn sé óþrjót­andi er land undir vind­orku­ver það ekki,“ skrif­aði Guðrún Pét­urs­dóttir, for­maður verk­efn­is­stjórn­ar­innar, í inn­gangi skýrslu stjórn­ar­innar síð­asta vor. „Landið er hin tak­mark­aða auð­lind í þessu til­felli. Vind­myllur eru nú um 150 m háar og fara hækk­andi. Þær eru því afar áber­andi í lands­lagi og sjást víða að. Vind­orku­ver munu valda miklum breyt­ingum á ásýnd lands­ins ef ekki verður var­lega farið.“

Verk­efn­is­stjórnin taldi brýnt að sett yrði heild­ar­stefna um virkjun vind­orku og að ígrunduð ákvörðun yrði tekin um hvort afmarka eigi fá skil­greind svæði fyrir vind­myllur eða setja því litlar skorður hvar vind­orku­ver fái að rísa. „Nú er ein­stakt tæki­færi að setja slíka stefnu áður en fram­kvæmdir hefj­ast víða um land,” skrif­aði Guðrún.

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks kemur fram að setja eigi sér­stök lög um nýt­ingu vind­orku með það að mark­miði að „ein­falda upp­bygg­ingu vind­orku­vera til fram­leiðslu á grænni orku“. Leggja á áherslu á að vind­orku­ver bygg­ist upp á afmörk­uðum svæðum nærri tengi­virkjum og flutn­ings­línum þar sem unnt verði að tryggja afhend­ingar­ör­yggi. „Mik­il­vægt er að breið sátt ríki um upp­bygg­ingu slíkra vind­orku­vera og til­lit sé tekið til sjón­rænna áhrifa, dýra­lífs og nátt­úru. Í því sam­hengi verður tekin afstaða til gjald­töku fyrir slíka nýt­ingu. Stefna verður mótuð um vind­orku­ver á hafi.“

Í mats­á­ætlun Qair um vind­orku­verið Múla segir að við val á stað­setn­ingu hafi ekki ein­ungis verið horft til þátta er varða rekstur vind­orku­garðs, s.s. nægs vinds, nálægðar við flutn­ings­kerfi og góðs aðgengis að svæð­inu, heldur var einnig áhersla lögð á þætti eins og fjar­lægðir frá mik­il­vægum nátt­úru- og menn­ing­arminjum, fjar­lægðir frá þétt­býlum og mik­il­vægum við­komu­stöðum tengdum ferða­þjón­ustu. „Múli er tal­inn upp­fylla þessi skil­yrði, en fyr­ir­hug­aður vind­orku­garður þykir vera í hæfi­legri fjar­lægð frá þétt­býli og eft­ir­tekt­ar­verðum áning­ar­stöðum en á sama tíma hæfi­lega nálægt tengi­virki Lands­nets sem stað­sett er í bæði Hrúta­tungu og Vatns­hömrum.“ Þá kemur fram að gott aðgengi sé að svæð­inu sem sé mik­ill kostur á rann­sóknar-, fram­kvæmdar- og rekstr­ar­tíma.

Í gild­andi aðal­skipu­lag Borg­ar­byggðar 2010-2022 er ekki gert grein fyrir fram­kvæmdum við vind­orku­garð­inn Múla. Þró­un­ar­svæðið er að stærstum hluta skil­greint sem land­bún­að­ar­svæði en einnig að hluta til sem frí­stunda­byggð og óbyggt land. Á svæð­inu er einnig skóg­lendi í eigu og umsjón Skóg­ræktar rík­is­ins.

Ekkert deiliskipu­lag er í gildi fyrir fyr­ir­hugað fram­kvæmda­svæði og vinna við slíkt þarf því að fara fram þar sem gerð yrði grein fyrir vind­myllum og öðrum mann­virkjum, svo sem vegum og teng­ingum við flutn­ings­kerfi.

Óvíst hvenær framkvæmdir myndu hefjast

Áætlað er að umhverf­is­mats­skýrsla verði send til athug­unar Skipu­lags­stofn­unar í lok árs 2023 og að álit Skipu­lags­stofn­unar geti legið fyrir á vor­mán­uðum 2024. Á þessu stigi er óvíst hvenær fram­kvæmdir myndu hefj­ast. Hins vegar má gera ráð fyrir að fram­kvæmda­tími verði um 12 mán­uðir sem lík­lega muni dreifast yfir tveggja ára tíma­bil. Að því loknu er áætlað að rekstur vind­orku­garðs­ins geti haf­ist og standi yfir í að minnsta kosti 25 ár. Eftir þann tíma verður rekstri ann­að­hvort haldið áfram eða hætt og vind­orku­garð­ur­inn þá tek­inn niður, vind­myll­urnar teknar í sundur og fluttar á brott.

[adspot]

Almenn­ingur getur skilað inn athuga­semdum við mats­á­ætl­un­ina og sam­hliða kynn­ing­unni mun Skipu­lags­stofnun einnig leita umsagna ýmissa stofn­anna. Fram­kvæmd­ar­að­ili mun kynna fram­kvæmd­ina á opnum streym­is­fundi 10. febr­úar kl. 20:00. Vef­slóðin á fund­inn er: www.efla.is/streymi.

Qair Iceland ehf (áður Quadran Iceland Develop­ment ehf.) er dótt­ur­fé­lag franska fyr­ir­tæk­is­ins Qair SA sem sér­hæfir sig í þróun, fjár­mögnun, bygg­ingu og rekstri raf­orku­vera um heim allan. Qair SA er með aðstöðu í 16 löndum og er um þessar mundir að þróa eða byggja orku­ver í Suður-Ameríku, Austur-Evrópu, Norður-Evrópu, Afríku og Austur-Asíu.

Eins og er stendur Qair Iceland ehf. að þróun nokk­urra vind­orku­garða á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vindorkuver

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár